Fréttablaðið - 07.12.2007, Síða 46
BLS. 8 | sirkus | 7. DESEMBER 2007
Leikkonan Edda Björg Eyjólfs-dóttir hefur komið víða við á glæstum ferli og unnið ófáa leik-
sigra, bæði á sviði og í sjónvarpi.
Þessa dagana er Edda Björg á fullu
við æfingar á verkinu Vígkonur sem
verður frumsýnt í janúar í Þjóðleik-
húsinu. Jafnframt tekur hún þátt í
leiksýningunni Konan ein sem sýnt
er á Smíðaverkstæðinu. Þrátt fyrir
mikið annríki gaf Edda Björg sér tíma
til að opna dyrnar að undurfögru
heimili sínu. „Við fjölskyldan fluttum
hingað inn í nóvember árið 2005 og
höfum jafnt og þétt verið að gera
íbúðina upp,” segir Edda Björg sem
býr í gömlu fallegu húsi ásamt eigin-
manni sínum Stefáni Má tónlistar-
manni og syninum Kolbeini Daða.
Húsið stendur við Miðstræti, eina
mest heillandi götu Þingholtanna.
Húsið var byggt árið 1905 og er svo-
kallað „katalóg“-hús sem flutt voru til
landsins í kringum 1900. Fjölskyldan
hefur lagt mikið upp úr því að leyfa
upprunalega stílnum að halda sér og
hefur unun af því að blanda saman
gömlu og nýju og það er nostrað við
hvert smáatriði. „Arkitektúr hefur
alla tíð heillað mig. Á síðasta árinu
mínu í Leiklistarskólanum íhugaði ég
meira að segja að söðla algerlega um
og byrja í arkitektanámi,“ segir leik-
konan fjölhæfa þegar hún er spurð
hvort hún hafi aldrei velt fyrir sér að
læra hönnun frekar en leiklist. Hún
hefur þó ekki langt að sækja hæfileik-
ana því faðir hennar er arkítekt og
bróðir hennar er í arkítektanámi. „Ég
hef mjög mikinn áhuga á öllu sem
tengist hönnun og arkitektúr. Ég gæti
vel hugsað mér að vinna við að gera
upp gömul hús og koma þeim í sitt
upprunalega horf, þannig að þau fái
notið sín sem best,“ bætir Edda Björg
við. Henni finnst áberandi hversu
stöðluð og keimlík íslensk heimili
eru. „Svo virðist sem Íslendingar hafi
mótað sér sama stílinn. Allt verður
að vera hvítt og glansandi, engar
myndir á veggjum og ekkert uppi á
borðum.“
Því fer fjarri að glansandi naum-
hyggjustílinn höfði til Eddu Bjargar.
„Innanhússarkitektar virðast gera út á
að setja upp sömu innréttingu og
sama stíl inn í hvert einasta hús án
þessa að taka tillit til þess hvenær
húsið var byggt. Það ætti að vera
skylda að skoða hvaða karakter húsið
og íbúðin hafa að geyma áður en haf-
ist er handa við breytingar. Ég hvet
fólk að sigla móti hvítum glansandi
naumhyggjustílnum sem er ríkjandi
og finna sinn eigin stíl,“ segir Edda
Björg og er mikið niðri fyrir. Íbúð Eddu
er gott dæmi um heimili þar sem upp-
runalegu skipulagi og anda hefur
verið leyft að halda sér án þess þó að
íbúðin verði eins og antíksala. Hún er
mikil safnari eins og heimilið ber vitni
um. „Ég safna steinum og síðan er ég
veik fyrir talnaböndum, krossum og
íkonum. Það er einhver góður andi
sem fylgir þessum hlutum,“ segir Edda
Björg en hún leggur mikið upp úr að
hafa hluti í kringum sig sem hafa til-
finningalegt gildi fyrir hana.
Í borðstofunni og stofunni þekja
gamlar ljósmyndir veggina í bland
við nútíma myndlist, krossa og
postulínsandlit og mynda skemmti-
lega umgjörð um rýmið. „Mér þykir
rosalega vænt um málverkið eftir
Húbert Nóa sem Stefán gaf mér í trú-
lofunargjöf.“ En málverkið er í borð-
stofunni sem er uppáhaldsrými fjöl-
skyldunnar. „Stolt heimilisins og
nýjasta fjárfestingin er þó málverk
eftir Eggert Pétursson myndlistar-
mann. Okkur hafði lengi langað í
verk eftir hann og létum verða af því
að fjarfesta í einu slíku í haust.“ Mál-
verkið, mynd af lúpínu sem virðist
enn vera að vaxa á striganum, hangir
fyrir ofan eldgamlan kirkjubekk á
ganginum og tekur á móti gestum
þegar gengið er í íbúðina. Lúpínan er
vel í sveit sett í ævintýralegri íbúð
Eddu þar sem allt virðist geta gerst.
Á heimilinu er fullt af skemmtileg-
um hlutum og húsgögnum sem eru
hvert öðru fallegra. Í hjónaherberg-
inu hangir gömul rúmfjöl yfir rúm-
gafli þeirra hjóna en Stefán gaf Eddu
fjölina í jólagjöf. „Mig hafði lengi
dreymt um að eignast gamla rúmfjöl.
Ég hafði deilt þessum draumi með
vinkonu minni Önnu Ringsted, eig-
anda verslunarinnar Fríðu frænku.
Þegar Anna komst yfir gamla rúmfjöl
rétt fyrir jólin hringdi hún í Stefán og
tilkynnti honum að jólunum væri
borgið. Hún væri komin með jóla-
gjöfina handa mér sem væri þessi
forláta rúmfjöl,“ segir Edda Björg um
rúmfjölina sem vakir og sefur yfir
þeim hjónum. Rúmfjölin er eflaust
það elsta í íbúðinni en hún er frá
árinu 1876 og bíður þess að fara í
frekari greiningu á Þjóðminjasafn-
inu. „Mig langar rosalega til að láta
lesa út úr skriftinni á henni og kom-
ast að því hver eigandi hennar var,“
bætir Edda Björg við.
Það er margt sem fangar augað í
EDDA EYJÓLFSDÓTTIR LEIKKONA
ÆVINTÝRAVERÖLD Í MIÐSTRÆ
1 Fagurkerinn Edda Björg á
heimili sínu þar sem
smekklegheitin eru allsráðandi.
2 Útsýni yfir tjörnina. Úr
borðstofunni sést í kaþólsku
kirkjuna og tjörnina. Lampinn
er úr versluninni Kisunni á
Laugavegi.
3 Krúttlegt eldhús. Opnu
hillurnar eru alveg í stíl við
innviði íbúðarinnar en húsið var
byggt um þarsíðustu aldamót.
4 Leikkonan hefði orðið
arkítekt ef leiklistarbakterían
hefði ekki heltekið hana. Hún
hefur unun af því að búa til
uppstillingar og hún er flink í
því að blanda hlutum saman á
skemmtilegan hátt.
1 2
2
1
3 4
1 Stofan og hægindastóllinn er
uppáhaldshúsgagn Eddu Bjargar.
2 Ævintýraleg uppstilling í eldhúsinu.
3 Borðstofan er eftirlætisstaður
fjölskyldunnar í Miðstrætinu.
4 Rómantískt svefnherbergi Eddu
Bjargar og Stefáns og forláta
rúmfjölin.