Fréttablaðið - 07.12.2007, Blaðsíða 86
50 7. desember 2007 FÖSTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Steinþór Helgi Arnsteinsson
Þær sorgarfréttir bárust í lok
október, algjörlega að óvörum,
að tónlistarvefmiðillinn Stylus
Magazine væri hættur störfum.
Vefurinn hefur lengi þótt með
mikilsvirtustu tónlistarmiðlum
nútímans enda var hægt að
finna þar daglega ógurlega flóru
af alls kyns efni tengdu tónlist,
og reyndar kvikmyndum einnig
(Stylus hefur meðal annars birt
stórar umfjallanir um Alþjóð-
lega kvikmyndahátíð í Reykja-
vík undanfarin tvö ár). Vefurinn
birti vanalega fjóra plötudóma á
hverjum virkum degi og hafði
virkilega gott auga fyrir
forvitnilegri tónlist af öllu tagi.
Sem dæmi má nefna að Stylus
birti í október dóm um plötu
Sam Amidon, sem kemur út á
vegum hins íslenskættaða
plötufyrirtækis Bedroom
Community. Sem er reyndar
ekki í frásögur færandi nema
fyrir þá staðreynd að platan kemur ekki út fyrr en í mars á næsta ári.
Að þessu leyti má líkja Stylus við Pitchfork, þekktasta veftónlistar-
miðil dagsins í dag, það er hvernig þessir tveir miðlar hafa bent manni
á haug góðrar tónlistar sem maður hefði líklegast annars farið á mis
við. Í tilfelli Stylus verð ég fyrir mitt leyti sérstaklega að nefna
Todosantos frá Venesúela, Lindström frá Noregi og OOIOO frá Japan.
Takk, Stylus.
Stylus-vefurinn er reyndar ennþá opinn og ég hvet alla til þess að
kíkja á síðuna meðan enn gefst tækifæri til (www.stylusmagazine.
com). Þar má líka finna helling af alls kyns uppgjöri. Fyrir þá sem hafa
einmitt aldrei kíkt á Stylus en sjá eftir því er til dæmis hægt að skoða
„best of“ Stylus. Þar sést líklegast best hversu víðtækt og gott Stylus
Magazine var.
Stylus reið líka á vaðið og birti lista yfir bestu plötur ársins enda
ekki ástæða til annars. Efst þar á blaði var platan Sound of Silver með
LCD Soundsystem og skyldi engan undra. Someone Great með sömu
sveit var einnig í efsta sæti yfir bestu lög ársins. Árslisti Stylus gefur
að mörgu leyti tóninn fyrir komandi árslista, sem eru reyndar farnir að
hrannast inn. Þó má setja nokkur spurningarmerki við árslistann hjá
Stylus. Hvar er til dæmis Beirut-platan? Eða Jens Lekman? Af hverju
eru Battles- og of Montreal-plöturnar ekki ofar á lista? Og hvernig
komust Miranda Lambert og Lil Wayne inn á topp tíu? Hvað svo sem
því líður getur maður ekki annað en þakkað Stylus Magazine fyrir vel
unnin störf. Það er því með söknuði í hjarta sem maður kveður Stylus
af yfirborði netsins.
Hvíl í friði, Stylus
LCD SOUNDSYSTEM Sound of Silver er plata
ársins að mati Stylus Magazine sem nú
hefur lagt upp laupana.
Systkinin Óskar, Ómar og Ingibjörg Guðjóns-
börn hafa gefið út sína fyrstu plötu saman
sem heitir Ó Ó Ingibjörg. „Við erum fjögur
systkinin en þrjú sem störfum í músík. Við
bræðurnir höfum spilað mjög mikið saman,
til dæmis í Jagúar og með Tómasi R. en það
hefur alltaf legið í loftinu að gera eitthvað
með systur okkar,“ segir saxófónleikarinn
Óskar Guðjónsson.
Lögin á plötunni eru gömul íslensk sönglög
við ljóð eftir mörg af þekktustu skáldum
Íslendinga. „Þessi lög eru þekkt í allt öðrum
búningi heldur en við setjum þau í. Hún
Ingibjörg kynnti okkur fyrir þessum lögum
og þar græddi maður enn einn fjársjóðinn
sem maður vissi ekki að væri til,“ segir
Óskar.
Útgáfutónleikar vegna plötunnar verða í
Salnum í Kópavogi 20. desember. - fb
Systkini sameinast
SYSTKINI Systkinin Óskar, Ómar og Ingibjörg hafa gefið
út sína fyrstu plötu saman. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Lengi hefur verið beðið eftir fyrstu
plötu Benny Crespo’s Gang enda
sveitin verið áberandi í íslensku
rokksenunni um nokkurt skeið.
Plata með sveitinni er því meira en
lítið velkomin á matardisk íslensku
þjóðarinnar.
Platan hefst líka með ofsafjöri.
„It’s the end of the universe / and
we’re going down with it“ er raun-
veruleikinn eins og hann blasir við
manni í 123323, einu besta lagi plöt-
unnar. Eftir næsta lag, Next Week-
end, sem að mínu mati er með sístu
lögum plötunnar, eru Muse-áhrifin
strax orðin augljós. Aðrir og fleiri
áhrifavaldar koma síðan upp á yfir-
borðið smám saman.
Annað sem kemur fljótt í ljós er
hversu vandaður hljómur plötunn-
ar er og hversu fagmannlega er að
verki staðið. Alls kyns (ó)hljóð og
framúrstefnulegar hljóðvinnslu-
pælingar eru einnig fyrirferðar-
miklar við fyrstu hlustanir en síðan
spyr maður sig hvort þau leiði
mann eitthvert. Og þá vandast
málið. Helst finnst mér nokkrar
hljóðgervlapælingar koma vel út,
sérstaklega bassahljóðgervlarnir.
Helsti galli plötunnar er nefni-
lega sá að nær allan tímann er eins
og maður standi á miðju Klambra-
túni um miðja nótt, einn gegn fjór-
um, með spennta magavöðva, lokuð
augun og bíði eftir að höggin dynji
á manni en ekkert gerist. Áþreifan-
legur slagkraftur er þess vegna það
helsta sem plötuna vantar.
Margt gott prýðir hins vegar
plötuna. Útvarpsslagararnir Shine
(sem er reyndar lengt um helming
af, svo virðist vera, óútskýranleg-
um ástæðum) og Johnny’s Got a
Baby standa fyrir sínu og lag eins
og Numb Face gæti einnig gert
góða hluti á öldum ljósvakans. Í
Conditional Love finnst mér BC’S
Gang sýna best mátt sinn og megin,
þó að margir gætu sagt lagið hljóma
einum of líkt einhverju með Mars
Volta. BC’s Gang er samt greinilega
komin til að vera og sannar sig sem
ein af betri rokksveitum landsins.
Steinþór Helgi Arnsteinsson
Hvar eru höggin Benny?
TÓNLIST
Benny Crespo´s Gang
Benny Crespo´s Gang
★★★
Skilur mann ekki eftir í andköfum
en sem meginstraumsrokkplata
virkar hún meira en ágætlega.
> Plata vikunnar
Hjaltalín - Sleepdrunk Seasons
★★★★★
„Magnaðar lagasmíðar, fram-
úrskarandi flutningur og frum-
legar útsetningar gera þessa
fyrstu plötu Hjaltalín að einni
af bestu plötum ársins.“
TJ
> Í SPILARANUM
Ray Davies - Working Man‘s Café
ÓÓ Ingibjörg - ÓÓ Ingibjörg
Tómas R. Einarsson - Rommtommtechno
Jay-Z - American Gangster
Benni Hemm Hemm - Ein í leyni
RAY DAVIES BENNI HEMM HEMM
Um fátt er meira talað í
tónlistarheiminum í dag en
endurkomu Led Zeppelin.
Trausti Júlíusson skoðaði
málið og kynnti sér nokkrar
nýjar útgáfur með sveitinni.
Eins og kunnugt er kemur breska
ofurrokksveitin Led Zeppelin
saman og spilar á tónleikum til
minningar um Ahmet Ertegun,
stofnanda Atlantic plötufyrirtæk-
isins, í London á mánudaginn. Það
er Jason Bonham, sonur John Bon-
ham, fyrrum Zeppelin-trommara,
sem lést árið 1980, sem tekur sæti
föður síns við settið og spilar með
þeim John Paul Jones, Jimmy
Page og Robert Plant.
