Fréttablaðið - 13.10.2007, Page 35
St. John‘s á Nýfundnalandi er
litrík og lífleg borg sem á sér
merka sögu. Þar er hagstætt
að versla, heimamenn eru gest-
risnir og hótelin fyrsta flokks.
Tvær ferðir eru fyrirhugaðar
þangað á vegum Hópferða-
miðstöðvarinnar TREX í
nóvember.
St. John’s á Nýfundnalandi í
Kanada er nútímaleg borg á stærð
við Reykjavík. Hún á sér ríka
sögu sem ein mikilvægasta
hafnarborg á austurströnd
Norður-Ameríku og er töfrandi
blanda gamla og nýja heimsins
sem birtist í aðlaðandi bygginga-
stíl og menningu. Meðal annars
eru keltnesk áhrif mjög ríkjandi.
Líklega er vandfundin sú borg
sem betra er að versla í en í St.
John‘s og þar fyrir utan uppfyllir
hún þær kröfur sem ferðamaður-
inn sækist eftir í borgarferð,
fyrsta flokks hótel, veitingastaði,
spennandi afþreyingu og margt
sem kemur á óvart. Andrúmsloft-
ið er afslappað og gestrisni íbú-
anna einstök.
Haustferðir til St. John’s hafa
verið farnar undanfarin ár á
vegum TREX. Að sögn Kristjáns
Baldurssonar hjá TREX hafa það
verið vinsælar skemmti- og versl-
unarferðir. „Margir hafa farið
aftur og aftur en ferðirnar eru þó
ekki síður fyrir þá sem vilja kynn-
ast nýjum og spennandi ferða-
möguleikum í borgarferðum,“
segir hann.
Að þessu sinni verða tvær ferð-
ir á vegum TREX til St. John’s. Sú
fyrri er frá 17.-21. nóvember og
sú síðari 21.-26 nóvember. Farið
er í beinu leiguflugi með Boeing
757-200 og flugtíminn er aðeins 3-
3,5 klst.
Í boði er gisting á þremur
glæsilegum hótelum, Fairmont
Newfoundland, Marriot sem er
nýtt hótel í miðbænum og Holi-
day Inn sem er stutt frá. Dæmi
um verð með sköttum er kr. 62.800
á mann miðað við tvo á Holiday
Inn, kr. 67.400 á Marriot og kr.
71.900 á Fairmont (fjórar nætur).
Möguleiki er að tengja saman
ferðirnar og dvelja í St. John’s frá
17.-26. nóvember eða í níu daga.
Í boði eru skoðunarferðir um
borgina og nágrenni hennar,
meðal annars á útsýnisstaðinn
Signal Hill, til Cape Spear á aust-
asta odda Norður-Ameríku.
Einnig í jólahúsið og verslunina
Aldenberry Blum. Í seinni ferð-
inni er árleg jólaskrúðganga í St.
John´s sem gaman er að fylgjast
með.
„Í Kanada finnst varla annars
staðar jafn lifandi menning og í
St. John‘s, er birtist í leikhúslífi,
tónlist og hátíðarhöldum, segir
Kristján og bætir því við að fyrir
árshátíðarhópa eða aðra sem þess
óska sé hægt að útvega góða sam-
komusali.
Nú gefst Kanadamönnum færi
á að kaupa flugsæti frá St. John’s
til Íslands og hafa ýmsir hug á að
nýta sér það flug að sögn
Kristjáns. Nánari upplýsingar
eru á www.info@trex.is.
Nýr og gamall
heimur mætast
B e s t i r í D a n m ö r k u
F e r ð a s k r i f s t o f a
Dansk
Julefrokost 2007
í Danmörku
Flugfar og gisting
Julefrokost með
skemmtun og dansi
Frekari upplýsingar á
www.fylkir.is
Sími 456 3745
Einstök áramótaferð til Rússlands þar sem okkur gefst tækifæri til að skoða
frægustu borgir þessa stórbrotna lands. Við fljúgum til Helsinki og gistum þar í
eina nótt áður en haldið er til Pétursborgar, sem án efa er miðstöð menningar
og lista, en margir telja borgina eina af þeim fallegustu í heimi. Gistum í
Pétursborg í 4 nætur og skoðum það markverðasta s.s. Vetrarhöllina, St.
Isaccs dómkirkjuna, höll Katrínar miklu í Pushkin og upplifum kvöldverð að
rússneskum sið með drykkjum í Podvorija. Við kveðjum árið með notanlegum
kvöldverði í Pétursborg og síðan verður sérstakur nýárskvöldverður ásamt
dansleik. Tækifæri gefst til að fara á tónleika áður en haldið er með næturlest
til höfuðborgarinnar þar sem gist er í 2 nætur. Moskvuborg með sínum
vetrarsjarma mun bjóða okkur velkomin en þar bíður okkar skoðunarferð um
Kreml, Rauðatorgið, Tretjakov listasafnið og margt fleira. Saga Rússlands er
heill heimur ævintýra og um leið og við skoðum markverðar byggingar og söfn
skyggnumst við inn í þá veröld. Eftir ánægjulega daga er síðan haldið heim
með beinu flugi frá Moskvu til Íslands.
Fararstjóri: Pétur Óli Pétursson
Verð: 189.800 kr.
28. desember 2007 - 5. janúar 2008
Sp
ör
-
R
ag
nh
ei
ðu
r
In
gu
nn
Á
gú
st
sd
ót
tir
Moskvu
s: 570 2790 www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Áramótaferð til
Pétursborgar og
Ferðaskrifstofa