Fréttablaðið - 13.10.2007, Page 1
20-50%
AFSLÁTTUR AF
NÝJUM VÖRUM
Opið 10-18 í dag
vegna Árshátíðarferðar starfsmanna
laugardaginn13.okt.Lokað
HÖNNUN
Í lausu lofti
LEIRLIST
Japönsk og
íslensk áhrif
INNLITHörður Torfa í
miðbænum
hús&heimiliLAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2007
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utanríkisráðherra mun
gera Alþingi sérstaklega grein
fyrir Evrópu- og EES-málum í
vetur í þeim tilgangi að auka
umræðu þingmanna um mála-
flokkinn. Þetta kemur fram í grein
eftir Ingibjörgu og Jonas Gahr
Støre, utanríkisráðherra Noregs,
sem birtist í Fréttablaðinu í dag.
Opinská umræða um Evrópu-
mál var boðuð í stjórnarsáttmála
nýrrar ríkisstjórnar á vordögum.
Evrópuumræða á Alþingi er í sam-
ræmi við skýrslu Evrópunefndar
Alþingis sem Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra veitti forsæti.
Í stjórnarsáttmála er einnig
kveðið á um skipan nefndar sem í
sitja þingmenn úr öllum flokkum.
Sú nefnd hefur samráð við sér-
fræðinga um Evrópumál.
Ísland og Noregur standa bæði
utan Evrópusambandsins og eru
aðilar að EES-samningnum. Ingi-
björg Sólrún heimsótti Noreg í
júní í boði utanríkisráðherrans. Á
fundi þeirra var rætt um hvernig
þjóðirnar gætu haft áhrif á stefnu-
mótun ESB.
Kynnir Evrópumál fyrir Alþingi
„Ég gerði bara það sem mér
fannst eðlilegt að gera en Ís-
lendingar hafa endurgoldið mér
þúsundfalt.“
Forystumenn innan Sjálfstæðis-
flokksins, meðal annars í borgarstjórnar-
flokknum, telja starf Björns Inga Hrafnssonar,
borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, í stjórn
Orkuveitu Reykjavíkur og Reykjavík Energy
Invest (REI) hafa einkennst af því að verja
hagsmuni fjárfesta tengda Framsóknarflokkn-
um. Það sama eigi við um ákvörðun hans að
slíta meirihlutasamstarfi við Sjálfstæðisflokk-
inn í borginni.
Einkum eru það eignarhaldsfélögin Landvar
ehf. og Þeta ehf. sem kastljósið beinist að. Þau
eiga saman helmingshlut í VGK-Invest á móti
verkfræðistofunni VGK-Hönnun og Rafhönn-
un sem fer með um 5,75 prósenta hlut í GGE.
Sá hlutur nemur um tveggja prósenta hlut í
sameinuðu félagi GGE og REI.
Svava Bjarnadóttir hjá VGK-Hönnun stað-
festi þessa eigendaskiptingu við Fréttablaðið í
gær. Samkvæmt verðmati á sameinuðu félagi
GGE og REI, sem þó er ekki gengin lögform-
lega í gegn enn, er verðmæti hlutar VGK-
Invest á bilinu 1,3 til 1,5 milljarðar króna.
Helgi S. Guðmundsson, sem er fyrrverandi
formaður fjármálanefndar Framsóknarflokks-
ins og bankaráðs Seðlabanka Íslands, er skráð-
ur stofnandi og forsvarsmaður Landvar ehf.
sem fer með um 35 prósenta hlut í VGK-
Invest.
Kristinn Hallgrímsson hæstaréttarlögmaður
er skráður eigandi Þeta ehf. sem á fimmtán
prósenta hlut í VGK-Invest. Hann segir aðra
eigendur í félaginu vera lögmenn á lögmanns-
stofunni Fulltingi en Kristinn er einn fjögurra
eigenda stofunnar. „Okkur var boðið, ásamt
Landvar ehf., að verða hluthafar í VGK-Invest
af forsvarsmönnum VGK-Hönnunar,“ sagði
Kristinn.
Björn Ingi neitar því alfarið að hann sé að
verja hagsmuni framsóknarmanna með
ákvörðun sinni eða starfi fyrir OR og REI. „Það
gefur auga leið að það væri betra fyrir fjár-
festa að Orkuveitan seldi hlut sinn í REI,“ segir
Björn Ingi. Hann segir fyrst og fremst vera um
að ræða persónulegar árásir á hann, sem hann
hafi verið varaður við áður en hann sleit sam-
starfinu.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist ekki í
Helga í gærkvöld. Þá fengust ekki upplýsingar
um hverjir væru aðrir í hluthafahópi Landvar.
Vilja láta kanna eignarhlut
framsóknarmanna í REI
Forystumenn innan Sjálfstæðisflokksins telja Björn Inga Hrafnsson, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins,
hafa verið að verja hagsmuni fjárfesta tengda Framsóknarflokknum með samstarfsslitum í borgarstjórn.
Hollensk stjórnvöld
hafa ákveðið að banna sölu á
ofskynjunarsveppum
Ákvörðunin er tekin í kjölfar
slysa sem rakin eru til neyslu
ofskynjunarsveppa. Meðal annars
fótbrotnaði 19 ára Íslendingur illa
á báðum fótum eftir að hafa neytt
sveppa og stokkið út af svölum á
hóteli í Amsterdam.
Banna sölu á
eitursveppum
Bjórinn sem framleiða á
í Vestmannaeyjum á næsta ári
fær líklega nafnið Volcano. Fyrsti
bjórinn á að verða til í júní 2008.
„Það er ekkert nafn sem mér
finnst eiga betur við Eyjar en
Volcano, það er nánast búið að
ákveða að bjórinn komi til með að
heita það,“ segir Björgvin Þór
Rúnarsson, annar eigandi
fyrirtækisins 2B.
Volcano-bjór