Fréttablaðið - 05.12.2007, Side 56
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þórhildar Elínar
Elínardóttur
10.55 13.18 15.41
11.05 13.03 15.01
Í dag er miðvikudagurinn 5.
desember, 339. dagur ársins.
Í gamla daga lagði íslenskur almúgi sjáanlega mikla áherslu
á óheft flæði í rýminu. Að minnsta
kosti var oft glettilega mikill
samhljómur í moldargólfum, þilj-
um og torfþaki sem var allt nota
bene úr náttúrulegum hráefnum.
Þetta var löngu fyrir tíma
almennrar vitundarvakningar í
innanhússhönnun og því greini-
lega meðfæddur talent.
UNDIRBÚNINGUR jólanna var
líka í þessum minimalíska stíl.
Fáar en vel valdar skreytingar
nutu sín sérlega vel í rýminu
þarna í sveitinni. Eini verulegi
dagamunurinn var stórhrein-
gerningar sem ráðist var í af
offorsi: Bærinn sópaður sundur
og saman og öllu kviku stungið í
bað. Reyndar öllum í eina og
sama baðvatnið, svo ekki er víst
hversu tandurhreinir hinir síð-
ustu í röðinni urðu. Eigi að síður
var mikil félagsleg pressa að
hafa á jólum allt skínandi hreint.
Og árlegar stórhreingerningar
voru ærið lífseigar. Langt fram
eftir síðustu öld þótti ekki við
hæfi annað en sótthreinsa hvert
skúmaskot á aðventu og taka
síðustu strokurnar síðdegis á
aðfangadag. Samhliða auðvitað
að sauma jólafötin á fjölskylduna
og baka tólf eða átján sortir í box
og líma fyrir. Því áður en við
vöndumst greiðum aðgangi að
öllu – alltaf – var smákaka nokkuð
sem hægt var að láta sig hlakka
til að fá.
EFTIR að rauðsokkurnar frels-
uðu okkur frá þessu árlega sprett-
hlaupi hefur leitin að inntakinu
breyst. Í fyrndinni fólst kikkið í
að vera grútskítugur og glorsolt-
inn í myrkrinu en fá svo bað, mat
og tólgarkerti. Síðar að spæna
upp sjaldgæfan sykur eftir
margra vikna akkorð við skúr-
ingar. Nú til dags er uppi hávær
krafa um að allir skuli njóta
aðventunnar. Það er mikil vinna.
NJÓTA þess að dúlla við að
föndra og skreyta smátt og smátt.
Njóta þess að skreppa á tónleika
og kaffihús. Njóta þess að baka
með börnunum lífrænar og syk-
urlausar speltkökur. Taka þátt í
keppninni um flottasta
piparkökuhúsið. Halda aðventu-
boð annað slagið og hafa sultaðan
engifer og paté innan seilingar ef
óvænta gesti ber að garði. Hamra
á stemmingunni baki brotnu með
kertum og huggulegri jólatónlist.
Gera konfekt. Baka sörur. Halda
í hefðirnar. Anda að sér ilmi
jólanna. Umfram allt skulu þó
allir vera rosa afslappaðir.
Aðventa
www.toyota.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
4
02
16
1
2/
07
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 420-6600
Toyota Selfossi
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
Toyota Austurlandi
Miðási 2
Egilsstaðir
Sími: 470-5070
RAV4 - alveg nýr heimur
RAV4 er bíll sem boðar nýja tíma, nýjar áherslur, nýjar leiðir. Hann er ríkulega búinn
staðalbúnaði og fæst með „Integrated Active Drive System“ sem eykur til muna
öryggi og akstursánægju. Við hikum ekki við að fullyrða að þú færð meira út úr lífinu
á nýjum RAV4, hvort sem er innanbæjar eða úti í náttúrunni.
Straumlínulöguð yfirbygging og fjöldi tækninýjunga gera RAV4 fágaðri, fjörugri
og þróaðri en nokkru sinni fyrr. Fjöldi útfærslna er í boði, þar á meðal hin
íburðarmikla RAV4 VX sem teflir saman framúrskarandi snerpu og afburðaþægindum
í akstri svo að hefðbundin skilgreining á smájeppa á ekki lengur við. Og tómstundir
með fjölskyldunni fá líka allt aðra merkingu.
Komdu og reynsluaktu RAV4 - alveg nýr heimur.
Verð frá 3.030.000 kr.
Allt sem þú ætlaðir að gera í fyrra
gerirðu tvisvar í vetur