Fréttablaðið - 07.12.2007, Blaðsíða 4
4 7. desember 2007 FÖSTUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Engar greiðslur
hafa borist frá ríkinu vegna rekst-
urs sneiðmyndatækis á Heilbrigðis-
stofnuninni í Ísafjarðarbæ, en
tæplega átján mánuðir eru liðnir
frá því tækið var tekið í notkun.
Guðlaugi Þór Þórðarsyni heil-
brigðisráðherra var afhent tækið
formlega fyrr í vikunni en það var
keypt fyrir samskotafé.
„Sneiðmyndatæki er orðið nauð-
synlegur þáttur í nútímalæknis-
fræði, til sjúkdómsgreiningar,“
segir Þorsteinn Jóhannesson,
lækningaforstjóri Heilbrigðis-
stofnunarinnar.
„Það er klárlega dýrara fyrir
ríkið að senda sjúklinga suður í
rannsóknir. Ríkið þarf þá að borga
flugið og rannsóknina, en með því
að vinna rannsóknina hér sparast
þó í það minnsta kostnaður við
flugið,“ segir Þröstur Óskarsson,
framkvæmdastjóri Heilbrigðis-
stofnunarinnar.
Þorsteinn segir að fyrir tilkomu
tækisins hafi um 200 sjúklingar á
ári verið sendir suður til Reykja-
víkur til rannsókna. TR greiðir
lungann úr ferðakostnaðinum,
hlutur sjúklingsins er að hámarki
1.500 krónur fyrir hverja ferð.
Flug fram og til baka frá Ísafirði
kostar í dag rúmlega 25 þúsund
krónur. Varlega áætlað greiddi TR
því um fimm milljónir króna á ári
vegna ferða sjúklinga suður til
rannsókna. Sá kostnaður er úr sög-
unni með tilkomu sneiðmyndatæk-
isins. Ferðir suður leiddu einnig til
mikils vinnutaps fyrir sjúklinga,
sem nú er úr sögunni.
„Þetta er aukin þjónusta og það
er eðlilegt að henni sé mætt með
fjárveitingum,“ segir Þröstur.
Hann segir kostnað við rekstur
sneiðmyndatækisins hlaupa á ein-
hverjum milljónum króna á ári.
Tækið var tekið í notkun í júní
2006 og síðan hafa um 500 rann-
sóknir verið gerðar. Þorsteinn
segir að það sem af er þessu ári
hafi um 300 rannsóknir verið
gerðar. Eðlilegt sé að notkunin sé
meiri þegar ekki þurfi að senda
sjúklinga suður, í því felist aukið
öryggi í sjúkdómsgreiningum.
Fjórðungssjúkrahúsið í Nes-
kaupstað tók svipað tæki í notkun
fyrir nokkru og frá upphafi fylgdu
því 12,8 milljóna króna fjárfram-
lög frá ríkinu til reksturs á tækinu,
segir Þorsteinn.
Guðlaugur Þór Þórðarson heil-
brigðisráðherra segir þetta mál í
skoðun hjá ráðuneytinu en vildi
ekki tjá sig frekar um það að svo
stöddu. brjann@frettabladid.is
Engar greiðslur vegna
nýs sneiðmyndatækis
Ríkið hefur ekki greitt rekstrarkostnað vegna sneiðmyndatækis á Ísafirði í átján
mánuði. Eðlilegt að aukinni þjónustu sé mætt með fjárveitingum, segir forstjóri.
Sparar háar upphæðir þar sem ekki þarf að senda sjúklinga til Reykjavíkur.
TÆKIÐ AFHENT Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra tók formlega við sneið-
myndatækinu um átján mánuðum eftir að það var tekið í notkun en það var Gísli
Jón Hjaltason sem afhenti það fyrir hönd þeirra sem söfnuðu fé fyrir tækinu.
MYND/BB.IS
FANGELSISMÁL „Við höfum verið gleymda
fangelsið. Það að Árni skuli hafa munað eftir
okkur gerir hann að vinsælasta manninum
hér,“ varð einum fanganum í Kvennafang-
elsinu í Kópavogi að orði í gær þegar Árni
Johnsen mætti með flutningabíl fullan af
nýjum springdýnum fyrir fangana.
Tildrög gjafarinnar eru þau að daginn
eftir að Árni færði Hegningarhúsinu við
Skólavörðustíg sjónvörp í haust fékk hann
símtal frá kvenfanga í Kópavogi. Sagði hún
rúmin þar jafngömul fangelsinu, sem og
svampdýnurnar sem væru orðnar morknar.
Árni gekk í málið, fékk nokkur félög og
einkaaðila til að styrkja málefnið og keypti
síðan tólf vönduð rúm frá RB rúmum í
Hafnarfirði með afslætti. „Þetta er eins og
gerist á bestu hótelum borginnar,“ sagði
Árni stoltur þegar hann gekk inn með fyrstu
dýnuna úr flutningabílnum.
Einar Andrésson, varðstjóri í Kvennafang-
elsinu, segir að beðið hafi verið um ný rúm
árum saman enda afar mikilvægt að fólk
geti fengið góða hvíld. „Það er nú bara
þannig að fangelsi eru alltaf látin sitja á
hakanum,“ sagði hann og bætti við: „Ég held
að þetta verði til þess að mikið dragi úr
bakvandamálum og lyfjanotkun vegna
verkja.“
„Æi, ég gleymdi að ryksuga gólfið fyrir
nýja rúmið,“ hrökk upp úr einni konunni
þegar þær fylgdust með því þegar nýju
rúmin voru borin inn í herbergin og því
greinilegt að þeim þótti mikið til gjafarinnar
koma.
