Fréttablaðið - 07.12.2007, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 07.12.2007, Blaðsíða 6
6 7. desember 2007 FÖSTUDAGUR Soroptimistar styrkja Forma Soroptimistaklúbbur Grafarvogs hefur styrkt Forma með 150 þúsund krónum. Klúbburinn fékk Ölmu Geirdal, framkvæmdastjóra Forma, í heimsókn á dögunum til að fræðast um vinnu samtakanna gegn átröskun og var styrkurinn afhentur við það tækifæri. HEILBRIGÐISMÁL Árekstur í Eyjum Hálka gerði ökumönnum í Vestmannaeyjum lífið leitt í gær. Einn árekstur varð í bænum er tveir bílar skullu saman. Engan sakaði en bílarnir skemmd- ust nokkuð. Að sögn lögreglu gekk umferð í bænum að öðru leyti vel, þrátt fyrir leiðinda aðstæður oft á tíðum. LÖGREGLUFRÉTT LÖGREGLUMÁL „Hann skipaði mér allt í einu að láta sig fá peningana. Þegar ég neitaði og sneri mér við í sætinu sá ég hvar hann reiddi hnífinn í átt að andlitinu á mér,“ segir Rögnvaldur Ólafsson, tæp- lega sextugur leigubílstjóri, sem varð fyrir fólskulegri árás far- þega í misheppnaðri ránstilraun í fyrradag. Rögnvaldur náði að víkja sér undan árásinni en hnífurinn hafn- aði í augabrún hans. „Ég fann hvernig blóðið fossaði úr auga- brúninni og augað fylltist af blóði. Það eina sem ég hugsaði var að verja mig og bar höndina fyrir andlitið á mér en hann hélt áfram að reyna að stinga mig og ég skarst á hendinni vegna þess. Ég er viss um að hann var bara að reyna að drepa mig svo hann gæti tekið peninginn,“ segir Rögnvaldur. Auk þess að beita eggvopninu lét árásarmaðurinn höggin dynja á Rögnvaldi. „Hann sló mig tvisvar sinnum í andlitið með hinni hendinni og ég vankaðist aðeins við það. Ég náði loksins að losa beltið og komast út úr bílnum en þá hljóp hann í burtu út í myrkrið.“ Rögnvaldur ók því næst til lög- reglu, sem kom honum til aðhlynn- ingar á slysadeild. Tæknideild lögreglu rannsakaði bílinn í kjöl- farið og eftir lýsingu Rögnvalds á árásarmanninum vöknuðu grun- semdir hjá lögreglu um að viss einstaklingur tengdist málinu. Í framhaldinu hófst leit að manni sem grunaður var um verknaðinn og var hann handtekinn síðdegis í gær í Kringlunni. Hann er um tví- tugt og á langan sakaferil að baki, meðal annars fyrir ofbeldisbrot. Hann var yfirheyrður af lögreglu í gær. Rögnvaldur var mættur til vinnu í morgunsárið, daginn eftir árásina. „Maður hefur nú oft lent í handalögmálum í vinnunni, en aldrei áður hefur verið ráðist á mig með eggvopni,“ segir hann. „Mér finnst þessi heimur fara harðnandi, nú eru allir svo æstir og örir að maður þorir ekki öðru en að vera sammála síðasta ræðu- manni hér í bílnum.“ Rögnvaldur segist ekki hafa ótt- ast um líf sitt enda hafi atburða- rásin verið hröð. „Þetta var þaul- skipulagt. Hann spurði mig hvort ég gæti skipt fimmþúsundkalli og ég sagði svo vera. Nú eftir á að hyggja veit ég að það var bara til að vera viss um að hann hefði eitt- hvað upp úr krafsinu,“ segir Rögnvaldur. aegir@frettabladid.is Hann var bara að reyna að drepa mig Leigubílstjóri sem varð fyrir líkamsárás í Hátúni í fyrradag telur að árásar- maðurinn hafi verið að reyna að drepa hann. Árásarmaðurinn beitti eggvopni og skar fórnarlambið í andlitið. Maður grunaður um árásina var handtekinn í gær. LEIGUBÍLAR Maður sem grunaður er um að hafa ráðist á leigubílstjóra með eggvopni var handtekinn í gær. Hann á langan saka- feril að baki, meðal annars fyrir ofbeldisverk. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM © In te r I KE A Sy ste m s B .V . 