Fréttablaðið - 01.10.2007, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 01.10.2007, Blaðsíða 19
fasteignir 1. OKTÓBER 2007 Tveggja íbúða hús með góðu útsýni til sölu í Hólahverfi, Breiðholti. L yngvík fasteignasala hefur til sölu 331,8 fer-metra hús við Erluhóla 2, sem skiptist í tvær íbúðir. Á efri hæð er 168,1 fermetra íbúð með innbyggðan 47,5 fermetra bílskúr og 45,6 fermetra herbergi inni af honum. Á jarðhæð er 70,6 fermetra tveggja herbergja íbúð með sérinngangi. Efri hæð skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, sjón- varpshol, stórt svefnherbergi og svefnherbergis- gang, þaðan sem útgengt er á suðurverönd. Einnig baðherbergi búið baðkari, sturtuklefa og innrétt- ingu, borðstofu og stofu, þaðan sem útgengt er á norðvestursvalir með góðu útsýni. Loks eldhús og þvottaherbergi, annað svefnherbergi og hjónaher- bergi. Bílskúr er búinn glugga, rafmagni og hita. Búið er að stúka herbergið, sem er inni af bílskúrnum, niður með léttum veggjum. Jarðhæð skiptist í forstofu, hol, stofu, lítið eldhús, svefnherbergi, baðherbergi með baðkari og geymslu með glugga, sem notuð er sem svefnherbergi. Vel staðsett hús Húsið að Erluhólum 2 er útbúið tveimur íbúðum og bílskúr. Þannig er mál með vexti ... ... að það er hægt að létta greiðslubyrðina. F í t o n / S Í A SAMANBURÐUR Á LÁNUM MYNTKÖRFULÁN *** BLANDAÐ LÁN ** ÍBÚÐARLÁN LÁNSUPPHÆÐ 20.000.000 20.000.000 20.000.000 VEXTIR 3,9% * 4,9% * 5,95% GREIÐSLUBYRÐI**** 64.700 106.600 109.500 * M.v. 1. mánaða Libor vexti 24.07.2007. ** 50% íbúðarlán/50% erlent lán í CHF og JPY. *** Vextir á erlendri myntkörfu ráðast af veðsetningu og myntsamsetningu og eru á bilinu 3,2% til 4,3% m.v. myntkörfu 4. **** Mánaðarlegar afborganir fyrsta árið, lánstími 40 ár, einungis greiddir vextir af myntkörfuláninu fyrstu þrjú árin, án verðbóta eða gengisbreytinga. Reiknaðu út hvernig greiðslubyrði þín lækkar á www.frjalsi.is eða hafðu samband í síma 540 5000.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.