Fréttablaðið - 07.12.2007, Blaðsíða 25
Undanfarna daga hafa ýmsir opinberir aðilar og einstaklingar á vefmiðlum og dagblöðum farið með rangt
mál um stefnumál Siðmenntar. Félagið vill því koma eftirfarandi á framfæri:
• Frumvarp menntamálaráðherra til breytinga á grunnskólalögum er ekki árás
á kristni eða kristið siðferði á Íslandi.
Lagafrumvarp háttvirts menntamálaráðherra, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, er í samræmi við úrskurð
Mannréttindadómstóls Evrópu í Strasbourg frá júní 2007. Dómurinn er fordæmisgefandi.
Tilgangur frumvarpsins er að taka í burt trúarlegan merkimiða á siðferðislegt viðmið skólanna og nefna þess í
stað sjálf siðferðisgildin. Þannig er höfðað til almenns siðferðis sem góð sátt í þjóðfélaginu ætti að nást um.
Engum yrði mismunað og ekki verður lengur hægt að nota lögin sem afsökun og ástæðu fyrir trúarlegri starfsemi
og boðun í skólum landsins.
Mannréttindi barna ganga ekki út á spurninguna um meirihluta- eða minnihlutahópa foreldra þeirra, heldur að
börnin fái faglega menntun og frið í skólastarfi frá hvers kyns utanaðkomandi starfsemi eins og trúboði og
pólitískri innrætingu. Skólinn er fræðslustofnun, en ekki trúboðsstofnun.
Siðmennt vonar að um þetta frumvarp verði þverpólitísk samstaða og landsmenn lýsi yfir eindregnum stuðningi
sínum við það hvarvetna. Það er mikið í húfi því hlutlægan, veraldlegan grunn menntakerfisins þarf að vernda
og styðja - öllum til góða.
• Siðmennt er ekki og hefur aldrei verið mótfallið kristinfræðslu í skólum
Siðmennt hefur alltaf stutt öfluga kennslu um trúarbrögð þar sem eðlilegt er að kristni og ásatrú fái aukna áherslu
í ljósi sögu þjóðarinnar. Siðmennt mótmælir því hins vegar að trúboð og trúarlegar athafnir fari fram í opinberum
skólum.
• Siðmennt er ekki á móti því að haldið sé upp á litlu-jól í skólum
Því hefur verið haldið fram að Siðmennt vilji láta banna litlu-jólin í skólum. Því hefur enn fremur verið haldið
fram að Siðmennt vilji banna jóla- og páskafrí. Allt er þetta rangt.
• Siðmennt eru ekki „hatrömm samtök“
Þann 30. nóvember s.l. var hermt eftir biskupi Þjóðkirkju Íslands í frétt 24-Stunda að Siðmennt væru „hatrömm
samtök“.
Þessi ummæli eru í hróplegu ósamræmi við þann orðstír sem Siðmennt nýtur sem siðsamt, málefnalegt og ábyrgt
lífsskoðanafélag. Það hefur m.a. verið tilnefnt til verðlauna fyrir mikilvæg störf í þágu æskulýðsmála á landinu.
Ummæli biskups eru ærumeiðandi og ósönn.
• Siðmennt býður þeim 1/5 hluta þjóðarinnar sem er trúlaus1 ásamt öðrum val um
mikilvægar félagslegar athafnir fjölskyldunnar og berst fyrir jafnrétti lífsskoðanafélaga.
Borgaraleg ferming á vaxandi vinsældum að fagna og á næsta ári á hún 20 ára afmæli.
Veraldlegar / húmanískar giftingar, útfarir og nafngiftir. Með vorinu 2008 mun Siðmennt bjóða upp á þjónustu
þjálfaðra athafnarstjóra fyrir þessar mikilvægu félagslegu athafnir fjölskyldunnar.
Siðmennt berst fyrir því að á Alþingi verði borið fram lagafrumvarp þess efnis að trúlaus lífsskoðanafélög fái
réttindi og viðurkenningu til jafns við trúfélög. Með lífsskoðanafélagi er átt við félag sem aðhyllist ákveðna
siðferðislega sannfæringu og býður upp á ofangreindar félagslegar athafnir fyrir fjölskyldur í landinu.
Siðmennt óskar landsmönnum öllum gleðilegra hátíða og farsæls nýs árs!
SIÐMENNT - FÉLAG SIÐRÆNNA HÚMANISTA Á ÍSLANDI
1Skv. Gallup könnun á vegum Þjóðkirkjunnar árið 2004
Auglýsingin var fjármögnuð með frjálsum framlögum meðlima í Siðmennt og er þeim hjartanlega þakkað fyrir.
Nánari upplýsingar á sidmennt.is