Fréttablaðið - 02.11.2007, Side 50
2. NÓVEMBER 2007 FÖSTUDAGUR8 fréttablaðið vetrarlíf
SKÍÐAVERTÍÐ HEFST Í HLÍÐARFJALLI Vetur konung-
ur er genginn í garð á Akureyri. Falleg snjódrífa liggur nú yfir Eyjafjarð-
arsvæðinu eftir snjókomu undanfarinna daga. Þá er snjóframleiðslan
hafin í Hlíðarfjalli og snjóframleiðslukerfið látið ganga allan sólarhring-
inn þar sem nú er unnið hörðum höndum að því að gera skíðabrekk-
urnar klárar. Vonast er til að skíðavertíðin geti hafist laugardaginn 10.
nóvember.
www.hlidarfjall.is
Leifur Örn Svavarsson fjalla-
leiðsögumaður hefur farið í
nokkrar gönguskíðaferðir til
Grænlands og rifjar hér upp
sína fyrstu ferð þangað og
upplifunina sem hann varð
fyrir í landinu.
„Íslenskir fjallaleiðsögumenn hafa
boðið upp á skipulagðar göngu-
skíðaferðir til Ammassalik, oft-
ast í kringum páska, og stefnum
við að því að fara í slíka ferð um
næstu páska,“ segir Leifur en að-
eins tekur einn og hálfan klukku-
tíma að fljúga til Grænlands. „Í
fyrstu ferðinni þangað fórum við
beint úr flugvélinni inn í þyrlu
sem flutti okkur
í þorp sem núna
er yfirgefið og
heitir Kandorti-
vit. Skíðunum
á þyrlunni var
bara tyllt niður
og spaðarnir
voru í gangi
meðan við hopp-
uðum út. Síðan
hvarf þyrlan
yfir höfuð okkar
og skildi okkur
eftir í þögn-
inni þar sem við
vorum komin
inn í allt annan menningarheim á
ótrúlega stuttum tíma.“
Leifur segir að á sama tíma og
þyrlan hvarf úr augsýn hafi fólk
á hundasleðum komið inn í þorpið
úr veiði dagsins með fisk og seli
sem gert var að fyrir utan hin
örfáu hús þorpsins, í sólinni og
hvítum snjónum. „Okkur fannst
við vera komin áratugi aftur í
tímann meðan við fylgdumst
með þessu. Það var ekki bara
landslagið sem var öðruvísi en við
eigum að venjast með hvössum
graníttindum og dal- og hvilftar-
jöklum í bröttum fjöllunum, sem
teygja sig sumir alveg niður í sjó.
Öll menning, fólk og tungumál
var þannig að okkur fannst við
vera komin í allt aðra heimsálfu
þrátt fyrir þetta stutta flug,“ segir
Leifur og bætir því við að þetta
hafi verið fyrsta upplifun hópsins
af þessu svæði og hún hafi verið
jafnsterk í hvert skipti sem hann
hafi farið til Grænlands.
„Við höfum lagað ferðir okkar
að breyttum aðstæðum á Græn-
landi því við hlýnun loftslagsins
hefur lagnaðarísinn ekki verið
nægilega traustur til ferða-
mennsku milli þorpa. Nú förum
við því þvert yfir Ammassalik-eyj-
una á landi og gistum alfarið inni
í skálum á leiðinni,“ segir Leifur
og bætir því við að hápunktur
ferðarinnar sé þegar stoppað er
í þorpi við Sermiligaaq-fjörð-
inn. „Það er mjög fallegur stað-
ur þar sem gríðarlega stórir
borgarísjakar berast út fjörðinn.
Við gistum í tvær nætur í þorpinu
þannig að við höfum heilan dag til
að ganga þar um á milli jakanna
og skoða landslagið í kringum
þorpið.“ Leifur segist stundum
velta því fyrir sér þegar hann sitji
úti í snjónum, í sínum hlýjustu
fötum, hvernig í ósköpunum fólk
gat lifað við frumstæðar aðstæð-
ur í þessu loftslagi. „Þarna hefur
fólk búið kynslóð fram af kynslóð
nánast við steinaldarskilyrði þar
til fyrir rúmum hundrað árum,“
segir hann.
„Gönguskíðaferðirnar okkar til
Grænlands eru vikuferðir og há-
marksfjöldi er tólf manns í hverjum
hópi. Við erum með hundasleða
með okkur sem taka allan farangur
þannig að menn ganga bara léttir
með dagsferðarbúnað fyrir dag-
inn,“ segir Leifur og bætir því við
að heilmikið sé fram undan hjá
Íslenskum fjallaleiðsögumönnum
þannig að fólk ætti endilega að
kynna sér ferðamöguleikana jafnt
innanlands sem utan.
sigridurh@frettabladid.is
Gengið um Grænland
Grænland er kjörið til skíðagöngu þar sem yfirleitt er bjart og stillt veður svo útsýni
er gott að öllu jöfnu. MYND/LEIFUR ÖRN SVAVARSSON
Hundasleðarnir eru gríðarlega mikið notaðir á Grænlandi enda einn fárra farkosta sem nýtilegir eru í landinu.
MYND/LEIFUR ÖRN SVAVARSSON
Borgarísjakarnir geta verið geysifallegir þar sem þeir gnæfa upp úr sjónum.
MYND/LEIFUR ÖRN SVAVARSSON
Leifur Örn Svavars-
son fjallaleiðsögu-
maður hefur farið
nokkrum sinnum
til Grænlands og
segir upplifunina
jafnsterka í hvert
skipti.