Fréttablaðið - 13.10.2007, Qupperneq 22
Express Fer›ir, Grímsbæ, Efstalandi 26, sími 5 900 100 Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express
GOLFFERÐ
Nánar á www.expressferdir.is eða í síma 5 900 100
14.–21. nóvember
Fararstjóri: Björn Eysteinsson
Golfmót á
Real de Faula
Verð á mann í tvíbýli
94.800 kr.
Þ
að var býsna fjarri mér að fara í
framboð þegar Reykjavíkurlistinn
ákvað að bjóða ekki fram aftur og ég
sagði strax þá að ég gerði ekki ráð
fyrir því að fara fram,“ sagði Dagur
Bergþóruson Eggertsson í samtali við Frétta-
blaðið 8. mars 2006 en þá voru farnar að kvisast
út þær fréttir að
hann hygðist
sækjast eftir
oddasæti á lista
Samfylkingarinn-
ar. Dagur tók af
skarið fjórum
dögum síðar og
sér líklega ekki
eftir því. Í
prófkjöri hafði
hann betur í
slagnum við
Steinunni Valdísi
Óskarsdóttur,
þáverandi
borgarstjóra, og
Stefán Jón
Hafstein. Dagur
varð aftur á móti
að gera sér
minnihlutann að
góðu eftir að
Sjálfstæðisflokk-
ur og Framsókn-
arflokkur mynd-
uðu saman
borgarstjórn. Hún
sprakk aftur á
móti á fimmtudag
og Dagur er
kominn þangað
sem hann ætlaði
sér – í stól
borgarstjóra.
Dagur er læknir
að mennt og var
fyrst kosinn í
borgarstjórn árið
2002, en hann
hafði tekið sæti á
Reykjavíkurlist-
anum í nafni
óháðra. Hann
gegndi fjölmörg-
um trúnaðarstörf-
um á vegum R-
listans, var til
dæmis formaður
skipulagsráðs,
menningar- og
ferðamálaráðs,
stjórnkerfisnefnd-
ar og hverfisráðs
Árbæjar, þar sem
hann ólst upp.
Sem drengur
fann Dagur
kröftum sínum
viðnám í bæði
handbolta og
fótbolta með
Fylki. Hann hætti
hins vegar að æfa
um það leyti sem
hann hóf nám í Menntaskólann í Reykjavík en
fylgist þó enn með enska boltanum eins og hann
getur, en Dagur er mikill stuðningsmaður
Liverpool.
Í menntaskóla fór Dagur aftur á móti að fá
útrás fyrir athafnaþrá og áhuga á félagsstörfum.
Hann réð ásamt Guðmundi Steingrímssyni
lögum og lofum í gáfumannaklíku skólans og
gegndi Dagur embætti Inspector Scholae á
lokaári. Á menntaskólaárunum kepptu þeir
stundum í ýmiss konar leikum við aðra gáfu-
mannaklíku úr Verzlunarskóla Íslands, en þar
fóru fremstir í flokki Gísli Marteinn Baldursson
og Sigurður Kári Kristjánsson.
Að loknu stúdentsprófi skráði Dagur sig í
læknisfræði við Háskóla Íslands og sýndi enn
meiri lyst á félagsstörfum, þar sem hann leiddi
Röskvu meðal annars til sigurs í háskólakosn-
ingum, auk þess sem hann fann sér tíma til að
rita þriggja binda ævisögu Steingríms Her-
mannssonar.
Konu sinni, Örnu Dögg Einarsdóttur lækni,
kynntist Dagur árið 1998. Arna hefur sagt frá að
fundum þeirra hafi borið saman á nokkuð
sérstakan hátt, en segja má að þau hafi verið
leidd saman af grænu hári. Arna nam læknis-
fræði í Svíþjóð en
Dagur hér á
Íslandi, þar sem
hann var á sama
ári og Hulda
systir Örnu.
Sumarið 1998 bjó
Arna á Íslandi hjá
Huldu systur
sinni, sem vildi
endilega bjóða
Degi í mat og
kynna hann fyrir
systur sinni.
Daginn sem
Dagur átti að
koma í mat fór
Hulda í klippingu
og litun en litunin
mistókst og hár
hennar varð
hálfgrænt. Hún
vildi ekki undir
nokkrum kring-
umstæðum láta
sjá sig þannig og
þurfti því Arna að
taka á móti Degi
og eftir ánægju-
lega kvöldstund
varð ekki aftur
snúið.
Dagur þykir
skarpgreindur og
duglegur, hann á
gott með að koma
fyrir sig orði og
hefur mikla
útgeislun. Hann er
vinsæll meðal
samstarfsmanna
og er þekktur
fyrir sérstakt
skopskyn, „einn
mesti aulabrand-
aramaður sinnar
kynslóðar“, eins
og einn viðmæl-
andi komst að
orði. Margir hafa
horn í síðu hans,
ekki síst þeir sem
eru á öndverðum
pólitískum meiði.
Einn sjálfstæðis-
maður segir að
þótt Dagur sé
klárlega hæfi-
leikaríkur sé
aðalveikleiki hans
fullmikið sjálfsá-
lit, jafnvel hroki.
Hann verði seint
kallaður „maður
fólksins“ og hætti
til að gleyma sér í Morfís- eða menntaskólaleikj-
um í stað þess að tala skýrt og vera málefnaleg-
ur. Þeir sem hafa unnið með Degi segja hann
aftur á móti þægilegan í samstarfi og lofa
dugnað hans. Hins vegar sé pólitísk sýn hans oft
á tíðum óljós og hann hafi tilhneigingu til að bíða
eftir niðurstöðum rýnihópa áður en hann taki
afstöðu í málum.
Dagur tekur við borgarstjóraembættinu við
æði sérstakar aðstæður. Andstæðingar hins nýja
meirihluta eru efins um að fjögurra flokka
stjórn haldi út kjörtímabilið. Dagur á eftir að
sýna sig og sanna, til dæmis að hann geti leikið
það eftir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur að
halda ólíkum flokkum saman í samstarfi, en þau
tvö þykja afar ólíkir karakterar. Hann þykir þó
hafa það fram yfir flokksformann sinn að vera
meiri mannasættir og það geti nýst honum vel í
nýju hlutverki.
Mannasættir sem kann að
meta aulabrandara
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið