Fréttablaðið - 12.11.2007, Blaðsíða 48
Árangur íslensku
keppendanna á alþjóðlega bad-
mintonmótinu Iceland Express
International sem lauk í gær var
mjög góður og stjarna mótsins var
Ragna Ingólfsdóttir sem vann tvö
gull í einliðaleik og tvíliðaleik.
Síðasti leikur mótsins var mest
spennandi úrslitaleikurinn en þar
unnu Ragna og Katrín Atladóttir
þær Söru Jónsdóttur og Tinnu
Helgadóttur í jöfnum og skemmti-
legum leik.
Ragna Ingólfsdóttir fylgdi eftir
sigri á opna ungverska mótinu um
síðustu helgi með því að vinna
einliðaleikinn með sannfærandi
hætti. Ragna vann alla leiki sína 2-
0 og í úrslitaleiknum vann hún
dönsku stelpuna Trine Niemeier
21-11 og 21-3. Aðeins klukkutíma
seinna var Ragna mætt í annan
úrslitaleik þar sem að hún tryggði
sér sitt annað gull, nú í tvíliðaleik
kvenna. Það þurfti því að leika
oddalotu til að knýja fram úrslit í
leiknum og hana sigruðu þær
Ragna og Katrín 21-17. „Ég er eig-
inlega alveg búin og gat varla spil-
að þessa oddalotu,“ sagði Ragna
eftir að sigurinn var í höfn.
„Ég er ótrúlega ánægð og mjög
sátt með helgina. Ég bjóst eigin-
lega ekki við þessu. Ég vann þetta
mót í fyrra og varð í öðru sæti í
tvíliðaleiknum og það var erfitt að
koma inn í svona mót og þurfa að
verja titilinn,“ sagði Ragna sem
var ánægð með stuðninginn. „Sal-
urinn var ótrúlega mikið með mér
og það er erfitt fyrir hina spilar-
ana að spila undir slíku. Fólk var
duglegt við að hvetja mig og það
skipti miklu máli. Ég hélt líka ein-
beitingu allan tímann þrátt fyrir
að vera komin langt yfir.“
Ragna þakkar breyttu hugarfari
góðan árangur að undanförnu.
„Ég var orðin svolítið stressuð
um hvort að ég myndi halda mér
inni á Ólympíuleikunum eftir að
ég meiddist. Ég fór til Einars
Gylfa sálfræðings og hann kenndi
mér að hugsa öðruvísi og það var
bara viku fyrir Unvgerjaland. Ég
byrjaði strax að hugsa um það sem
hann sagði og í Ungverjalandi
gekk þetta alveg upp. Það var gott
að fá svona utanaðkomandi hjálp
því maður fattar það ekki alltaf
sjálfur hvað er að. Ég var í góðu
formi og búin að spila mikið
þannig að það var ekki líkaminn
sem var að halda aftur að mér,“
sagði Ragna.
Árni Þór Hallgrímsson, lands-
liðsþjálfari var ánægður með
mótið. „Ég er sérstaklega ánægð-
ur með stelpurnar. Það var óvænt
að fá tvö íslensk lið í úrslit í tví-
liðaleiknum,“ sagði Árni sem gat
ekki neitað því að afrek Rögnu
stæði upp úr.
„Ragna er búin að vera að
ströggla í haust en þetta er allt að
smella hjá henni. Hún er núna
farin að hlaupa og hreyfa sig eins
og hún gerði áður og núna nær
hún þessum boltum við netið sem
hefur verið vandamál hjá henni í
haust. Það er frábært hjá henni að
vinna tvö mót í röð og ekki síður
að leggja þrjár danskar stelpur.
Við höfum oft átt í erfiðleikum
með Danina því við höfum borið
mikla virðingu fyrir þeim. Mér
fannst í leikjunum hjá Rögnu á
móti dönsku stelpunum að þær
báru alveg gríðarlega virðingu
fyrir Rögnu og náðu kannski ekki
sínu besta og það var eins og þetta
hefði snúist við,“ sagði Árni Þór
eftir mótið.
Ragna Ingólfsdóttir vann bæði einliðaleik og tvíliðaleik á alþjóðlega badmin-
tonmótinu Iceland Express International. Ragna vann alla átta leiki sína og 16
af 17 lotum en var gjörsamlega búin í mótslok eftir erfiða en ánægjulega helgi.
Maurice verður orðinn skuggalegur eftir áramót
Ragna Ingólfsdóttir
sýndi mikið öryggi á leið sinni að
gullinu á alþjóðlega badminton-
mótinu Iceland Express Inter-
national. Ragna vann sannfær-
andi sigur og sýndi hversu
öflugur spilari hún er orðin.
Ragna segist hafa lagt áherslu
á að hugsa um einn leik í einu en
það var einkum einn leikur sem
hún var stressuð fyrir.
„Ég vissi að ef ég myndi vinna
fyrstu þrjá leikina þá myndi ég
spila undanúrslitaleik við vin-
konu mína frá Eistlandi sem var
raðað númer tvö í mótið. Það var
svolítið erfitt því við erum alltaf
saman í herbergi úti. Ég var svo-
lítið stressuð fyrir þann leik en
var alveg róleg fyrir úrslitaleik-
inn,“ sagði Ragna sem vann vin-
konu sína Kati Tolmoff 21-14 og
21-5 og tryggði sér þar með sæti
í úrslitaleiknum þar sem hún
sigraði auðveldlega danska
stúlku.
Var bara stressuð
fyrir einn leik
Eftir ótrúlega lélegan
fyrri hálfleik Stjörnunar í EHF
keppni kvenna í handbolta í gær
gegn franska liðinu Mios Biganos
áttu þær hreint frábæran seinni
hálfleik og voru nálægt því að
tryggja sér farseðilinn í 16-liða
úrslit. Þær unnu upp níu marka
forystu en þurftu að sætta sig við
eins marks tap, 29-30.
Fyrri hálfleikur Stjörnunar var
martröð. Þær skoruðu fyrsta
markið en það var í eina skiptið í
langan tíma sem þær áttu eftir að
leiða leikinn. Þegar munurinn var
orðinn fjögur mörk, 9-13, var eins
og Stjarnan biði eftir að flautað
væri til hálfleiks á meðan Mios
raðaði inn mörkunum á auðveldan
hátt. Þegar hálfleiksflautan gall
loksins var munurinn orðinn níu
mörk, 10-19.
Það var auðvelt fyrir Stjörnuna
að gera aðeins betur í seinni hálf-
leik enda fordæmið úr fyrri hálf-
leik ekki til að hrópa húrra fyrir.
Þegar munurinn var orðinn sjö
mörk, 18-25, var eins og Stjarnan
mætti loks til leiks. Vörnin hrökk
þá heldur betur í gang og Grecu
fór að verja í markinu, þær skor-
uðu sjö mörk í röð og jöfnuðu leik-
inn 25-25.
Spennustigið í húsinu var orðið
mjög hátt undir lokin á meðan
Stjarnan gerði það sem hún gat til
að ná forystunni sem hún þurfti.
Þær náðu eins marks forystu
undir lokin, 29-28, og áttu mögu-
leika á að bæta við markinu sem
til þurfti en létu verja frá sér á
ögurstundu. Mios fór upp hinum
megin og kláruðu leikinn með
marki og eins marks sigri, 29-30.
Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari
Stjörnunnar, sagði liðið sitt bara
hafa leikið þrjá hálfleiki af fjórum
gegn franska liðinu. „Evrópuleikir
eru fjórir hálfleikar og því miður
leikum við ekki nema þrjá í þessu
einvígi. Það getur verið að einhver
þreyta að hafi spilað inn í en vilja-
leysið á tímabili í leiknum var
fyrir neðan allar hellur,“ sagði
Aðalsteinn við Fréttablaðið eftir
leik og bætti við. „Við höfum lent í
þessu áður og þetta er eitthvað
sem við þurfum að læra en samt
sem áður grátleg niðurstaða.“
Spiluðum bara þrjá fjórðunga