Fréttablaðið - 13.12.2007, Blaðsíða 4
4 13. desember 2007 FIMMTUDAGUR
VINNUMARKAÐUR Forysta Alþýðu-
sambands Íslands, ASÍ, afhenti
ríkisstjórninni í gær kröfugerð
gagnvart stjórnvöldum. ASÍ vill
að tekinn verði upp sérstakur
mánaðarlegur 20 þúsund króna
persónuafsláttur sem fari lækk-
andi frá 150 þúsund króna tekjum
og fjari út við 300 þúsund krónum
á mánuði. Framkvæmdin á per-
sónuafslættinum verði svipuð og
með barnabæturnar þannig að
staðgreiðslukerfinu verði ekki
raskað.
ASÍ vill einnig að skerðingar-
mörk barnabóta verði hækkuð í
150 þúsund krónur á hvern full-
orðinn. Tekjutenging vegna ann-
ars og þriðja barns lækki um eitt
prósentustig.
Skerðingarmörk vaxtabóta
verði hækkuð og sömuleiðis húsa-
leigubætur. ASÍ leggur einnig
áherslu á að stefnt verði að því að
ekki verði fleiri en tíu prósent á
vinnumarkaði án viðurkenndrar
starfs- eða framhaldsmenntunar
árið 2020. Þetta hlutfall er nú
fjörutíu prósent. Framlög til
starfsmenntunar og fullorðins-
fræðslu verði aukin í 500 milljónir
á ári sem er nánast hrein hækkun
á framlögum ríkisins.
Í kröfugerðinni er lögð fram
krafa um að tryggt verði að lág-
marksviðmið í velferðarkerfinu
verði á hverjum tíma skilgreind út
frá tekjudreifingu 25 ára og eldri
og miðist við helming af meðal-
tekjum þeirra. Samkvæmt þessu
yrðu lágmarksbætur 150 þúsund
krónur og með tekjuþróunartrygg-
ingu. Grunnatvinnuleysisbætur
verði 150 þúsund og hámarks-
bætur verði 270 þúsund á mánuði.
Ólafur Darri Andrason, hag-
fræðingur ASÍ, áætlar að persónu-
afslátturinn kosti ríkissjóð um 14
milljarða. Barnabæturnar kosti
um tvo milljarða og vaxtabæturn-
ar 3 til 3,5 milljarða. Samtals sé
þetta um 20 milljarðar en nettó-
áhrifin á ríkissjóð verði um 14
milljarðar.
„Við tökum því auðvitað vel að
það sé leitað til okkar með við-
ræður. Næsta skref verður að fara
yfir þetta vel og vandlega og
reikna út og velta fyrir sér hvað
gengur upp og hvað ekki, hvað er
eðlilegt að við blöndum okkur í og
hvað ekki,“ segir Geir H. Haarde
forsætisráðherra og vill ekki áætla
hvenær afstaða ríkisstjórnarinnar
liggur fyrir.
Félagsmálaráðherra hefur sagt
að bæta þurfi húsnæðismál hinna
lægstlaunuðu. Ekki er tæpt á því í
kröfugerð ASÍ.
Forsætisráðherra vill ekki segja
hvort búast megi við aðgerðum í
húsnæðismálum og þá hvenær.
ghs@frettabladid.is
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val
á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18.
Opið virka daga: 10-18
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
Tekjulágir fái aukaafslátt
Forysta ASÍ vill að tekinn verði upp sérstakur mánaðarlegur persónuafsláttur upp á tuttugu þúsund
krónur fyrir þá tekjulægstu. Skerðingarmörk barnabóta verði hækkuð þannig að fleiri fái þær.
FARA VANDLEGA YFIR MÁLIÐ Forysta Alþýðusambandsins hitti ríkisstjórnina í Ráð-
herrabústaðnum í gær og afhenti sameiginlega kröfugerð ASÍ gagnvart stjórnvöldum.
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að næsta skref verði að fara vandlega yfir
plaggið og reikna út hvað gangi upp og hvað ekki. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan-
ríkisráðherra fagnar því að aðildar-
félög ASÍ stilli saman strengi
sína og setji fram hugmyndir að
því hvernig verkalýðshreyfing,
atvinnurekendur og stjórnvöld geti
saman unnið að því að jafnvægi
sé í efnahagsmálum og hið félags-
lega kerfi sé þróað.
„Við eigum eftir að fara yfir
þetta og sjá hvað þetta kostar,
hvaða áhrif það myndi hafa, bæði
á ríkisfjármálin og efnahagsmálin.
Aðalatriðið er að það er algjörlega
nauðsynlegt að þessir aðilar stilli
saman strengi og gangi í takt.
Það er farsælasta leiðin til að ná
jafnvægi í efnahagsmálin og halda
aftur af verðbólgu.“ - ghs
Nauðsynlegt
að ganga í takt
Vegna frétta sem birtust í vikunni
um höfnun Fjarskiptasjóðs á tilboði
svissneska símfyrirtækisins Amitelo
í rekstur GSM-kerfis skal áréttað að
fyrirtækið tengist ekki IceCell, hinu
svissneska símafyrirtækinu sem
hyggst koma upp þjónustu hérlendis.
ÁRÉTTING
ÁHRIF SKATTATILLAGNA ASÍ
Dæmi 1
Hjón með samtals 300 þúsund í mánaðartekjur og tvö börn, 8 og 10 ára.
Að óbreyttu Tillaga ASÍ Ávinningur
Skattskyldar tekjur 300.000 300.000
Greiddur skattur -39.066 0 39.066
Laun eftir skatta 260.934 300.000 39.066
Skattaávinningur á ári 468.795
Barnabætur á ári 239.595 315.967 76.372
Samtals á ári 545.167
Dæmi 2
Hjón með samtals 500 þúsund í mánaðartekjur og tvö börn, 8 og 10 ára
Að óbreyttu Tillaga ASÍ Ávinningur
Skattskyldar tekjur 500.000 500.000
Greiddur skattur -110.506 -102.506 8.000
Laun eftir skatta 389.494 397.494 8.000
Skattaávinningur á ári 96.000
Barnabætur á ári 95.595 195.967 100.372
Samtals á ári 196.372
LÖGREGLUMÁL Ragnar Magnússon
veitingamaður, sem átti bílana tíu
er brunnu í Vogum á Vatnsleysu-
strönd um síðustu helgi, kveðst
upphaflega hafa fengið þá flesta
sem hluta af greiðslu fyrir jarðar-
hluta á Mýrum í Borgarfirði sem
hann seldi í haust. Hann kveðst
hafa verið með þá á bílasölu en
ákveðið að taka þá þaðan, þrífa þá
almennilega og taka af þeim
myndir fyrir áframhaldandi sölu-
meðferð. Því hafi þeir staðið á
planinu í Vogum.
Sumir bílanna sem brunnu voru
nýlegir en aðrir eldri árgerðir.
„Einn þeirra kom til landsins
fyrir fimm mánuðum,“ segir
Ragnar. „Hinir voru löngu komnir.“
Ragnar kveðst ekki vilja greina
frá nafni kaupanda jarðarpartsins
á Mýrum því óþarfi sé að draga
nöfn fleira fólks en orðið sé inn í
þetta leiðindamál.
„Það er þegar búið að taka mig
af lífi í fjölmiðlum og það er sorg-
legt að þetta fari að koma illa niður
á konu minni og börnum.“
Lögreglan á Suðurnesjum heldur
rannsókn á tildrögum brunans
áfram af fullum krafti. Hún vinnur
nú meðal annars að því að taka
sýni úr flökunum sem síðan verða
send í rannsókn til að ganga úr
skugga um hvort eldfimum vökv-
um hefur verið hellt yfir þá eða
ekki. Enginn hefur verið handtek-
inn né er grunaður um íkveikju
enn sem komið er. - jss
BRUNNU BÍLARNIR Sumir voru nýlegir,
aðrir af eldri árgerðum.
Ragnar Magnússon veitingamaður:
Fékk bílana upp í jarðarpart
UMFERÐ Útiloka á sauðfé og annan
búfénað frá tilteknum þjóðvegum
um Þingvallasveit.
Bláskógabyggð vill semja við
Vegagerðina um „friðun þjóðvega
í Þingvallasveit fyrir lausagöngu
búfjár“. Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri segir ætlunina að
bæta öryggi vegfarenda og
búfénaðarins með bættum og
nýjum girðingum og vörsluhlið-
um. Segist hann vonast til að
málið verði rætt við fulltrúa
Vegagerðarinnar í þessum
mánuði. - gar
Samkomulag í burðarliðnum:
Búfé útlægt af
þjóðvegum í
Þingvallasveit
KINDUR Í VEGI Friða á þjóðvegi í Þing-
vallasveit fyrir búfénaði. Þessar kindur
eru úr Mývatnssveit.
Festist á lokuðum vegi
Björgunarsveitin á Hólmavík aðstoð-
aði í gær ökumann Subaru-fólksbif-
reiðar sem festi sig í snjó á Þorska-
fjarðarheiði. Ökumaður hafði hunsað
viðvaranir Vegagerðarinnar um að
heiðin væri lokuð.
LÖGREGLUFRÉTTIR
LÖGREGLAN Rannsókn á meiðyrð-
um og hótunum í garð ungs
manns vegna hunds sem hvarf og
fannst aftur mun nú aftur komin í
hendur yfirvalda á Akureyri,
samkvæmt heimildum blaðsins.
Jón Snorrason aðstoðarlög-
reglustjóri lýsti því yfir í
Fréttablaðinu í september að
Lúkasarmálið færi „alls ekki í
einhvern stjórnlausan sendingar-
feril milli embætta“. Þá hafði
málið verið sent til sýslumanns á
Akureyri, eftir að það var kært í
Reykjavík.
Sýslumaður sendi það svo aftur
suður og nú síðast sendi Reykja-
víkurembættið það norður. - kóþ
Lúkasarmálið flækist um:
Í annað sinn til
Akureyrar
GENGIÐ 12.12.2007
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
118,6159
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
61,04 61,34
124,82 125,42
89,69 90,19
12,02 12,09
11,224 11,29
9,495 9,551
0,5494 0,5526
96,69 97,27
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR