Fréttablaðið - 07.12.2007, Page 98
62 7. desember 2007 FÖSTUDAGUR
HNEFALEIKAR Eftir mikinn fjöl-
miðlasirkus undanfarna daga í
tengslum við stórbardaga Ricky
Hatton og Floyd Mayweather sem
fram fer í Las Vegas í Bandaríkj-
unum aðfaranótt sunnudags,
reyndu hnefaleikakapparnir að
halda aftur af sér í orðaskakinu á
lokafjölmiðlafundi í fyrrakvöl.
„Það er tími til að hlæja og
grínast eins og ég á að mér, en sá
tími er liðinn núna þegar bardag-
inn er að skella á,“ sagði Hatton,
sem stóðst þó ekki mátið að skjóta
létt á Mayweather.
„Ég trúi ekki hvað munurinn er
lítill á stuðlunum fyrir bardagann
hjá veðbönkunum, miðað við allt
sem Mayweather og hans menn
voru að segja um að ég væri bara
lítill feitur bjórþambandi Breti
sem gæti ekkert. Nei, í sannleika
sagt þá held ég að þetta eigi eftir
að ganga fínt hjá þér Floyd,“ sagði
Hatton í kaldhæðnistón.
Það ætlaði svo allt um koll að
keyra á fjölmiðlafundinum þegar
Hatton lagðist örlítið á May-
weather þegar þeir stóðu augnliti
til augnlitis á fundinum og þeim
var stíað í sundur í framhaldinu.
„Hann sagði snertu mig ekki og
ef hann pirrast yfir svona smá-
ræði þá veit hann ekki hverju
hann á von á þegar kemur í hring-
inn,“ sagði Hatton en Mayweather
kvaðst hins vegar vita nákvæm-
lega hverju hann mætti búast við
frá Hatton.
„Ég hef mætt öllum tegundum
af hnefaleikaköppum og Hatton
hefur ekkert fram að færa sem ég
hef ekki séð áður. Ég verð samt til-
búinn og hef aldrei vanmetið einn
né neinn. Ef ég á að vera alveg
heiðarlegur þá virkaði Hatton
frekar stressaður, en það er svo
sem ekkert nýtt að mótherjar
mínir hagi sér á þennan hátt þegar
þeir eru að fara að mæta mér,“
sagði Mayweather af sinni alkunnu
hógværð.
- óþ
Ricky Hatton og Floyd Mayweather berjast í Las Vegas næstkomandi laugardag:
Styttist óðum í bardaga ársins
SPENNA Gríðarleg eftirvænting hefur skapast fyrir bardaga Ricky Hatton og Floyd
Mayweather eftir mikið orðaskak þeirra í fjölmiðlum undanfarið og talað er um
bardaga ársins. NORDICPHOTOS/GETTY
Sendu sms
BTC BMF
Á númerið
1900og þú
gætir unnið!
Vinningar eru DVD myndir,
varningur tengdur myndinni
og margt fleira!
SMS
LEIKUR
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
1
49
k
r/
sk
ey
tið
.
Kemur í verslanir 6. desember!
FÓTBOLTI Samkvæmt heimildum
BBC Sport mun enska knatt-
spyrnusambandið líklega leita til
David Beckham í sambandi við að
vera andlit umsóknar Englend-
inga til að halda heimsmeistara-
mótið í knattspyrnu árið 2018.
Beckham er ekki alveg
ókunnur kynningarstörfum sem
þessum, eða fyrirsætustörfum
yfir höfuð, þar sem hann hjálpaði
til við að kynna umsókn Englend-
inga til að halda ólympíuleikana
árið 2012. Sú umsókn var einmitt
samþykkt, en England mun án
vafa fá mikla samkeppni frá
Ástralíu, Rússlandi, Kína,
Bandaríkjunum, Hollandi og
Belgíu sem hafa öll lýst yfir
áhuga á að halda HM í knatt-
spyrnu árið 2018. - óþ
HM í knattspyrnu árið 2018:
Kapphlaupið
þegar hafið
FRÆGUR David Beckham er þekkt and-
lit. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Younes Kaboul, varnar-
maður Tottenham, hefur ekki átt
sjö dagana sæla upp á síðkastið.
