Fréttablaðið - 13.10.2007, Side 10
Ríkissaksóknari hefur
fellt úr gildi þá ákvörðun lög-
reglustjóra höfuðborgarsvæðis-
ins að fella niður mál meints dýra-
níðings, sem sást lúberja hest á
myndbandi.
Barsmíðarnar voru sýndar í
Kompásþætti Stöðvar 2 í apríl síð-
astliðnum. Í kjölfarið kærði Gunn-
ar Örn Guðmundsson, héraðs-
dýralæknir Gullbringu- og
Kjósarumdæmis, málið til emb-
ættis lögreglustjóra höfuðborgar-
svæðisins.
Í byrjun ágúst barst héraðs-
dýralækni síðan bréf frá lögfræði-
deild embættis lögreglustjóra þar
sem tilkynnt var, að málið hefði
verið fellt niður vegna erfiðrar
sönnunarstöðu. Erfitt sé að sanna
að höggin sem sakborningur veitti
hestinum hafi verið svo þung að
þau hafi meitt hestinn.
„Í málinu skortir skrifleg gögn
um hvað teljist til viðurkenndra
tamningaaðferða sem torveldar
sönnun ákæranda á því að sak-
borningur hafi ekki beitt viður-
kenndum tamningaraðferðum,“
sagði í rökstuðningi fyrir niður-
fellingu málsins.
Dýralæknafélag Íslands lýsti
„furðu sinni og hneykslan á
ákvörðun lögreglustjóra höfuð-
borgarsvæðisins“ að ákæra ekki
í málinu og héraðsdýralæknirinn
kærði niðurfellinguna til emb-
ættis ríkissaksóknara. Ríkissak-
sóknari hefur nú ákveðið að
leggja fyrir lögreglu að taka
málið til áframhaldandi rann-
sóknar.
„Það er lögreglu að afla gagna í
opinberum málum“ segir meðal
annars í rökstuðningi ríkissak-
sóknara fyrir ákvörðun sinni um
áframhaldandi rannsókn máls-
ins. „Er því ekki unnt að fella mál
niður með hliðsjón af því að ekki
sé nægilegum gögnum fyrir að
fara í málinu þar sem rannsókn
máls er ekki lokið. Er lagt fyrir
lögreglustjóra að afla mats kunn-
áttumanna um hvort háttsemi
kærða sé til þess fallin að fara
illa með hest, hrekkja hann og
meiða. Enn fremur hvort kærði
hafi beitt viðurkenndum aðferð-
um við hestinn í umrætt sinn.“
„Ég er bara ánægður með
þetta,“ segir Gunnar Örn um
ákvörðun ríkissaksóknara.
Dýraníðsmál
í rannsókn
Ríkissaksóknari hefur fellt úr gildi þá ákvörðun lög-
reglustjóra höfuðborgarsvæðisins að vísa frá máli um
meint dýraníð. Lögreglurannsókn skal framhaldið.
Lech Kaczynski, forseti
Póllands, og Angela Merkel, kansl-
ari Þýskalands, lýstu í gær bjart-
sýni á að á leiðtogafundi Evrópu-
sambandsins í Lissabon í næstu
viku tækist samkomulag um end-
urskoðaðan stjórnarskrársáttmála
sambandsins.
Innan ESB er útbreiddur ótti
um að Pólverjar – sem ganga til
þingkosninga þremur dögum eftir
leiðtogafundinn – kunni svo nærri
kosningum að gera jafnvel enn
meira en áður úr andstöðu sinni
við vissa þætti sáttmálans í nafni
pólsks fullveldis. Kaczynski tjáði
fréttamönnum að „þótt enn væru
smáatriði sem ætti eftir að leysa“,
tryði hann því einlæglega að sam-
komulag gæti náðst.
Meginþorri eigenda
vatnsréttar sem nýttur er vegna
Kárahnjúkavirkjunar hefur
ákveðið að hafna úrskurði mats-
nefndar sem mat verðmætin á
samtals 1,6 milljarða króna.
Jón Jónsson, lögmaður þorra
landeigenda við Jökulsá á Dal,
segir að af 63 landeigendum hafi
61 ákveðið að fara fyrir dóm með
málið. Nú hafi lögmenn landeig-
enda sex mánuði til að höfða mál
fyrir héraðsdómi.
Jón segir líklegt að kallaðir
verði til matsmenn fyrir dóminn
til að meta verðmætin upp á nýtt.
Málið getur því tekið nokkurn
tíma, enda má búast við því að
það endi fyrir Hæstarétti.
Flestir ætla fyrir dóm
Sia Home Fashion
Laugavegur 86
101 Reykjavík
Sími 511 6606
Full búð af
nýjum vörum