Nokkrar ástæður eru fyrir
endur komunni. Sveitin vill gjarn-
an heiðra minningu Ahmets sem
lést 14. desember í fyrra, en þeir
félagar dáðu hann og dýrkuðu. Það
kemur líka fram í viðtölum við
Jimmy Page að sveitin var síður
en svo ánægð með frammistöðu
sína á hinum tveimur endurkomu-
tónleikunum, Live Aid árið 1985
og 40 ára afmæli Atlantic Records
1988. Nú á að gera þetta almenni-
lega. Sveitin hefur æft síðan í
sumar og bæði Plant og Page eru
sammála um að eldmóður Jasons
og brennandi áhugi hafi kveikt
neistann í „þremur önugum gaml-
ingjum“ eins og Plant orðar það í
viðtali við Mojo. Upphaflega stóð
til að Zeppelin spilaði í klukku-
tíma á endurkomutónleikunum, en
nú er talað um að minnsta kosti 90
mínútur …
Móðurskipið
Seldir voru 18.000 miðar á tónleik-
ana á mánudaginn, en talið er að
yfir tuttugu milljónir hafi reynt að
ná í miða. Þeir Zeppelin-aðdáendur
sem ekki fengu miða geta þó glaðst
yfir nýjum útgáfum með sveitinni
sem eru nýkomnar í verslanir.
Fyrst skal nefna nýja safnplötu
sem spannar allan feril bandsins,
Mothership, en þessi tvöfaldi
diskur hefur að geyma 24 endur-
hljóðblönduð lög sem Jimmy Page,
Robert Plant og John Paul Jones
völdu. Hann er líka fáanlegur í við-
hafnarútgáfu með níutíu mínútna
DVD-disk með tónleikaefni.
Mother ship er unninn af hinu
mikils virta endurútgáfufyrirtæki
Rhino og allur frágangur og
umbúðir eru sérstaklega flott. Í
plötubæklingi er texti eftir Íslands-
vininn og Jakobínurínu-
aðdáandann David Fricke, blaða-
mann Rolling Stone.
Alræmd tónleikamynd
Mothership er frábær pakki fyrir
þá sem ekki þekkja Zeppelin mjög
vel. Hörðustu aðdáendurnir eru
samt sennilega ennþá spenntari
fyrir nýrri útgáfu tónleikamyndar-
innar The Song Remains the Same.
Kvikmyndin sjálf er nú endur-
útgefin með glás af aukaefni og
tvöföld viðhafnarútgáfa með tón-
listinni úr kvikmyndinni er nýút-
komin með stórlega bættum hljómi
og sex lögum sem ekki voru á upp-
runalegu útgáfunni. Í textabókinni
er svo ritgerð eftir Cameron
Crowe.
The Song Remains the Same kom
upprunalega út árið 1976 og var
tekin upp á þremur tónleikum sem
sveitin hélt í Madison Square
Garden í New York árið 1973.
Myndin þótti ekki mjög vel
heppnuð á sínum tíma. Jimmy Page
var til dæmis hundóánægður með
hana. Hann þykir hafa gert krafta-
verk í endurhljóðvinnslu á upp-
runalegu upptökunum ásamt ofur-
hljóðmanninum Kevin Shirley.
Tónleikaferð á næsta ári?
Stóra spurningin sem margir
Zeppelin-aðdáendur spyrja sig
þessa dagana er hvort hljómsveit-
in fari í tónleikaferð á næsta ári
eða ekki. Ekkert er vitað fyrir víst
um það ennþá, en sögusagnir um
Glastonbury og bandarísku tón-
listarhátíðina Bonnaroo hafa
gengið að undanförnu. Eftirspurn-
in er gríðarleg, en þeir eru þó til
sem vona að af tónleikaferðinni
verði ekki. Plata Robert Plant og
Alison Krauss, Raising Sand, þykir
frábær og var nýlega valin plata
ársins af Sunday Times. Sumir
telja að það mundi bara skemma
fyrir frekari tónlistarsigrum
Robert Plant ef Zeppelin-endur-
koman drægist á langinn …
Langþráð endurkoma
LED ZEPPELIN Endurkomutónleikar á mánudaginn, ný safnplata og mikið endurbætt
útgáfa af tónleikamyndinni The Song Remains the Same.