Fréttablaðið - 05.11.2007, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 05.11.2007, Blaðsíða 38
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919 SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000 7 7 12 16 14 7 12 16 12 14 BALLS OF FURY kl. 8 - 10 EASTERN PROMISES kl. 10 DARK IS RISING kl. 6 - 8 THE HEARTBREAK KID kl. 6 7 16 7 12 16 12 14 THIS IS ENGLAND kl.6 - 8 - 10 ROUGE ASSASSIN kl.5.50 - 8 - 10.10 SUPERBAD kl.5.30 - 8 - 10.30 GOOD LUCK CHUCK kl.5.40-8 - 10.20 BALLS OF FURY kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10 BALLS OF FURY LÚXUS kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10 ÆVINTÝRAEYJA IBBA 600 KR. kl. 4 - 6 DARK IS RISING kl. 3.45 - 5.50 - 8 THE HEARTBREAK KID kl. 5.30 - 8 - 10.30 RESIDENT EVIL 3 kl. 10.10 GOOD LUCK CHUCK kl. 8 - 10.10 HÁKARLABEITA 600 KR. kl. 3.50 !óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu BALLS OF FURY kl. 6 - 8 -10 ELIZABETH: THE GOLDEN AGE kl. 5.30 - 8 - 10.30 EASTERN PROMISES kl. 8 - 10.20 SYNDIR FEÐRANNA kl. 6 - 10.20 VEÐRAMÓT kl. 5.40 - 8 ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST "Virkilega vönduð!" - Á.J., DV HÖRKU HASARMYND MEÐ HEITUSTU TÖFFURUNUM Í DAG, SVAKALEG SPENNA FRÁ UPPHAFI TIL ENDA www.SAMbio.is 575 8900i i AKUREYRIÁLFABAKKA SELFOSSI KEFLAVÍK KRINGLUNNI VEÐRAMÓT kl. 8 14 THE KINGDOM kl. 8 16 3:10 TO YUMA kl. 10:10 16 HALLOWEEN kl. 10:10 16 HEARTBRAKE KID kl. 8 - 10:20 12 GOOD LUCK CHUCK kl. 8 L THE KINGDOM kl. 10:10 10 ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl tali kl. 6 L MICHAEL CLAYTON kl. 8 7 STARDUST kl. 5:50 10 THE INVASION kl. 8 16 MICHAEL CLAYTON kl. 5:30 - 8 - 10:30 7 MICHAEL CLAYTON kl. 8 - 10:30 THE GOLDEN AGE kl. 5:30 - 8 - 10:30 12 THE INVASION kl. 8 - 10:30 16 THE INVASION kl. 5:30 ÍÞRÓTAHETJAN M/- ÍSL TAL kl. 6 L HEARTBRAKE KID kl. 8 12 THE BRAVE ONE kl. 10:30 16 STARDUST kl. 5:30 - 8 - 10:30 10 ASTRÓPÍÁ kl. 6 L MICHAEL CLAYTON kl. 8 - 10:30 7 THE INVASION kl. 10:10 16 DARK IS RISING kl. 6 7 ÍÞRÓTAHETJAN M/- ÍSL TAL kl. 6 L IN THE LAND OF WOMEN kl. 5:50 - 8 L THE KINGDOM kl. 8 - 10:10 10 - bara lúxus Sími: 553 2075 ROGUE ASSASSIN kl. 6, 8 og 10-POWER 16 ÆVINTÝRAEYJA IBBA kl. 6 - 600 kr L EASTERN PROMISES kl. 5.45, 8 og 10.15 16 THE HEARTBREAK KID kl. 8 og 10.15 12 LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR www.laugarasbio.is - Miðasala á H Ö R K U H A S A R Söngkonan Regína Ósk hefur sent frá sér plötuna Ef væri ég …, sem er þriðja sólóplata henn- ar á þremur árum. „Þetta er auðvitað mjög mikil vinna en ef maður hefur eitthvað að segja og gera þýðir ekkert að stoppa,“ segir Regína um þessi miklu afköst sín. „Þetta eru mjög ólíkar plötur allt saman. Sú fyrsta var algjörlega með „cover“-lögum og önnur platan var með nýjum lögum eftir aðra höfunda. Þessi var síðan með nýjum lögum eftir mig og Kalla,“ segir hún. Á plötunni eru þrettán lög eftir Regínu og Karl Olgeir Olgeirs- son. Sum sömdu þau saman síð- asta sumar á meðan önnur lög eru eldri. Fjalla textarnir um móðurástina, ástina, lífið og til- veruna. „Ég og Kalli erum búin að þekkjast í mörg ár og vinna í ýmsum verkefnum saman. Þetta samstarf var sjálfsagt framhald af síðustu plötu því hann átti tvö lög á henni og líka eitt með mér og Barða Jóhannssyni,“ segir hún. Ef væri ég … er ákaflega hug- ljúf plata þó svo að rokk og diskó leynist þar á milli. „Þarna er smá drama og söngur um ástina og lífið. Þú getur séð á þessari plötu að mér líður bara vel. Á maður ekki að endurspegla á svona plötu hvernig manni líður?