2 00 7 GLÄNSA aðventuljós 7 armar L59xB94, H45 cm 3.990,- ISIG kerti Ø7, H15 cm gyllt/silfurlitað 195,- ISIG kerti 5 stk. H20, 12 og 7 cm ýmsir litir 495,- ISIG kerti Ø7, H15 cm 150,- Bjartar vetrarnætur GLÄNSA aðventuljós 7 armar Ø17, H15 cm 695,- Opið til 22:00 fram að jólum SJÁVARÚTVEGUR Stjórn Samtaka atvinnulífsins (SA) lýsti nýlega yfir eindregnum stuðningi við sjónarmið Landssambands íslenskra útvegsmanna að fella að fullu niður veiðigjald á sjávar- útveginn. SA hvetur ríkisstjórnina og Alþingi til þess að breyta fyrirliggjandi frumvarpi um niðurfellingu veiðigjalds að hluta til þannig að gengið verði alla leið og að sjávarútvegurinn losni alfarið við þetta sérstaka gjald. Illa horfir með afkomu sjávar- útvegsins, segir á vefsíðu SA, og því telur stjórnin engin rök fyrir sérstakri skattlagningu á sjávar- útveginn umfram aðrar. - shá Samtök atvinnulífsins: Veiðigjald verði alveg fellt niður ÞÝSKALAND, AP Tvær mæður í Þýskalandi eru í haldi lögreglu eftir að lík barna þeirra fundust falin á heimilum þeirra. Önnur þeirra virð- ist hafa myrt fimm syni sína nú í vikunni, en hin þrjú af fimm börn- um sínum stuttu eftir fæðingu þeirra. Lík fimm drengja, þriggja til níu ára, fundust á miðvikudag á heimili þeirra í smábænum Darry í Slesvík- Holstein eftir að móðir þeirra, sem er 31 árs, sagði lækni hvar þau væri að finna. Talið er að drengirnir hafi fyrst verið svæfðir með svefn- töflum og síðan kæfðir með plast- poka, annaðhvort á þriðjudag eða miðvikudag. Móðirin var einstæð og mun eiga við geðsjúkdóm að stríða. Á miðvikudag hafði lögreglan í austanverðu Þýskalandi skýrt frá því að þrjú barnslík hefðu fundist í borginni Plauen, skammt frá landa- mærum Tékklands. Fyrsta líkið, af barni sem fæddist árið 2002, fannst 27. nóvember síðastliðinn í geymslurými á heimili ættingja móðurinnar, vafið inn í plast. Hin líkin tvö fundust síðan á þriðjudag- inn á heimili móðurinnar, sem er 28 ára gömul, einnig vafin inn í plast, annað í frystikistu en hitt úti á svöl- um. Öll voru þau nýfædd þegar þau létust. Móðirin er í haldi lögreglu, en neitar að hafa myrt börnin. Hún á tvö önnur börn, sem hafa verið færð í umsjón hins opinbera. - gb Átta barnslík hafa fundist í Þýskalandi: Tvær mæður í haldi lögreglu LÖGREGLAN Á VETTVANGI Í DARRY Þýsk lögreglukona flytur rannsóknar- gögn í tösku út úr íbúðarhúsinu í Darry, þar sem lík fimm ungra drengja fundust á miðvikudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Finnst þér notkun fingrafarales- ara í mötuneytum grunnskóla eðlileg? Já 48,9% Nei 51,1% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ertu fylgjandi aðgerðum ríkis- ins í þágu öryrkja og aldraðra? Segðu skoðun þína á visir.is VIÐSKIPTI Pálmi Haraldsson í Fons hefur keypt 6,9 prósent í FL Group fyrir rúma tíu milljarða króna. Hlutinn keypti hann af Hannesi Smárasyni, fyrrver- andi forstjóra félagsins, Magnúsi Ármanni, Þor- steini M. Jónssyni og Kevin Stanford. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins ætlar Pálmi líka að taka þátt í hlutafjárútboði FL Group fyrir áramót þar sem minnst tíu milljarðar eru í boði. Hlutur Fons, sem er eignarhaldsfélag Pálma og Jóhannesar Kristjánssonar, í félaginu mun því stækka. Gengi bréfa FL Group í þessum viðskiptum var 16,1. Hlutafjáraukningin mun fara fram á genginu 14,7. Þegar Kauphöllin lokaði í gær var gengi FL Group 15,65 og lækkaði um rúm fjögur prósent. Samkvæmt frétt á viðskiptavef Vísis.is töpuðu Magnús, Kevin og Þorsteinn 1,9 milljörðum á því að selja 2,31 prósent í FL Group á 3,4 milljarða. Í gær var gengið frá samkomulagi um beitingu atkvæðisréttar í FL Group á milli félaga í eigu þremenninganna og Hannesar Smárasonar. Sameiginlegt atkvæðamagn þeirra á hluthafafundin- um 14. desember næstkomandi verður 25,13 prósent. Hannes á nú tæp 16 prósent í félaginu og Magnús, Kevin og Þorsteinn rúm níu prósent. Ekki náðist í Hannes í gær en í tilkynningu er haft eftir honum að hann hyggist beina kröftum sínum í auknum mæli að orkugeiranum og útrás hans samhliða því að taka sæti í stjórn FL Group. Hann ætlar sér að kaupa 23 prósent í Geysi Green Energy af FL Group. - bg Pálmi Haraldsson í Fons eignast tæp sjö prósent í FL Group: Keypti fyrir tíu milljarða króna HLEYPUR AFTUR INN Í FL GROUP Pálmi Haraldsson fundaði með Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, stjórnarformanni FL Group, áður en hlutafjáraukning félagsins var tilkynnt. Hann opnaði dyr sínar og keypti í dag tæp sjö prósent. KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.