Fréttablaðið - 07.12.2007, Side 10
10 7. desember 2007 FÖSTUDAGUR
BANDARÍKIN Kona á sextugsaldri
var handtekin á þriðjudag eftir
misheppnaða tilraun til bankaráns
í bílalúgu. Hún keyrði upp að lúgu
bankans, sem er í bænum Hardee-
ville í Flórída, rétti gjaldkeranum
miða með fyrirmælum og beið
róleg á meðan starfsmaðurinn
hringdi á lögreglu. Hún reyndi
hvorki að dulbúast né hylja
númeraplöturnar á bílnum sínum.
Samkvæmt fréttavef The
Beufort Gazette voru lögreglu-
þjónar komnir á staðinn innan við
mínútu eftir að símtalið barst,
enda lögreglustöðin í sömu götu.
Þá upphófst stutt eftirför sem lauk
þegar konan gafst upp. - sþs
Vann ekki heimavinnuna:
Bílalúgubanka-
ræningi gripinn
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Stór og lítil heimilistæki, símtæki og ljós í miklu úrvali.
Gæðaryksugur frá Siemens.
Virkilega þrífandi hrífandi.
Þessi er nauðsynleg við jólabaksturinn.
Er ekki upplagt
að fá sér ný ljós
fyrir jólin?
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
39
98
6
11
/0
7
Leki göngustafir
fyrir þá sem gera kröfur
Verð frá
3.990
parið
ÖLDRUNARMÁL „Það sem við
leggjum áherslu á eru búsetumál
aldraðra og daggjöld,“ segir Brit
Bieltvedt, formaður Félags stjórn-
enda í öldrunarþjónustu.
Félög og samtök um málefni
aldraðra kynntu í gær áskorun til
Alþingis og ríkisstjórnarinnar um
að stórauka fjármagn til búsetu-
og umönnunarmála aldraðra.
Brit segir að 374 hjúkrunar-
rými, sem byggð verða fyrir árið
2010, fullnægi ekki þörfinni í sam-
félaginu. Þá sé afar nauðsynlegt
að flýta framkvæmdum því aldr-
aðir sem þurfi á mikilli hjúkrun að
halda geti ekki beðið í tvö ár.
Ríkisstjórnin boðaði aðgerðir til
þess að bæta kjör aldraðra og
öryrkja næstu tvö ár, sem kosta
munu ríflega fjóra milljarða.
Félögin gagnrýna að ekkert fé fari
til framkvæmdasjóðs aldraðra í
endurbætur og byggingu hjúkrun-
arheimila né til aukinnar heima-
þjónustu eða hækkunar dag-
gjalda.
Margrét Margeirsdóttir, for-
maður Félags aldraðra í Reykja-
vík og nágrenni, sagði að fagna
bæri aðgerðum ríkisstjórnarinnar
og sagði þær vera til marks um
breytt viðhorf til aldraðra.
Margrét gagnrýndi þó harðlega
hjúkrunarheimili sem hún sagði
vera úrelt fyrirkomulag. Fjölbýli,
þar sem ókunnugt fólk deilir her-
bergi, væri barn síns tíma. Slíkt
hefði fyrir löngu verið afnumið í
nágrannalöndunum og á sambýl-
um fatlaðra á Íslandi.
Fimm félög aðstandenda aldr-
aðra stóðu einnig að áskoruninni.
Þeir sögðu búsetu aldraðra og
heilabilaðra oft ekki mönnum
bjóðandi og nauðsynlegt væri að
auka þjónustu við aldraða svo
hægt væri að mæta líkamlegum
og andlegum þörfum þeirra. Þá
hafi heimahjúkrun verið skorinn
afar þröngur stakkur.
„Margar fjölskyldur þjást því
þær koma ekki ástvinum sínum í
þjónustu sem hæfir þeim. Oft
verða til tveir sjúklingar í stað
eins því aðstandandi gengur of
nærri sér við stöðuga umönnun,“
segir Brit.
