Fréttablaðið - 02.11.2007, Qupperneq 90
Keflavíkurliðið er enn
taplaust í Iceland Express-deild
karla í körfubolta eftir að hafa
valtað yfir ÍR suður með sjó í gær-
kvöldi. ÍR hélt í við Keflavík fram-
an af en sigurinn var á endanum
mjög öruggur, 110-79.
Keflvíkingar höfðu frumkvæðið
í fyrri hálfleik og voru alltaf skrefi
á undan. ÍR-ingar misstu þá aldrei
langt frá sér fyrr en í upphafi
annars leikhluta þegar heima-
menn náðu tíu stiga forystu. Bar-
áttuglaðir Breiðhyltingar unnu þó
upp muninn aftur en góður leik-
kafli Keflvíkinga undir lok fyrri
hálfleiks skilaði þeim þó þrettán
stiga forystu í hálfleik, 52-39.
Í seinni hálfleik réðu Keflvík-
ingar gangi leiksins þar sem þeir
juku muninn jafnt og þétt. Bikar-
meistarar ÍR réðu lítið við hraðan
leik Keflavíkur og munurinn orð-
inn nítján stig við upphaf loka-
fjórðungsins. Spurningin í fjórða
leikhluta var einungis hversu stór
sigur Keflavíkur yrði, sem varð á
endanum þrjátíu og eitt stig.
Sigurður Ingimundarson, þjálf-
ari Keflavíkur, hrósaði vörninni
mikið. „Við vorum að spila rosa-
lega góða vörn hérna í dag. Hún
skilaði okkur auðveldum stigum
og því fór sem fór,“ sagði Sigurður,
sem sagði ÍR-inga þó alltaf bar-
áttuglaða. „ÍR berst alltaf mikið
og þeir voru að fá nýjan útlending
þannig það er kannski ekki mikið
að marka þennan leik hjá þeim.
Stigaskorið dreifðist vel hjá okkur
og því var erfitt fyrir þá að vita
hvern þeir áttu að dekka.“ Hann
spáir ekki mikið í sigrana fimm.
„Mótið er svo nýbyrjað að það
skiptir engu máli núna hvað við
erum búnir að vinna marga leiki,“
sagði Sigurður að lokum.
ÍR-ingar engin fyrirstaða fyrir Keflvíkinga
Íslandsmeistarar KR
halda áfram að gera Njarðvíkinga
gráhærða með ævintýralegum
sigrum gegn grænu ljónunum.
Helgi Már Magnússon sendi
Njarðvíkinga tómhenta heim úr
Vesturbænum í gær er hann sökkti
ótrúlegri þriggja stiga körfu um
leið og leiktíminn rann út í gær.
Það verður að segjast eins og er
að fyrri hálfleikur stóð ekki vænt-
ingum. Áhorfendur voru færri en
vonast hafði verið til og öll stemn-
ing var talsvert róleg. Hún skilaði
sér inn á völlinn þar sem leikmenn
voru fullrólegir í tíðinni. Sú ákefð
og grimmd sem maður átti von á
var víðsfjarri allan hálfleikinn og
leikurinn hægur og ekki sérstak-
lega vel spilaður.
KR tók fljótlega frumkvæðið í
fyrsta leikhluta, þökk sé góðum
leik Helm sem skoraði 11 stig í
leikhlutanum og Darra sem setti
niður tvær þriggja stiga körfur.
Meistararnir leiddu þrátt fyrir
það aðeins með einu stigi eftir
fyrsta leikhlutann, 20-19. KR var
áfram ívið grimmari aðilinn þó
svo Vesturbæingar væru fjarri
því að þurfa róandi. Njarðvíking-
ar voru ragir, leituðu stanslaust
inn í teiginn og ógnin að utan var
engin hjá þeim. Munurinn í leik-
hléi var sex stig, 43-37, og áhorf-
endur fegnir því að komast í flat-
bökurnar enda röðin orðin löng
áður en fyrri hálfleikur var allur.
Það segir sína sögu.
Þriðji leikhluti var einvígi á
milli Fogel og Long framan af sem
skoruðu grimmt. Stóru mennirnir
hjá Njarðvík – Egill og Friðrik –
komu svo sterkir inn með þriggja
stiga körfum og það kveikti í gest-
unum, sem náðu frumkvæðinu og
þeir héldu því til loka leikhlutans.
Munurinn tvö stig þegar einn
fjórðungur var eftir, 65-67.
Vörn KR small í gírinn í fjórða
leikhluta og fyrir vikið náði KR
strax fínni forystu, 74-67. Fyrsta
karfa Njarðvíkinga kom ekki fyrr
en fjórar og hálf mínúta voru liðn-
ar af leikhlutanum en þá setti
Sverrir niður þrist. Það reyndust
vera einu stig Njarðvíkinga í sex
mínútur af leikhlutanum en það
kviknaði svo um munaði á þeim
grænu undir lokin.
Þeir komust yfir, 77-78, þegar
lítið var eftir af leiknum og loka-
mínúturnar voru æsispennandi
þar sem aðeins munaði stigi á lið-
unum. Egill kom þeim í 79-80 og
Fogel klikkaði í næstu sókn. KR
braut á Jóhanni, sem fór á línuna
þegar aðeins sjö sekúndur voru
eftir. Hann skoraði úr öðru vítinu,
79-81. KR tók leikhlé, Brynjar
brunaði síðan upp og gaf niður í
hornið á Helga Má, sem setti niður
körfuna þó svo að Long bryti á
honum.
„Þetta var algjör grísakarfa,“
sagði Helgi Már brosmildur í
leikslok. „Hann varði frá mér
fyrsta skotið mitt í leiknum og ég
skaut því hátt og hann endaði ofan
í. Ég tek það. Þetta var ljúft en við
þurfum að bæta mikið fyrir Kefla-
víkurleikinn.“
Teitur Örlygsson, þjálfari Njarð-
víkur, var eðlilega svekktur. „Þetta
var alveg ógeðslega svekkjandi og
verra að geta ekkert gert í þessu
síðan,“ sagði Teitur, sem bar engu
að síður höfuðið hátt. „Ég er hrika-
lega ánægður með strákana, sem
voru komnir með leikinn en það
var lítið við þessari körfu að gera.
Við sýndum samt í leiknum að við
erum meðal þeirra bestu.“
Helgi Már Magnússon tryggði Íslandsmeisturum KR ævintýralegan sigur á Njarðvík, 82-81, með þriggja
stiga körfu um leið og leiktíminn rann út. Brotið var á Helga í skotinu en boltinn fór samt ofan í körfuna.
Breski íþróttamálaráð-
herrann Gerry Sutcliffe gagn-
rýndi laun atvinnuknattspyrnu-
manna í gær.
„Ég óska Johns Terry góðs
gengis en ég tel það vera
fáránlegt að hann sé að fá 150
þúsund pund í laun á viku,“ sagði
Sutcliffe, sem er nýtekinn við, en
Terry fær rúmar átján milljónir
íslenskra króna í laun á viku
samkvæmt nýjum samningi við
Chelsea.
Íþróttamálaráðherrann talaði
enn fremur um að fótboltamenn
ættu í mikilli hættu á að fjar-
lægjast venjulegt fólk og
einangra sig frá öðrum á
Bretlandi yrði þróunin áfram í
sömu átt.
Leikmenn fá fá-
ránlega há laun
Iceland Express-deild karla: