Fréttablaðið - 13.12.2007, Síða 2

Fréttablaðið - 13.12.2007, Síða 2
2 13. desember 2007 FIMMTUDAGUR © In te r I KE A Sy ste m s B .V . 2 00 7 2.890,- IKEA STOCKHOLM skál Ø42 ryðfrítt stál VIÐSKIPTI Tólf mánaða verðbólga mælist nú 5,9 prósent, sam- kvæmt mælingu Hagstofu Íslands. Vísitala neysluverðs stendur nú í tæpum 282 stigum, hefur hækkað um 0,68 prósent frá því í nóvember. Fram kemur í Vegvísi Lands- bankans að verðbólga sé alla jafna ekki mikil í desember, hækkun vísitölunnar nú sé sú mesta síðan árið 1989. Þá var ársverðbólgan rúmlega 25 prósent. Hækkunin er að stórum hluta rakin til aukins kostnaðar við bifreiðar, hærra eldsneytisverðs og dýrari bíla. Þá hefur matur og drykkur hækkað í verði. Þá jókst húsnæðiskostnaður milli mánaða, bæði vegna hækkunar vaxta og markaðsverðs hús- næðis. - óká Verðbólga í 5,9 prósent: Mesta hækkun síðan árið 1989 Valtýr, er lóðabrask á Litla- Hrauni? „Það er allavega ekkert lóðarí á staðnum.“ Þyngstu lóðin í lyftingasal fangelsisins á Litla-Hrauni hafa verið fjarlægð. Íþrótta- fulltrúi fangelsisins segir að reynt sé að beina föngum að fjölbreyttari heilsurækt en kraftlyftingum. Valtýr Sigurðsson er forstjóri Fangelsismálastofnunar. IÐNAÐUR Samkvæmt áfangaskýrslu Fjórðungssam- bands Vestfjarða er ekkert því til fyrirstöðu að byggja olíuhreinusunarstöð í Arnarfirði eða Dýrafirði. „Þetta er frábær jólagjöf fyrir Vestfirðinga,“ segir Ragnar Jörundsson, bæjarstjóri í Vesturbyggð. Fjórðungssambandið kynnir niðurstöður skýrslunn- ar á Ísafirði í dag. Tveir staðir eru taldir koma til greina; Hvesta í Arnarfirði og Hólar og Sandar í Dýra- firði. „Ég get ekki séð nokkurn skapaðan hlut í þessari skýrslu sem væri fyrirstaða í málinu,“ segir Ragnar, sem kveður málið hafa verið skoðað með tilliti til umhverfis, fornminja, dýra- og plöntulífs, sjávardýpt- ar, ölduhæðar, veðurfars og samfélags. Það er fyrirtækið Íslensk hátækni sem gengst fyrir því að olíuhreinsunarstöð verði reist hérlendis. Forsvarsmenn fyrirtækisins eru Ólafur Egilsson og Hilmar Foss. Verkefnið mun kosta um eða yfir 300 milljarða króna og stöðin hreinsa um átta milljónir tonna á ári. Sagt er að um 500 manns fái þar vinnu. Ekki hefur verið gert uppskátt um bakhjarla tvímenn- inganna en rætt er um að það séu bæði rússneskir og bandarískir aðilar. „Nú er það í höndum Íslenskrar hátækni að velja staðinn. Við viljum endilega fá stöðina í Arnarfjörð- inn,“ segir Ragnar og upplýsir að vonast sé til að stöðin fari í umhverfismat eftir áramót og að hafist verði handa við að reisa hana á síðari hluta ársins. Vinna við bygginguna mun taka um fjögur og hálft ár. - gar Fjórðungssamband segir ekkert til fyrirstöðu olíuhreinsun á Vestfjörðum: Fá olíuhreinsunarstöð í jólagjöf ARNARFJÖRÐUR Bæjarstjórinn í Vesturbyggð er bjartsýnn á að olíustöð rísi á Vestfjörðum og vonast til að hún verði rétt við Bíldudal í Arnarfirði. NEYTENDUR Leikfangaverslunin Just4kids hefur ákveðið að mæta samkeppni á leikfangamarkaði með því að fara í verðstríð við Toys „R“ Us. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að Just4kids hafi frá fyrsta degi heitið því að vera ávallt með lægsta verðið á markaðnum og nú muni verðið lækka um 30 til 80 prósent. „Við vorum lægri en Toys „R“ Us í Kópavogi í síðustu könnun. Núna erum við miklu frekar komin í samkeppni við Toys „R“ Us í Minneapolis,“ segir Elías Þorvarðarson, framkvæmda- stjóri Just4kids. Toys „R“ Us og Just4kids eru stærstu leikfangaverslanir lands- ins. - þo Verðlækkanir í Just4kids: Stríð á leik- fangamarkaði DÓMSMÁL Landamæraverðir á Keflavíkurflugvelli stöðvuðu 27 ára karlmann með falsað vegabréf á leið hans úr landinu síðastliðinn föstudag. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan en það rennur út á morgun. Að sögn Eyj- ólfs Kristjánssonar hjá lögreglunni á Suðurnesjum verður ákæra gefin út á hendur manninum áður en gæsluvarðhaldið rennur út. Líklegt er að dómur gangi í málinu innan skamms, jafnvel á morgun. Í vegabréfi mannsins kom fram að hann væri sjö árum yngri en hann raunverulega er og ítalskur að uppruna, en í reynd er hann brasilískur. Maðurinn hafði komið hingað til lands undir því yfirskini að hann væri knattspyrnumaður. Sam- kvæmt upplýsingum frá Knatt- spyrnusambandi Íslands spilaði hann aldrei skráðan kappleik hér á landi en hann æfði til skamms tíma með íþróttafélaginu Stjörnunni í Garðabæ. Það hafði ekki milli- göngu um komu mannsins hingað til lands. Samkvæmt upplýsingum frá Eysteini Haraldssyni, fyrrverandi formanni meistaraflokksráðs Stjörnunnar, var aldrei samið við leikmanninn heldur fékk hann ein- ungis að koma á æfingar í skamm- an tíma. Maðurinn hafði framvísað föls- uðu vegabréfi hér á landi þegar hann fékk kennitölu og einnig þegar hann stofnaði reikninga í banka. Í heild er maðurinn grunaður um fjórþætt skjalafals- brot. Hann kom til landsins í vor. Brot af þessu tagi eru litin alvar- legum augum. Nýlega var pólskur karlmaður dæmdur í Héraðsdómi Austurlands í sex mánaða óskil- orðsbundið fangelsi fyrir skjala- fals og skjalabrot. Sá hafði starfað og búið hér á landi undir fölsku nafni frá því í maí í fyrra. Rannsókn leiddi í ljós að hann hafði ekki tekið út refsingu sína í Póllandi fyrir minni háttar brot þar í landi. magnush@frettabladid.is Ákærður fyrir að vera með falsað vegabréf Landamæraverðir stöðvuðu 27 ára karlmann með falsað vegabréf síðastliðinn föstudag. Hann hafði verið hér á landi undir því yfirskini að hann væri knatt- spyrnumaður. Ákæra verður gefin út áður en gæsluvarðhald rennur út á morgun. DÓMSALUR Í HÉRAÐSDÓMI REYKJANESS Manninum verður birt ákæra áður en gæsluvarðhald rennur út. Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness á morgun. Ströng viðurlög eru við því að vera með falsað vegabréf en pólskur karl- maður var nýlega dæmdur í sex mánaða óskilorðsbundið fangelsi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓLK Tímaritið Nýtt líf hefur valið Freyju Haraldsdóttur konu ársins 2007. Freyja hefur frá fæðingu glímt við mikla fötlun og hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir baráttu sína fyrir fordómalausu samfélagi. Fyrir þá baráttu hlaut hún einmitt samfélagsverðlaun Fréttablaðsins fyrr á þessu ári. Í umsögn Nýs lífs segir að Freyja sé „baráttukona með ríka réttlætiskennd sem hefur helgað líf sitt því að breyta viðhorfum til fólks með fötlun og stuðla að því að samfélagið geri ráð fyrir öllum“. - þo Nýtt líf velur konu ársins: Baráttukonan Freyja heiðruð FREYJA HARALDSDÓTTIR Freyja hefur breytt viðhorfi fólks til fatlaðra. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR Strangt vegabréfaeftirlit er á Keflavíkurflugvelli. Reglulega koma upp mál þar sem vegabréf reynast fölsuð en við því eru ströng viðurlög. Reynt er að klára málin á sem skemmstum tíma. Þegar menn eru teknir á Keflavíkurflugvelli eru mál þeirra oftar en ekki kláruð innan tveggja vikna. Málin geta verið flókin í vinnslu ef kemur í ljós að menn hafa dvalið hér og starfað undir fölsku nafni í nokkurn tíma. Þá þarf að rannsaka málin í samráði við yfirvöld í öðrum löndum og það getur verið tímafrekt. STRANGT EFTIRLIT MEÐ VEGABRÉFUM VIÐSKIPTI Ásgeir Ebenezersson athafnamaður sakar Björgólf Guðmundsson, Samson Properties og Landsbankann um að hafa stolið af sér hugmynd að uppbygg- ingu á svæði við Barónsstíg. Samson kynnti nýverið fyrir- hugaða bygginu verslunarmið- stöðvar þar, ásamt íbúðarhúsnæði og bílakjallara. Ásgeir segir að frá því að hann hafi farið með sínar hugmyndir til Landsbanka árið 2003 og þar til í fyrra, hafi hann talið Landsbankann ætla að fjármagna framkvæmdirnar með sér. Nú ætli félag aðaleiganda bankans að hirða af honum hugmyndina. - kóþ / sjá síðu 22 Ásgeir Ebenezersson: Sakar Samson um þjófnað MANNRÉTTINDI „Þetta átti bara að vera smá verslunarferð fyrir jólin,“ segir Erla Ósk Arnardóttir Lillien dahl, 33 ára markaðs- og sölustjóri, sem var handtekin við komuna til New York á sunnudag og haldið í hlekkjum fram á þriðju- dag. Við komuna var henni sagt að þar sem hún hefði fyrir tólf árum dvalið lengur í Bandaríkjunum en vegabréfsáritun hennar leyfði, yrði henni vísað úr landi. „Fyrstu fimm tímana var ég bara að vona að þetta væri að verða búið,“ segir Erla. „Mér var sagt að það væri að koma að því og ég trúði því.“ Í tíu tíma þurfti Erla að dúsa í yfirheyrsluherbergjum flugvallar- ins. „Þetta voru endalausir listar af spurningum,“ segir Erla. „Ég var spurð hvað foreldrar mínir gerðu, hvar þau væru búsett, hverrar trúar ég væri, hvort ég hefði verið þekkt undir öðru nafni og hvort ég væri á blæðingum. Þeir lögðu mikla áherslu á réttar dagsetning- ar um blæðingarnar.“ Eftir yfirheyrslurnar var hún flutt í hlekkjum klukkutíma leið til fangelsis í New Jersey. Þar var hún yfirheyrð aftur og fékk fyrstu mál- tíðina í fjórtán tíma. Á þriðjudags- morgun var hún svo flutt á flug- völlinn aftur, leidd hlekkjuð í biðsal Icelandair og losuð úr handjárnun- um í landganginum. Erla leitar nú réttar síns hjá utanríkisráðuneyt- inu. „Það furðulega við þetta er að mér var tilkynnt að ég mætti alveg koma aftur til Bandaríkjanna seinna,“ segir Erla. - sgj Íslensk kona var stöðvuð á flugvelli í New York og haldið í á annan sólarhring: Yfirheyrð um tíðahring sinn ERLA ÓSK Erla segist hafa verið andlega og líkamlega að þrotum komin eftir meðferðina. Ekið á Hreindýr í Lóni Aflífa þurfti hreindýr sem varð fyrir flutningabíl við Svínhóla í Lóni í gær- kvöld. Að sögn lögreglu er nokkuð um hreindýr við veginn á þessim slóðum og því vissara að fara varlega. LÖGREGLUFRÉTTIR SPURNING DAGSINS
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.