Fréttablaðið - 07.12.2007, Side 90

Fréttablaðið - 07.12.2007, Side 90
 7. desember 2007 FÖSTUDAGUR Í fangelsi yfir hátíðirnar Leikarinn Kiefer Sutherland mun eyða jólunum og 41 árs afmælisdegi sínum í fangelsi í Los Angeles. Hann hóf í gær afplánun á 48 daga dómi sínum. Fangelsisdómur Kiefers var staðfestur í gær. Upphaflega ætlaði hann að afplána dóminn í tveimur hlutum en ákvað að drífa fangelsisvist- ina af. Kiefer var handtekinn fyrr á árinu fyrir ölvunarakstur. Var þetta í annað skiptið á þremur árum sem hann var tekinn fullur undir stýri og braut hann þar með skilorðið. Slagur við Jack Bauer Leikarinn óttast að samfangar sínir reyni að slást við sig í fangelsinu vegna hlutverks hans í spennu- þáttunum 24. „Þeir eiga allir eftir að reyna að slást við Jack Bauer. Ég þarf að vera á varðbergi en ég er viðbúinn öllu,“ sagði Kiefer, sem hefur víst stundað stífa líkamsrækt að undanförnu. Starfsmaður í fangelsinu segir að fangelsisvist- in sé ekkert grín. „Þarna þýðir ekkert mont. Þessi staður er erfiður og menn þurfa að lifa eftir ákveðnum reglum. Þetta fangelsi er reyndar ekki eitt af þeim verstu en það er samt erfitt að afplána dóma þarna. Það getur vel verið að hann hafi stundað líkamsrækt en það skiptir suma þarna engu máli,“ sagði hann. Í þvottahúsi og mötuneyti Kiefer mun dvelja einn í litlum fangaklefa með tveimur rúmum, klósetti og annarri hreinlætis- aðstöðu. Hann þarf að inna af hendi hefðbundin störf fanga, þar á meðal í þvottahúsinu og í mötu- neytinu. Hann hefur einnig aðgang að útivistar- svæði og má fá tvær heimsóknir á dag. Stoltur af syninum Donald Sutherland, faðir Kiefers, segir að sonur sinn hafi hagað sér með miklum sóma síðan hann braut af sér. Sömu sögu sé ekki að segja af öðru fólki sem hafi hagað sér af algjöru virðingarleysi skömmu eftir atburðinn. „Það eina sem ég gert sagt er að hann er heiðarlegasti og ábyrgasti maður sem ég þekki og ég elska hann af öllu hjarta. Það eru önnur öfl í okkar samfélagi sem haga sér ekki eins vel en hann stóð sig með sóma.“ Engin íslensk áramót Margir muna eflaust eftir komu Kiefers hingað til lands fyrir tveimur árum þegar hann kom til að fylgjast með tónleikum vinar síns Rocco Deluca á Nasa. Meðal annars sást til leikarans á Dillon í miklu stuði með viskíflösku í hendi. Dvaldi hann hér yfir áramótin og heillaðist mjög af flugeldasýningu landsmanna. Ljóst er að áramót hans verða ekki eins gleði- leg í þetta sinn, því innan harðneskjulegra fang- elsismúranna er engin miskunn sýnd. KIEFER SUTHERLAND Leikarinn góðkunni verður ekki í faðmi fjölskyldunnar um þessi jól. Reykjavík Faxafen 12 S. 533-1550. Keflavík Hafnargata 25 S. 421-3322 Virka daga 10 – 18 Laugard. 11 – 16 Sunnud. 13-17 NÝTT KORTATÍMABIL
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.