Fréttablaðið - 02.11.2007, Page 82

Fréttablaðið - 02.11.2007, Page 82
Afmælissýningin „George Michael í 25 ár“ var frumsýnd á Broadway um helgina og hefur fengið góða dóma. „Ég er búinn að vera í uppákomum á Broadway í fjögur ár og hef aldrei upplifað annað eins,“ segir Friðrik Ómar Hjörleifsson, sem syngur lög George Michael í sýningunni. „Fólk var farið að dansa uppi á stólum fyrir hlé og það hef ég aldrei séð. Viðbrögðin komu okkur gjörsamlega í opna skjöldu. Við vorum búin að halda þessu mikið til fyrir okkur og fengum smá svartsýniskast nokkrum dögum fyrir frumsýningu eins og gengur. Það reyndist sem betur fer óþarft.“ Friðrik Ómar hlær þegar hann er spurður að því hvort konur í salnum hafi rifið sig úr nærklæðunum og fleygt þeim upp á svið. „Já, já, bæði konur og karlar.“ Friðriki til halds og trausts er X-Factor sigurvegarinn Jógvan Hansen. „Ég valdi hann með mér af því við erum jafnháir,“ segir Friðrik Ómar og skellir upp úr. „En svona í alvöru talað þá kom enginn annar til greina. Jógvan er frábær strákur.“ Tuttugu manns eru á sviðinu á Broadway þegar mest er; dansarar og söngvarar. „Við tókum vissa áhættu þegar við ákváðum að gera ekki hefðbundna Broadway-sýningu,“ segir Friðrik. „Við notum bæði grafík og myndbönd og lögin spanna tímabilið frá Wham! og fram til dagsins í dag. Fólk fær eitthvað fyrir allan peninginn.“ Annars er nóg að gera hjá Friðriki Ómari, sem syngur á balli eftir hverja sýningu með Guðrúnu Gunnarsdóttur, er að gefa út plötu og fékk sína fyrstu íbúð afhenta á dögunum. „Ég bý í Norðurmýrinni en er að fara að færa mig í 101 og hlakka mikið til,“ segir Friðrik Ómar, sem er í sambúð. „Nú er bara að drífa sig í málningargallann og fara að leggja parkett.“ Áhorfendur upp á stóla fyrir hlé Ítalski stórsöngvarinn Andrea Bocelli fór á kostum í Egilshöll í fyrrakvöld fyrir framan á sjötta þúsund áhorfendur. Söng hann öll sín frægustu lög, þar á meðal Con te partió sem margir þekkja sem Time to Say Goodbye. Alls kom yfir eitt hundrað manna fylgdarlið með Bocelli til Íslands, þar á meðal 78 manns úr Tékk- nesku sinfóníunni. Bocelli er margverðlaunaður tenór og einn söluhæsti tónlistarmaður heims síðustu ár, enda kunnu íslensku áhorfendurnir vel að meta undur- fagra rödd hans. Fyrrverandi fegurðarkóngurinn Óli Geir Jónsson hefur ákveðið að opna skemmtistaðinn Breiðina á Akranesi á nýjan leik ásamt eig- anda Trix í Keflavík. „Ég er skemmtanastjóri Trix og verð yfir Breiðinni líka,“ segir Óli Geir. „Þetta er 700 fermetra staður sem ég vissi að væri laus. Það er bara einn lítill skemmtistaður á Akra- nesi fyrir og það er grundvöllur fyrir öðrum.“ Óli Geir er þó ekki að fara út í miklar fjárfestingar vegna nýja staðarins því húsið verður tekið á leigu af núverandi eiganda þess. „Það þarf að taka þetta aðeins í gegn. Ég verð þarna að hjálpa til, smíða DJ búr og þess háttar. Við verðum með opnunar- partí hinn 17. nóvember og ég ætla að spila sjálfur þá. Svo byrj- um við þetta á fullu með Á móti sól og Páli Óskari þar á eftir. Þetta verða bara endalaus partí og ham- ingja.“ Óli Geir segist þó ekki ætla að flytja upp á Akranes enda ætlar hann að halda áfram starfi sínu sem skemmtanastjóri Trix. Hann segir að Breiðin verði opin allar helgar. „Ég veit lítið um það hverj- ir hafa stjórnað þessu og hvernig. Við höfum allavega trú á þessu enda förum við okkar eigin leið- ir,“ segir hann. Opnar skemmtistað á Akranesi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.