Fréttablaðið - 05.11.2007, Side 48
Hugmyndir manna um „frelsi“ eru ákaflega mismunandi.
Íslensk orðabók handa skólum og
almenningi segir að frelsi sé
„sjálfstæði, frjálsræði“ sem bend-
ir til þess að Íslendingar haldi að
frelsi sé sjálfsagður hlutur sem
hvorki þurfi að skilja né skil-
greina. Orðabók Cambridge-
háskóla kafar aðeins dýpra og
segir að frelsi sé „réttur til að geta
eða mega segja, hugsa o.s.frv.
hvað sem þú vilt, án eftirlits eða
takmarkana“.
virðast
menn hafa áhuga á að draga
umræðu um frelsi niður á það plan
að nefna „frelsi“ í sömu andrá og
rætt er um hvort það samræmist
þjóðarhagsmunum að veita mat-
vörukaupmönnum heimild til að
versla með áfengi.
vita eitt og annað um
frelsi enda var frelsi okkar hinna
skírt í því blóði sem úthellt var í
frönsku stjórnarbyltingunni – sem
snerist að vísu ekki um að afnema
ríkiseinkasölu á áfengi – en það er
önnur saga. Frakkar vita manna
best að hóflega drukkið vín gleður
mannsins hjarta og þar að auki
vita þeir að áfengi í hófi getur
verið hjartastyrkjandi í læknis-
fræðilegum skilningi, samanber
að í vínræktarhéruðunum Búrg-
únd og Bordeaux er tíðni hjarta-
sjúkdóma minni en víða annars
staðar.
Búrgunda
og Bordeaux-manna er samt dýru
verði keypt segir Pierre Knopp,
sem er prófessor í hagfræði við
Sorbonne-háskóla, því að kostnað-
ur þjóðfélagsins vegna áfengis-
neyslu nemur einu og hálfu pró-
senti af vergri þjóðarframleiðslu.
Til samanburðar kostar sá frægi
heilsuskaðvaldur tóbakið um eitt
komma eitt prósent af sömu upp-
hæð og áætlaður kostnaður vegna
harðrar eiturlyfjaneyslu nemur
aðeins broti úr prósenti.
skyldi maður ætla að jafnvel
römmustu frjálshyggjupostular
hefðu dregið þá ályktun af þessum
útreikningum prófessors Knopps
að skynsamlegt væri fyrir þjóðar-
hag að draga úr áfengisneyslu. Sú
var þó ekki raunin. Ályktunin sem
þeir drógu var sú að það kynni að
vera heillaráð að lögleyfa eiturlyf
úr því að heilsufarstjón af þeirra
völdum í krónum talið væri svona
lítið.
Frakkar, frelsið
og áfengið