- kdk
Tuttugu ára gömlum morknum svampdýnum hent út úr Kvennafangelsinu:
Árni færir Kvennafangelsinu ný rúm
MIKIÐ ÓSKAPLEGA
ER ÞETTA GÓÐUR
SKÁLDSKAPUR
– KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR, KILJAN
„JÓN KALMAN ER KOMINN
Í RÖÐ OKKAR MESTU OG
MIKILVÆGUSTU HÖFUNDA“
– PÁLL BALDVIN, FRÉTTABLAÐIÐ
„ÞETTA ER FRÁBÆR SKÁLDSAGA“
–JÓN INGVI, ÍSLAND Í DAG
DÓMSMÁL Hollensk kona á
þrítugsaldri hefur verið dæmd í tíu
mánaða óskilorðsbundið fangelsi
eftir að hafa reynt að smygla inn í
landið í október nær 250 grömm-
um af kókaíni. Konan var gripin í
Leifsstöð.
Konan hafði falið efnið vandlega.
Um 90 grömm af því faldi hún í
handtösku og rúm 150 grömm faldi
hún innvortis.
Hún játaði brot sitt skýlaust
fyrir dómi.
Auk tíu mánaða fangelsis var
konan dæmd til að greiða sakar-
kostnað. - jss
Héraðsdómur Reykjaness:
Tíu mánuðir
fyrir kókaín
DÓMSMÁL Hálfþrítugur maður
hefur verið dæmdur í átján
mánaða óskilorðsbundið fangelsi
fyrir að hafa haft samræði við
stúlku, sem þá var fjórtán ára, í
bifreið.
Maðurinn, sem er af erlendum
uppruna, bauð stúlkunni og
vinkonu hennar í bíltúr. Hann
stöðvaði bifreiðina við ótilgreind-
an skóla og rak vinkonuna út.
Síðan hafði hann samræði við
stúlkuna.
Héraðsdómur Reykjavíkur
sýknaði manninn í nóvember
2006. Hæstiréttur ómerkti þann
dóm og vísaði málinu aftur í
hérað. Manninum var jafnframt
gert að greiða stúlkunni 900
þúsund í skaðabætur og máls-
kostnað. - jss
Eins og hálfs árs fangelsi:
Kynferðisbrot
gegn fjórtán ára
KOSOVO, AP Leiðtogar serbneska
minnihlutans í Kosovo-héraði
halda þingsætum sínum í hálft ár
þrátt fyrir að þeir hafi sniðgengið
þingkosningarnar í síðasta mánuði.
Þetta er gert til að tryggja að
minnihlutinn fái að koma sjónar-
miðum sínum á framfæri.
„Við verðum að verja réttindi og
hagsmuni serbneska minnihlut-
ans,“ sagði Joachim Rücker, æðsti
embættismaður Sameinuðu
þjóðanna í Kosovo.
Einnig skipta sex serbneskir
stjórnmálaflokkar jafnt með sér
þeim sextíu þingsætum sem
frátekin eru fyrir serbneska
minnihlutann. - gb
Kosovo-þing:
Serbar halda
þingsætum
ÍSRAEL, AP Avi Dichter, almanna-
varnaráðherra Ísraels, hafnaði
heimboði til
Bretlands vegna
þess að
utanríkis- og
dómsmálaráð-
herrar Ísraels
töldu hættu á að
hann yrði
ákærður fyrir
stríðsglæpi og
ráðlögðu honum
að fara hvergi.
Dichter var yfirmaður leyniþjón-
ustunnar Shin Bet árið 2002 þegar
ísraelskir hermenn vörpuðu
sprengju að næturlagi á íbúða-
hverfi í Gazaborg sem varð Salah
Shadadeh, háttsettum Hamas-liða,
að bana auk níu barna. - gb
Ísraelskur ráðherra:
Hætti sér ekki
til Bretlands
AVI DICHTER
ÁNÆGÐ MEÐ NÝJU RÚMIN Fangi í kvennafangelsinu
var himinlifandi með nýju rúmin sem Árni kom með í
fangelsið í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Karl og tvær konur, sem öll eru á
þrítugsaldri, voru handtekin við húsleit í
íbúð í miðborginni en þar fundust ætluð
fíkniefni. Um nokkurt magn var að ræða
en fíkniefnin voru falin í peningaskáp. Í
honum var einnig lítilræði af fjármunum.
LÖGREGLUMÁL
Fíkniefni falin í peningaskáp
! #
$
%
% &
'(
)&
*
#
$
+,-. /-. 0-. 1-. 23
1-. ++-. +,-. +4-. +4-. +4-. +4-. 0-. 4,-5 23
+6-.5 23
47-.5 23
!" #
$
%
& #
'(
#) #%
*+
# #
*
# ,-
#
%
.,
# + #
# #
*
# #
)
#/
%
0123 5 !6
#/
# '( %
) 8" 9:;+,9(
;
<; 3 9
! ="
+ 07, 8-
-
#(
GENGIÐ 06.12.2007
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
118,7649
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
61,50 61,80
124,72 125,32
89,59 90,09
12,009 12,079
11,141 11,207
9,534 9,590
0,5550 0,5582
97,04 97,62
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Ólafur Ólafsson var ranglega sagður
formaður Félags eldri borgara í blað-
inu í fyrradag. Formaður félagsins er
Margrét Marteinsdóttir, sem tók við
formennsku af Ólafi árið 2005.
LEIÐRÉTTING