Frakkinn ungi, sem Tottenham
keypti frá Auxerre á tæpar átta
milljónir punda síðasta sumar,
hefur gert dýrmæt mistök í
síðustu leikjum liðsins og fyrir
vikið var hann ekki einu sinni í
leikmannahópi Tottenham þegar
liðið mætti Anderlecht.
Það er ef til vill ekki í frásögur
færandi nema hvað að liðið á í
miklum erfiðleikum með meiðsli
og þá sérstaklega í vörn, þar sem
Ledley King, Ricardo Rocha og
Anthony Gardner eru allir frá
vegna meiðsla. - óþ
Younes Kaboul, Tottenham:
Er úti í kuldan-
um hjá Ramos
BOX Wayne Rooney mun ekki
standa í horninu hjá Ricky Hatton
er hann mætir Floyd Mayweather
á laugardag en Rooney stóð við
hlið Hattons í síðasta bardaga.
Rooney spilar með Man. United
gegn Derby á laugardag og ætlar
ekki að leggja á sig að fljúga í
kjölfarið til Vegas en mun þó
fylgjast með í sjónvarpi og hvetja
félaga sinn Hatton til dáða. - hbg
Hatton-Mayweather:
Rooney ekki til
Las Vegas
HANDBOLTI Fram-konur eru komn-
ar á topp N1-deildar kvenna í
handbolta eftir að hafa lagt
Íslandsmeistara Stjörnunnar í
ótrúlegum leik í gærkvöldi, 21-20.
Guðrún Þóra Hálfdánardóttir
skoraði sigurmark Fram um leið
og lokaflautan gall. Þjálfarar
beggja liða fóru vægast sagt
ófögrum orðum um dómara leiks-
ins.
Liðin skiptust á að skora fyrstu
mínúturnar en Rakel Dögg Braga-
dóttir fór mikinn og skoraði fimm
af fyrstu sjö mörkum Stjörnunar.
Fram leyfði Íslandsmeisturunum
þó ekki að stinga sig af í sínu eigin
húsi og jöfnuðu leikinn í 6-6.
Dómarar leiksins voru snöggir
að missa tök á leiknum og með því
fóru varamannabekkir beggja liða
að æsa sig og áhorfendur með.
Fram leiddi í hálfleik, 13-11.
Upphaf seinni hálfleiks snerist
lítið um handbolta. Dómarar leiks-
ins áttu nokkra dóma sem voru
athyglisverðir í meira lagi og
þjálfarar beggja liða voru hrein-
lega farnir að sleppa sér. Lítið var
skorað en Fram hélt frumkvæðinu
og náði í fyrsta skipti þriggja
marka forystu, 15-12, með fallegu
marki frá Anett Köbli.
Stjarnan jafnaði leikinn í 17-17
og upp frá því hófst ótrúleg
spenna. Liðin skiptust á að skora
og þegar 50 sekúndur voru eftir
hafði Stjarnan boltann í stöðunni,
20-20. Sókn liðsins heppnaðist ekki
og var dæmd á Stjörnuna leik-
leysa þegar ellefu sekúndur voru
eftir og þá tók Einar Jónsson,
þjálfari Fram, leikhlé. Hann stillti
upp í síðustu sókn sem endaði með
því að Guðrún Þóra Hálfdánar-
dóttir skoraði úr horninu þegar
lokaflautan gall. Fram-sigur, 21-
10, í spennuþrungnum leik.
Þrátt fyrir sigurinn var Einar
Jónsson allt annað en sáttur með
dómgæsluna. „Ég er brjálaður
yfir dómgæslunni í þessum leik.
