Fréttablaðið - 15.11.2007, Blaðsíða 82
N1 deild karla í handbolta
Eimsbikar kvenna
Þýski handboltinn
Iceland Express kvenna
Haukamenn og Vals-
menn skildu jafnir, 22-22, í spenn-
andi og skemmtilegum leik á
Ásvöllum í N1-deild karla í gær-
kvöldi.
Haukar höfðu forystuna nánast
allan tímann en Valsmenn hristu
af sér slenið í seinni hálfleik og
gátu alveg eins tekið bæði stigin.
Jón Karl Björnsson virtist vera
búinn að skora sigurmark Hauka
fjórtán sekúndum fyrir leikslok
með sínu eina skoti í leiknum
þegar hann skoraði af öryggi úr
vítaskoti. Valsmenn, sem höfðu
unnið upp fimm marka forskot
Hauka frá því í fyrri hálfleik,
voru hins vegar ekki á því að fara
tómhentir heim. Þeir tóku hraða
miðju og Baldvin Þorsteinsson
skoraði jöfnunarmarkið með
snúningi úr mjög erfiðri stöðu
fjórum sekúndum fyrir leikslok.
Haukarnir reyndu að skora sigur-
markið en tíminn var of naumur
og þeir náðu ekki góðu skoti.
Valsliðið breytti stöðunni úr 18-
14 í 19-20 á 13 mínútna kafla um
miðjan seinni hálfleik og komst
þá yfir í fyrsta sinn síðan í upp-
hafi leiks. Haukarnir voru ekki á
því að gefa frá sér sigurinn og
lokamínútur leiksins voru upp-
fullar af umdeildum atvikum,
mistökum og góðum tilþrifum
eins og toppleikir eiga að vera.
„Mér fannst við vera að spila
mjög vel í 45 mínútur og þá sér-
staklega varnarlega. Við vorum
grimmir, með góðar færslur og
markvarslan var góð. Sóknarleik-
urinn var líka lengst af góður og
skipulagður en við missum aðeins
haus þegar þeir fara í ská 5:1
vörn. Þá fóru menn að taka óvönd-
uð skot og við vorum ekki að spila
það sem við vorum búnir að æfa á
móti þessari vörn. Það kemur
smá örvænting í liðið, leikurinn
leysist upp, það voru nokkur vafa-
atriði sem féllu þeim í hag og þeir
náðu að komast inn í leikinn. Svo
fannst mér gríðarlegur karakter í
mínum mönnum eftir að hafa lent
einu marki undir að komast í þá
stöðu að geta klárað leikinn,“
sagði Aron Kristjánsson, þjálfari
Hauka.
„Í lokin var þetta reynsluleysi
yngri leikmanna. Maður bíður
ekki eftir frákasti í svona stöðu
heldur hleypur strax til baka. Það
var gríðarlega sárt að klára þetta
ekki. Þetta var skemmtilegur
leikur, mikil barátta og mikil
spenna. Það ætluðu allir sér að
vinna þennan leik. Ég vil ekki
segja að við höfum átt sigurinn
skilinn en við vorum sterkari
aðillinn lengstum í leiknum,“
sagði Aron, sem er samt mjög
sáttur með gengi og stöðu Hauka-
liðsins í dag.
Magnús Sigmundsson varði
mjög vel í marki Hauka og það
sem meira er, hélt 13 af 18 skot-
um sem hann varði.
Fannar Þór Friðgeirsson var
yfirburðamaður í Valssókninni og
hélt sínum mönnum á floti lengst-
um. Hann skoraði meðal annars
sex síðustu mörk liðsins fyrir hlé
og sá til þess að Valur var aðeins
þremur mörkum undir í hálfleik.
„Ég hélt við værum að ná und-
irtökunum í leiknum en við vorum
óheppnir og svolitlir klaufar í
lokin. Það var sterkt hjá okkur að
koma til baka og við hefðum alveg
getað klárað þetta því við vorum
komnir yfir í leiknum. Ég ákvað
að taka af skarið því það var svo-
lítið deyfð yfir þessu. Hefðum við
tapað þessum leik hefðum við
dottið aftur úr í toppbaráttunni.
Ég vona að þetta stig telji á end-
anum,“ sagði Fannar eftir leikinn
en hann skoraði 11 mörk úr 17
skotum í gær og öll þeirra utan af
velli.
Fannar lék manna best í Vals-
liðinu en Ólafur Gíslason varði
einnig vel í leiknum og þá sér-
staklega í seinni hluta síðari hálf-
leiks.
Baldvin Þorsteinsson tryggði Val stig gegn Haukum með því að skora jöfnunarmark fjórum sekúndum fyrir
leikslok en aðeins tíu sekúndum áður héldu Haukamenn að Jón Karl Björnsson hefði tryggt þeim sigur.
Jarðarför Gabriele
Sandri, stuðningsmanns Lazio
sem lögreglumaður skaut til bana
á sunnudag, fór fram kl. 12 í Róm
í gær.
Samkvæmt ítalska blaðinu
Corriere dello Sport komu þar
saman, ásamt ættingjum Sandris,
þúsundir stuðningsmanna ekki
bara Lazio heldur einnig erki-
fjendanna í Roma og annarra liða
víðs vegar að frá Ítalíu til að
votta hinum látna virðingu sína.
Stuðningsmenn
sameinast í sorg
HK tyllti sér á topp N1-
deildar karla í gærkvöldi með
góðum 24-20 sigri á Aftureldingu í
sveiflukenndum leik.
Sóknarleikur Aftureldingar var
gjörsamlega týndur framan af
leik. Liðinu tókst aðeins að skora 2
mörk á fyrstu 20 mínútunum en
það var bót í máli fyrir gestina úr
Mosfellsbæ að sóknarleikur HK
var ekki mikið betri. Góður
sprettur Aftureldingar síðustu
mínútur hálfleiksins sá til þess að
úrslitin voru ekki svo gott sem
ráðin þegar hálfleiksflautið gall.
Liðið skoraði þrjú síðustu mörk
hálfleiksins og minnkaði muninn í
fjögur mörk, 11-7.
HK virtist ætla að gera út um
leikinn snemma í seinni hálfleik
og náði fljótt sex marka forystu,
14-8. Afturelding náði að minnka
muninn í þrjú mörk, 14-11, en þá
kom annar góður sprettur hjá HK
og munurinn var skyndilega orð-
inn átta mörk þegar hálfleikurinn
var hálfnaður, 20-12.
Á einhvern ótrúlegan hátt náði
Afturelding að gera leikinn spenn-
andi á ný þegar þrjár mínútur
voru eftir en þá munaði aðeins
þremur mörkum á liðunum. HK
hélt haus til leiksloka og náði að
innbyrða fjögurra marka sigur og
efsta sæti deildarinnar.
Bjarki Sigurðsson, þjálfari
Aftureldingar, vandaði Helga
Hallssyni og Sigurjóni Þórðarsyni,
afleitum dómurum leiksins, ekki
kveðjuna í leikslok. „Við vorum
tveimur færri allan leikinn. Þessi
dómarar hafa dæmt illa hjá mér
áður í vetur en þetta var þeirra
langversti leikur. Við áttum ekki
góðan leik frekar en HK en við
fengum ekkert hjá dómurunum,“
sagði Bjarki eftir leik.
Gunnar Magnússon, aðstoðar-
þjálfari HK, var öllu sáttari í leiks-
lok en Bjarki.
„Það má segja að okkur hafi
skort drápseðlið í dag. Við áttum
að gera út um þennan leik mikið
fyrr. Þegar við komumst átta
mörkum yfir eigum við að róa
leikinn í stað þess að gefa færi á
okkur en það verður að segjast að
þetta Aftureldingarlið gefst aldrei
upp. Við vissum að þeir yrðu
erfiðir,“ sagði Gunnar.
HK-sigur í sveiflukenndum leik í gær
KR situr eitt að þriðja
sæti Iceland Express-deildar
kvenna í körfubolta eftir, 83-75,
sigur á Grindavík í DHL höllinni
í gær. Grindavík leiddi nánast
allan leikinn en KR sigldi fram úr
á lokasprettinum.
KR byrjaði leikinn betur en
Grindavíkurkonur voru fljótar
að svara fyrir sig og taka frum-
kvæðið í leiknum. Grindavík var
mun frískara og léttleikandi en
KR seiglaðist áfram og var aldrei
langt frá gestunum. Eitt stig
skildi á milli liðanna eftir fyrsta
fjórðung og í hálfleik var aðeins
tveggja stiga munur, gestunum í
vil, 41-43.
Byrjun seinni hálfleiks var
eins og spegilmynd þess fyrri.
KR kom sterkara til leiks en
Grindavík lét ekki slá sig út af
laginu og hélt forystunni, sem
var að mestu leyti Tiffany Rober-
son að þakka. Tiffany fór að hitta
úr hverju skotinu á fætur öðru og
sá um að halda KR fyrir aftan á
töflunni.
Þegar fimm mínútur voru eftir
af lokafjórðung náði KR loks for-
ystu, 74-72. Um sama leyti hætti
Roberson að hitta eins og allt
Grindavíkurliðið og Monique
Martin tók við keflinu KR-meg-
inn en hún skoraði 33 stig í
leiknum. Forystuna lét KR ekki
af hendi það sem lifði leiks og
innbyrti 83-75 sigur og tryggði
sér 3. sæti deildarinnar um leið.
Jóhannes Árnason, þjálfari KR,
sagði að leikskipulag sitt hefði
gengið upp. „Okkar leikskipulag
var að stöðva þriggja stiga skytt-
urnar þeirra og hamast í þeirra
bestu mönnum. Það tókst að
mestu leyti og því náum við þess-
um sigri hér í kvöld,“ sagði
Jóhannes við Fréttablaðið eftir
leik. „Grindavík náði að stöðva
okkur framan af enda með hörku-
lið. Það var stressandi að hafa
þær fyrir framan sig allan leik-
inn en ef maður þolir ekki smá
spennu í svona leik ætti maður
nú að vera að gera eitthvað
annað,“ sagði Jóhannes.
Keflavík er áfram á toppnum
eftir sigur á Hamri í Hveragerði
þrátt fyrir að leika án bandaríska
leikmanns síns Keshu Watson.
KR-konur einar í þriðja sæti
Stuðningsmenn Barce-
lona eru búnir missa trúna á
Frank Rijkaard og vilja fá Jose
Mourinho til að taka við af
Hollendingnum.
Stærsta blaðið í Katalóníu,
Sport, gerði skoðanakönnum
meðal stuðningsmanna Barcelona
og 66 prósent þeirra sögðust enga
trú hafa á því að Rijkaard gæti
rifið liðið upp á ný.
Vilja Mourinho