Fréttablaðið - 07.12.2007, Side 16
16 7. desember 2007 FÖSTUDAGUR
Auglýsingasími
– Mest lesið
RANNSÓKN „Það er töluvert sem
við vitum og grunum hann um en
við þurfum að fá sannanir,“ segir
Alfreð Garðarsson, einn sveitar-
stjórnarmanna í Grímsey. „Ég vil
ekkert gefa upp um hve mikið við
erum að tala í peningum en hrepp-
inn munar um hverja krónu.“
Sveitarstjórnin hefur rannsak-
að fjármál sveitarstjórans eftir að
hann játaði fyrir dómi á dögunum
að hafa dregið sér tæp þrettán
tonn af olíu á meðan hann gegndi
stöðu umboðsmanns Olíu-
dreifingar. Olíuna notaði hann til
að kynda heimili sitt og verslun
sem hann rak í eynni.
Maðurinn hefur gegnt stöðu
sveitarstjóra síðan í sumar en
hann sat sem oddviti í hrepps-
nefndinni í tvö ár fram að því.
Skrifstofa hans var innsigluð í
kjölfarið og sveitarstjórnin hratt
af stað rannsókn til að kanna hvort
allt væri með felldu í fjármálum
hreppsins.
„Það ríkir mikil sorg hér í eynni
út af þessu öllu saman. Þetta er
bara einn stór harmleikur,“ segir
Alfreð.
Sveitarstjórinn hefur gegnt
starfi umboðsmanns Íslandspósts
í Grímsey í nokkur ár og þar er
hafin rannsókn á störfum hans
fyrir fyrirtækið. - æþe
Rannsókn á fjárreiðum sveitarstjórans í Grímsey lýkur um helgina:
Vísbendingar um fjárdrátt
UMHVERFISMÁL 94,5 prósent Íslendinga vilja að
stóriðjufyrirtæki borgi fyrir losun sína á gróður-
húsalofttegundum, samkvæmt nýrri skoðanakönnun
sem Capacent Gallup gerði fyrir Náttúruverndar-
samtök Íslands.
Náttúruverndarsamtökin segja þetta lýsa því að
almenningur hafni sérstökum undanþágum fyrir
áliðnað á Íslandi. Fyrirtækin eigi sjálf að bera
kostnað af menguninni.
Til samanburðar taldi þorri aðspurðra, eða 82,9
prósent, að öll fyrirtæki, ekki bara stóriðjufyrir-
tæki, ættu að greiða fyrir losun sína á lofttegundun-
um.
Að auki var spurt í könnuninni hvort almenningur
ætti sjálfur að greiða fyrir sína losun á gróðurhúsa-
lofttegundum og var ekki sami einhugur um það.
Um 49 prósent aðspurða töldu að svo ætti að vera,
en 44 prósent voru því mótfallin.
Náttúruverndarsamtökin segja þetta benda til að
ríkur vilji sé meðal almennings til að taka á sig
kostnað vegna aðgerða stjórnvalda til að draga úr
útstreymi gróðurhúsalofttegunda. - kóþ
Almenningur hafnar undanþágum fyrir áliðnað segja Náttúruverndarsamtökin:
Flestir vilja að stóriðjan borgi
VERKSMIÐJA Á GRUNDARTANGA Nær allir Íslendingar vilja að
stóriðja borgi fyrir útblástur gróðurhúsalofttegunda, ef marka
má könnun sem gerð var fyrir Náttúruverndarsamtökin.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
M á l þ i n g
Mannréttindanefnd Reykjavíkur boðar til málþings
um hvernig borgaryfirvöld geti spornað við ofbeldi
gegn konum. Málþingið verður haldið í Tjarnarsal
Ráðhúss Reykjavíkur í dag föstudag 7. desember
milli kl. 13.30 og 17.00
Spurningunni velta fyrir sér fulltrúar ýmissa
félagasamtaka og stofnana:
kl. 13.30 Setning málþings,
Sóley Tómasdóttir, formaður mannréttinda-
nefndar Reykjavíkurborgar
kl. 13.40 ReykjavíkurAkademían,
dr. Sólveig Anna Bóasdóttir
kl. 14.00 Stígamót,
Margrét Steinarsdóttir
kl. 14.20 Kvennaathvarfið,
Sigþrúður Guðmundsdóttir
kl. 14.40 Neyðarmóttaka vegna nauðgunarmála,
Eyrún B. Jónsdóttir
kl. 15.00 Hressing
kl. 15.30 Femínistafélagið,
Kristín Tómasdóttir og Kári Hólmar Ragnarsson
kl. 15.50 Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi,
Tatjana Latinovic
kl. 16.10 Jafningjafræðsla Hins hússins,
Edda Sigfúsdóttir og Vilhjálmur Leví
kl. 16.30 Samantekt og slit málþingsins,
Sóley Tómasdóttir
Málþingsstjóri er Felix Bergsson,
fulltrúi í mannréttindanefnd
- málþing í tilefni af 16 daga alþjóðlegu
átaki gegn kynbundnu ofbeldi
Léttar veitingar að lokinni dagskrá
Ráðstefnan er öllum opin
og aðgangur ókeypis
Hvað geta borgaryfirvöld gert
til að sporna við
ofbeldi gegn konum?
ÍTÖLSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ
REGNBOGANUM
6.-12. desember
NÝJAR ÍTALSKAR KVIKMYNDIR
DÓMSMÁL Sýslumaðurinn á Sel-
fossi verður ekki við kröfu Hvera-
gerðisbæjar um að aflétta þing-
lýsingu skjala sem færðu
eignarhald á svokallaðri Tívolílóð
frá bænum til byggingarréttar-
hafa á lóðinni.
Fram hefur komið í Fréttablað-
inu að eigandi félags sem keypti
byggingarrétt á Austurmörk 24 af
Hveragerðisbæ breytti skjölum
þannig að ekki aðeins var bygg-
ingarrétturinn skráður í þinglýs-
ingarbækur á félagið heldur líka
eignarhaldið á lóðinni. Þetta kom í
ljós í haust þegar óskað var upp-
boðs á byggingarréttinum vegna
vanskila á skuldabréfum sem
hvíldu á Austurmörk 24. Hugðist
þá sýslumaður bjóða upp saman
byggingarréttinn og lóðina sjálfa.
Því mótmælti Hveragerðisbær og
fékk málinu frestað.
Svar frá Ólafi Helga Kjartans-
syni sýslumanni var rætt í bæjar-
ráði Hveragerðis í gær. „Litið var
svo á að allar handskrifaðar inn-
færslur ættu heima í framsalinu
og að Hveragerðisbæ væri um
þær kunnugt í samræmi við undir-
ritun bæjarstjóra á framsalið
sjálft,“ segir Ólafur Helgi. Hann
kveðst telja að ekki hafi verið gerð
mistök í þinglýsingu og hafni því
ósk um leiðréttingu.
Þá bendir sýslumaður á að nán-
ast ómögulegt sé að skilja að bygg-
ingarrétt og eignarhald á lóð. Í
lögunum sé ekkert sem skýri inn-
tak hugtaksins byggingarréttur.
„Hvor rétturinn um sig er háður
hinum,“ segir Ólafur Helgi sem
bendir á að Hveragerðisbær geti
leitað til Héraðsdóms Suðurlands
innan fjögurra vikna sætti bærinn
sig ekki við ákvörðun hans.
„Þetta bréf frá sýslumanni er
afar sérkennilegt svo ekki sé tekið
dýpra í árinni,“ segir Aldís Haf-
steinsdóttir bæjarstjóri. Hún
kveður bæjarstjórnina munu
funda í næstu viku með lögmönn-
um um framhald málsins. „Við
líðum það náttúrulega ekki að eign
okkar sé með þessum hætti frá
okkur tekin. Þetta eru einfaldlega
mistök í þinglýsingu hjá sýslu-
manni og það sjá það allir.“
Bæjarstjórinn er ósammála
sýslumanni um að byggingarrétt-
ur verði ekki skilinn frá eignar-
rétti á lóð. „Það er verið að selja
byggingarrétt hér um allt land
með svipuðum ákvæðum og eru í
okkar samningi,“ segir Aldís.
Fulltrúar frá Hveragerðisbæ
fóru eftir hádegi í gær á skrifstofu
sýslumanns til að vera viðstödd
uppboð á byggingarrétti á Tívolíl-
óðinni. „Við mættum þangað til að
láta færa til bókar að það væri
verið að bjóða upp byggingarrétt-
inn án allra lóðarréttinda,“ segir
Aldís Hafsteinsdóttir.
gar@frettabladid.is
Neitar leiðréttingu á
þinglýstu Tívolíbréfi
Sýslumaður neitar að leiðrétta eignarhald á Tívolílóðinni í þinglýsingarbókum
eins og Hveragerðisbær krefst. Bæjarstjórinn segir Hvergerðinga ekki munu
líða að verða sviptir eignarhaldi á lóðinni vegna mistaka sýslumannsins.
UPPBOÐ HJÁ SÝSLUMANNI Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður á Selfossi bauð í
gær upp byggingarrétt á lóðinni Austurmörk 24 sem var veð fyrir meira en 400 millj-
óna skuld. Fulltrúar Hveragerðisbæjar, f.v. Herdís Þórðardóttir oddviti minnihlutans,
Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri og Guðjón Ægir Sigurjónsson lögmaður, mættu líka.
MYND/EGILL
Þetta bréf frá sýslumanni
er afar sérkennilegt svo
ekki sé tekið dýpra í árinni.
ALDÍS HAFSTEINSDÓTTIR
BÆJARSTJÓRI Í HVERAGERÐI