Þetta er orðið þannig að við þurf-
um að vera það góð að dómararnir
geta ekki skemmt þetta fyrir
okkur. Þetta er ekki í fyrsta skiptið
sem við björgum okkur svona í
lokin og þetta sýnir bara ótrúleg-
an karakter hjá stelpunum
mínum,“ sagði Einar og brosti í
gegnum reiðina.
Fram-konur fóru ekki strax inn
á völl þegar síðasta leikhléið
þeirra var búið og Aðalsteinn Eyj-
ólfsson, þjálfari Stjörnunnar, var
brjálaður og vildi fá boltann aftur.
„Þau fá tveggja mínútna leikhlé
undir lokin og eru lengur en tvær
mínútur í því. Þá eigum við að fá
boltann aftur,“ sagði Aðalsteinn,
sem hafði ýmislegt að segja um
dómara leiksins.
„Teljið bara skrefdómana og
ruðningana sem við erum að fá á
okkur í þessum leik og berið það
saman við Fram. Hér í dag voru
bara bestu vinir Einars Jónssonar,
þjálfara Fram, að dæma. Dómar-
arnir og Einar eru bestu vinir og
sjást ótt og títt saman. Allir þessir
rugldómar sem við fengum á
okkur neyddu liðið mitt í að bakka
undan því og því var mjög erfitt
að ráða við þetta,“ sagði Aðal-
steinn. - tom
Dómararnir eru bestu vinir
þjálfara Fram-liðsins
Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari Stjörnunnar, vandaði dómurunum í toppslag
Fram og Stjörnunnar ekki kveðjurnar eftir leik liðanna í gær. Leikurinn var
spennuþrungin og Fram vann dramatískan sigur með marki á lokasekúndunni.
ÁTÖK Rakel Dögg Bragadóttir átti
frábæran leik fyrir Stjörnuna en fékk
oft að kenna á því hjá varnarmönnum
Fram. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KOMIN Í GEGN Landsliðskonan og Fram-stúlkan Þórey Rósa Stefánsdóttir átti ágætan
leik í gær og skorar hér eitt af þrem mörkum sínum í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
N1-deild kvenna:
Fram-Stjarnan 21-20
Mörk Fram (skot): Stella Sigurðardóttir 6 (15),
Guðrún Þóra Hálfdánardóttir 3 (4), Þórey Rósa
Stefánsdóttir 3 (5), Ásta Birna Gunnarsdóttir 3
(6/1), Anett Köbil 3 (12), Karen Knútsdóttir 1 (1),
Pavla Nevarilova 1 (1), Sigurbjörg Jóhannsdóttir
1 (3).
Varin skot: Kristina Kvedariene 17/1 (37/8)
45%
Hraðaupphlaup: 6 (Þórey 2, Guðrún, Stella,
Ásta, Pavla) Fiskuð víti: 3 (Pavla 2, Sigurbjörg)
Utan vallar: 12 mínútur
Mörk Stjörnunar (skot): Rakel Dögg Bragadóttir
11/6 (18/7), Sólveig Lára Kærnested 3 (5), Birgit
Engl 2 (3), Elísabet Gunnarsdóttir 2 (4), Ásta
Björk Agnarsdóttir 1 (2), Alina Petrache 1 (7).
Varin skot: Florentina Stanciu 17/1 (38/3) 44%
Hraðaupphlaup: 5 (Rakel 2, Sólveg 2, Elísabet)
Fiskuð víti: 8 (Elísabet 2, Birgit 2, Rakel, Ásdís,
Alina, Sólveig)
Utan vallar: 8 mínútur
UEFA-bikarinn:
Bayer Leverkusen-Sparta Prag 1-0
Spartak Moskva-FC Zürich 1-0
Aris Saloniki-Braga 1-1
Rauða stjarnan-Bolton 0-1
- Gavin McCann
AaB-Getafe 1-2
Anderlecht-Tottenham 1-1
Bart Goor - Dimitar Berbatov
Austria Vín-Panionios 0-1
Bordeaux-Helsingborg 2-1
Ólafur Ingi Skúlason var í byrjunarliði Helsing-
borg.
ÚRSLIT