Fréttablaðið - 07.12.2007, Page 8

Fréttablaðið - 07.12.2007, Page 8
 7. desember 2007 FÖSTUDAGUR FINNLAND Ófremdarástand er í bænum Nokia í Finnlandi vegna mengunar í grunnvatni. Helmingur bæjarbúa er illa haldinn af maga- veiki. Skólar og leikskólar eru lok- aðir, að sögn finnska dagblaðsins Hufvudstadsbladet, og bæjarbúar hafa flúið bæinn. Ástandið hefur staðið í rúma viku og er talið verra en nokkur hefði getað ímyndað sér. Ekki bætir úr skák að bæjaryfirvöld létu ekki vita af menguninni fyrr en of seint, þegar fjöldi fólks var þegar orðinn veikur. Þau eru sögð hafa reynt að þagga málið niður. „Ég bið um fyrir- gefningu. Þetta er áfall,“ segir Markku Rahikkala bæjarstjóri. Samkvæmt Hufvudstadsbladet stóð fólk í biðröð til að fá drykkjar- vatn eða til að komast að á heilsu- gæslustöðinni. Allt flöskuvatn er uppselt og er ekki einu sinni leyfi- legt að nota kranavatnið soðið. Ófremdarástandið í Nokia versn- aði verulega á miðvikudag þegar leiðsla sprakk. Talið er að leiðslur leki, jafnvel á fleiri en einum stað, og að afrennslisvatn hafi þannig komist í kranavatnið. Enn hefur enginn dáið svo vitað sé en bæjar- starfsmenn munu banka á dyr eldri borgara næstu daga til að kanna hvernig þeim heilsast. Íbúar Nokia eru þrjátíu þúsund talsins. - ghs Afrennslisvatn hefur blandast við drykkjarvatn í Nokia í Finnlandi: Veikir íbúarnir flýja bæinn ALÞINGI Ríkisendurskoðun mun vinna stjórnsýsluúttekt á Þróunar- félagi Keflavíkurflugvallar. Þar verður aðferðafræðin við sölu eigna ríkisins á fyrrum varnar- svæði á Miðnesheiði rannsökuð sem og meint tengsl kaupenda við stjórnvöld. Þetta upplýsti Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, í umræðum um skýrslu forsætisráðherra um Þróunar félagið á Alþingi í gær. Lúðvík sagði lykilatriði að allt varð- andi sölu ríkiseigna á varnarsvæð- inu væri uppi á borðinu. Mikilli tor- tryggni hefði verið sáð, og ástæða til að taka það alvarlega. Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa gagnrýnt að þeir hafi ekki fengið aðgang að samningum Þró- unarfélagsins. Fulltrúar í fjárlaga- nefnd fengu í gærmorgun að sjá umrædda samninga, en um þá ríkir trúnaður vegna viðskiptahagsmuna kaupandans. Lúðvík sagði Ríkisendurskoð- anda hafa farið yfir umrædda samninga. „Niðurstaða hans er sú að þessir samningar séu þannig úr garði gerðir að þeir séu bókunar- hæfir, það er að segja að hægt sé að færa þau verðmæti sem þeir fela í sér inn í ríkisreikning.“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu vinnubrögð við sölu eigna harðlega á þingi í gær. Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, sagðist ítrekað hafa óskað eftir upplýsingum um mál tengd Þróunarfélaginu, en hafi verið dreginn á asnaeyrum og ekki fengið þau gögn sem brýnust séu í málinu. Þar megi nefna kaupsamninga, verðmat og ástæður þess að tiltekn- um aðilum var selt. Þá hafi hann spurt um tengsl þessara aðila við Sjálfstæðisflokkinn. Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstri grænna, gekk lengra og sagði sömu menn sitja beggja vegna borðsins: „Á mannamáli sagt gerist það ósköp einfaldlega að Sjálfstæðis- flokkurinn selur sjálfum sér þessar eignir, með býsna líkum hætti og annar ónefndur flokkur seldi sjálfum sér banka hérna aðeins fyrr á þessari öld,“ sagði hann. Geir H. Haarde forsætisráðherra hafnaði þessum málflutningi, og sagði Steingrím hafa orðið sér til minnkunar með orðum sínum. „Það er ekki svo að það hafi verið leynt upplýsingum í þessu máli, eða til standi að leyna upplýsingum,“ sagði Geir. brjann@frettabladid.is Stjórnsýsluúttekt á eignasölu í Keflavík Mikilli tortryggni hefur verið sáð um sölu eigna ríkisins á Keflavíkurflugvelli að mati þingflokksformanns Samfylkingarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn að selja sjálfum sér segir formaður VG. Upplýsingum ekki leynt segir forsætisráðherra. Ef vel tekst til við sölu eigna á fyrr- um varnarsvæði gætu skapast fleiri störf á svæðinu en þegar varnarliðið var þar með starfsemi, sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra á Alþingi í gær. Í dag starfi þar um 400 manns, en um 800 hafi misst vinnuna þegar varnarliðið hvarf á brott í fyrra. Geir upplýsti að 135 byggingar hefðu verið seldar fimm aðilum, sem hefðu greitt fyrir samtals 15,7 milljarða króna. Nær undantekning- arlaust hafi hæsta boði verið tekið og reglur um gagnsæi virtar. FLEIRI STÖRF GÆTU SKAPAST EN ÁÐUR RÁÐAGÓÐIR Þingmenn Framsóknarflokksins, þeir Höskuldur Þórhallsson (til hægri) og Bjarni Harðarson, gefa formanni sínum, Guðna Ágústssyni, góð ráð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FINNLAND SVÍÞJÓÐ RÚSSLAND Helsinki Tampere NOKIA Gjafakort í allar sumarbúðir KFUM og KFUK verða seld í Kringlunni á 2. hæð, laugardaginn 8. desember. Gjafaupphæð er frjáls. Upplýsingar um heildarverð í hvern flokk er að finna á heimasíðu félagsins, www.kfum.is og í síma 588 8899. Gjafakortin eru einnig seld virka daga á skrifstofu KFUM og KFUK, Holtavegi 28, Reykjavík. Er barnið þitt að safna fyrir sumarbúðaferð næsta sumar?                      !          !        !          !          !           !      Brag› sem segir sögu Vi› teygjum tímann Vi› nostrum vi› laxinn okkar til fless a› tryggja einstakt brag›. www.opal.is Handflaka›ur úr fersku hráefni fiurrsalta›ur í höndum me› sjávarsalti Hangireyktur me› birkispæni Handsneiddur af sérstakri alú› Hangireykti laxinn okkar fæst í verslunum Nóatúns, verslunum Hagkaupa, Melabú›inni, Ostabú›inni og í Flugstö› Leifs Eiríkssonar í versluninni Inspired by Iceland. NOKIA Nokia er þrjátíu þúsund manna bær norðvestur af Helsinki.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.