Brit gagnrýnir einnig óhag-
kvæmni þess að aldraðir og heila-
bilaðir séu látnir dveljast á
sjúkrahúsum í stað þess að reisa
hjúkrunarheimili, enda séu
sjúkrahúsrými mun kostnaðar-
samari.
eva@frettabladid.is
Búseta aðal-
baráttumálið
Félög og samtök um málefni aldraðra gagnrýna að í
aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar sé hvergi að finna
áætlanir um fleiri hjúkrunarheimili, aukna heima-
þjónustu eða hækkun daggjalda.
ÁSKORUN ELDRI BORGARA Brit Bieltvedt og Margrét Margeirsdóttir kynntu málefni
aldraðra á fundi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
JÓLALJÓS Fólk safnaðist saman þegar
kveikt var á ljósum á jólatrénu sem
stendur vestan við alríkisþinghúsið í
Washington. NORDICPHOTOS/AFP
BARNAVERND Barnaheill leggja
áherslu á að mörkuð verði heild-
stæð stefna í háskólum í kennslu
um barnavernd og kynferðislegt
ofbeldi. Háskóladeildir bjóði nám-
skeið um kynferðislegt ofbeldi
gegn börnum, rannsóknir um það
verði efldar og útgáfa aukin. Þá
gæti aukin samvinna milli háskóla
og félagasamtaka nýst í kennslu á
háskólastigi.
Evrópuhópur Barnaheilla leggja
áherslu á að ávallt skuli hafa það
sem barni er fyrir bestu að leiðar-
ljósi þegar tekið er á mansali og að
staða barnsins sem innflytjanda
sé aukaatriði, að börnin fái áfalla-
hjálp, aðhlynningu og strax aðgang
að allri þjónustu. Þá fái það til-
sjónarmann og fjölskylda þess
verði fundin.
Þetta er meðal niðurstaðna á
hádegisfundi Barnaheilla í átaki
gegn kynbundnu ofbeldi. - ghs
Barnaheill vill að heildstæð stefna verði mótuð í kennslu:
Hagur barna hafður að leiðarljósi
ÞÝSKALAND, AP Kröfur opinberra
embættismanna um mútugreiðsl-
ur koma harðast niður á fátæku
fólki í Afríku og Asíu, þar sem
fólk neyðist víða til að greiða
mútur til þess að fá lögregluvernd,
menntun fyrir börn sín og sann-
gjarna meðferð hjá dómstólum.
Þetta kemur fram í nýrri könn-
un samtakanna Transparency
Inter national. Rúmlega 63 þúsund
manns í 60 löndum voru spurðir út
í reynslu sína af mútugreiðslum.
Verst er ástandið í Afríku. Þar
segjast 42 prósent aðspurðra hafa
verið krafin um mútugreiðslur á
síðustu tólf mánuðum, en næst á
eftir koma Asíu- og Kyrrahafsríki
með 22 prósent, þá Rússland,
Moldóva og Úkraína með 21 pró-
sent, Rómanska Ameríka með 13
prósent, Suðaustur-Evrópa með 12
prósent, Evrópusambandsríki með
fimm prósent og loks þótti ástandið
best í Norður-Ameríku þar sem
tvö prósent sögðust greiða mútur.
Af einstökum löndum reyndist
ástandið verst í Kamerún, þar sem
79 prósent segjast þurfa að greiða
mútur. Næst kemur Kambódía
með 72 prósent, Albanía með 71
prósent og Kosovo með 67 prósent.
Þar á eftir komu svo Paki stan og
Makedónía með 44 prósent.
Ástandið er hins vegar best í
Austurríki, Frakklandi, Íslandi,
Japan, Kanada, Suður-Kóreu,
Sviss og Svíþjóð þar sem eitt pró-
sent segist hafa þurft að greiða
mútur. - gb
Ný könnun á mútugreiðslum til opinberra embættismanna:
Spilling mest í Afríku og Asíu
SPILLINGU MÓTMÆLT Á Filippseyjum
hafa undanfarnar vikur verið háværar
mótmælaaðgerðir gegn spillingu stjórn-
valda. FRÉTTABLAÐIÐ/AP