“ Regína Ósk ætlar ekki að halda útgáfutónleika vegna plötunnar en í staðinn verður hún með útgáfupartí þar sem hún mun fagna gripnum ásamt vinum og vandamönnum. Endurspeglar góða líðan Söngvarinn Meat Loaf kom öllum að óvörum á miðjum tónleikum sínum í New- castle á dögunum þegar hann sagðist vera hættur í bransanum fyrir fullt og allt. „Ég get ekki haldið áfram. Þetta eru síðustu tónleikarnir sem ég held á ævinni,“ sagði Meat Loaf, skömmu áður en hann var fluttur í burtu í sjúkrabíl. Einn tónleikagestanna, Phil Cammish, sagði í viðtali við heima- síðuna timesonline að kappinn hefði verið í tómu rugli. „Öllum á tónleikunum fannst hann vera utan við sig. Hann lét tilfinningarnar bera sig ofurliði og sagði sögur af börnunum sínum. Hann sagði hluti sem komu tónleikunum ekkert við,“ sagði hann. „Bakraddasöngv- ararnir þurftu að aðstoða hann við að klára sum lögin. Hann gat ekki sungið frægustu lögin sín.“ Blaðafulltrúi hins sextuga Meat Loaf segist vona það besta. „Hann á það til að lenda í vandræðum. Hann hrundi niður á sviði á Wemb- ley fyrir nokkrum árum með hjartatruflanir,“ sagði hún og bætti við að samkvæmt læknis- ráði ætti súrefniskútur að fylgja honum á tónleikum. „Ég held að þetta hafi bara verið ein af þess- um Meat Loaf-stundum. Hann er ekki 25 ára lengur.“ Skipuleggjandi tónleikaferðar Meat Loaf um Bretland vonast til að hann geti haldið áfram með túr- inn. „Ég talaði við lækninn og hann þjáðist bara af mikilli streitu. Hann á eftir að jafna sig.“ Bandaríkjamaðurinn Meat Loaf sló í gegn með plötunni Bat Out of Hell sem kom út árið 1977. Hafði hún að geyma slagarana You Took the Words Right Out of My Mind, Paradise by the Dashboard Light, Two Out of Three Ain´t Bad og tit- illagið Bat Out of Hell. Hefur hún selst í yfir 37 milljónum eintaka. Eftir langt hlé frá sviðsljósinu sneri hann aftur með Bat Out of Hell: Back Into Hell árið 1993 sem náði einnig miklum vinsældum, aðallega fyrir tilstuðlan ballöðunn- ar I´d Do Anything For Love. Meat Loaf hefur einnig reynt fyrir sér í leiklistinni og fór meðal annars með hlutverk í The Rocky Horror Picture Show og Fight Club. Mæðgurnar Ingibjörg Reynisdótt- ir og Lovísa Rós Þórðardóttir, sem er fjórtán ára, hafa gefið út ungl- ingabókina Strákarnir með stríp- urnar sem er þeirra fyrsta skáld- saga. Hugmyndin að bókinni kom fyrst upp í fyrravetur. „Þetta var hugmynd sem dúkkaði upp þegar við vorum í sundi einhvern dag- inn. Þá fórum við að diskútera þetta og út frá því hófst hug- myndavinna þar sem við vorum að kasta á milli okkar hugmyndum,“ segir Ingibjörg. „Svo hættum við og þetta lá í salti rosalega lengi. Síðan rúmu ári seinna fórum við og unnum þetta enda var þetta búið að gerjast svo lengi í hausnum á okkur.“ Ingibjörg, sem skrifaði textann á meðan Lovísa Rós veitti henni ráðleggingar, segir að þær mæðgur hafi náð vel saman. „Það var aldrei neinn stór ágreiningur og við vorum mjög lýðræðislegar. Við þurftum kannski aðeins að þræta því ég átti það til að fara á flug og fara út fyrir rammann sem við höfðum talað um. En hún var oftast hrifin af þessu sem ég skrif- aði.“ Við gerð bókarinnar töluðu þær mæðgur við krakka sem þær þekktu til að kynnast betur hugar- heimi unglinga, auk þess sem Lov- ísa lagði sitt af mörkum. „Þó svo að manni finnist stutt síðan maður var unglingur og eigi unglinga þá var voða gott að hafa ungling með sér til að vita betur um það sem er að gerast,“ segir Ingibjörg, sem er leikkona að mennt. Hún hefur áður skrifað leikverkið Móðir mín dóttir mín sem sett var upp í Hafn- arfjarðarleikhúsinu árið 2005. Einnig hefur hún leikið í kvik- myndum, sjónvarpi og á sviði. Mæðgur skrifa unglingabók

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.