Fréttablaðið - 12.11.2007, Síða 47

Fréttablaðið - 12.11.2007, Síða 47
Lögfræðingur Kevins Federline, fyrrverandi eigin- manns Britney Spears, segir að Britney hafi ekki brugðist við á réttum tíma í átta tilfellum af fjór- tán þegar hún átti að gangast undir eiturlyfjapróf. Hún hefur auk þess verið áminnt þrisvar sinnum af dómaranum, Scott Gordon, fyrir að ekki sé hægt að ná í hana í síma. Lögfræðingur Spears, Anne Kiley, hefur látið hafa eftir sér að eiturlyfjaprófin séu ekki í anda stjórnarskrár Bandaríkjanna og bætti því við að þótt söngkonan hafi ekki tekið prófin þýði það ekki að hún sé að nota eiturlyf. Britn- ey hefur ekki nema klukku- stund frá því fyrirskipunin kemur til þess að mæta í prófin. Kiley bætti því auk þess við að tíu sinnum hafi Spears staðist slík próf. Hún sagði ástæð- una fyrir örum skiptum Spears á síma- númerum vera þá að símanúmerið hennar félli oft í rangar hendur og því neyddist hún til að fá sér nýtt númer með reglulegu milli- bili. Britney úti á þekju Leikarinn Tómas Lem- arquis er búsettur í Berlín um þessar mundir en hann lauk nýverið við að leika að- alhlutverkið í kvikmyndinni Luftbusiness í leikstjórn svissneska leikstjórans Dominique de Rivaz. „Myndin var tekin upp í Lúxem- borg og fjallar um þrjá stráka sem búa nánast á götunni og lifa á smá- djobbum eins og að labba með hunda fyrir ríka fólkið,“ segir Tómas en reiknað er með að mynd- in komi fyrir augu áhorfenda næsta vor. „Svo frétta þeir af því að á net- inu geti þeir selt sig til þess að græða peninga.“ Myndin er á þýsku og Tómas eyddi níu mánuð- um í að undirbúa sig fyrir hlut- verkið með því að læra þýskuna. „Ég var allt síðasta ár í Berlín og er kominn hingað aftur núna. Ég kunni ekki orð í þýsku áður en tala málið ágætlega núna þótt ég sé ennþá með hreim. Mér líkar mjög vel hérna og bý í stórkostlegri íbúð með frönskum vini mínum sem starfar sem ljósmyndari.“ Tómas situr ekki auðum hönd- um þótt tökum á myndinni sé lokið því hann er að vinna að heimildar- mynd um myndlistarmanninn Ketil Larsen, undirbýr sig fyrir hlutverk í spænskri mynd og er að fara að halda myndlistarsýningu í Berlín. „Myndin um Ketil er ekki alveg tilbúin. Okkur vantar fjár- magn en erum á lokasprettinum. Ólöf Arnalds er að vinna að tón- listinni og myndin gæti verið til- búin strax í desember ef fjáröfl- unin gengur vel. Annars er ég að undirbúa myndlistarsýningu í ungu galleríi hér í Berlín og fer auk þess í ræktina á hverjum degi til þess að undirbúa mig fyrir hlut- verk í spænskri mynd sem verður tekin upp næsta sumar. Þar þarf ég að vera í góðu líkamlegu formi,“ segir Tómas en myndin fjallar um mann sem hefur ekki líkamlegar tilfinningar og skynjar þar af leið- andi ekki sársauka. „Þar þarf ég að tala spænsku en þarf ekki að læra hana eins vel og þýskuna enda er hlutverkið frekar þögult.“ Hann segir að auk þessa sé ýmis- legt í burðarliðnum, kvikmyndir í bæði Austurríki og Frakklandi, þótt hann vilji sem fæst orð um það hafa. „Maður er bara rólegur á meðan hlutirnir eru á byrjunar- stigi enda er kvikmyndagerð besti skóli í þolinmæði sem ég hef fund- ið hingað til.“

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.