Fréttablaðið - 13.12.2007, Blaðsíða 91
FIMMTUDAGUR 13. desember 2007 59
Breski plötusnúðurinn Nick
Warren þeytir skífum á Nasa
föstudagskvöldið 28. desember.
Warren er ákaflega þekktur
plötusnúður sem hefur spilað með
kunnum köppum á borð við Sasha
og Digweed auk hljómsveitar-
innar Massive Attack.
Warren hefur á ferli sínum sett
saman sex Global Underground-
plötur sem eru tileinkaðar Prag,
Brasilíu, Búdapest, Amsterdam,
Reykjavík, Sjanghæ og nú síðast
París. Einn heitasti plötusnúður
Íslands, Danni Bigroom, sér um
að hita upp fyrir Warren. Miðar í
forsölu kosta 2.000 krónur og fer
miðasalan fram í búðunum
Mohawks og Skór.is.
Nick Warren
þeytir skífum
NICK WARREN Breski plötusnúðurinn
Nick Warren þeytir skífum á Nasa 28.
desember.
Rokksveitin Helgi og hljóðfæra-
leikararnir heldur aðventutón-
leika á Græna hattinum á
Akureyri 14. desember. Á
efnisskránni verða lög af nýjustu
plötu sveitarinnar, Veislan á
Grund, í bland við eldri slagara.
„Við reiknum með að hin
sígilda jólaplata „Ég veit hvað þú
gerðir um síðustu jól“ verði
leikin niður í öreindir,“ segir
söngvarinn Helgi Þórsson. „Svo
reiknum við auðvitað með að
spila nýja jólalagið „80 kvenna
jól“ svona rúmlega hundrað
sinnum yfir kvöldið,“ segir Bobbi
Brynjólfsson gítarleikari.
Tónleikarnir hefjast á Græna
hattinum kl. 22 en húsið verður
opnað kl. 21. Aðgangseyrir er
1.000 krónur.
Spila lög af
nýrri plötu
HELGI OG HLJÓÐFÆRALEIKARARNIR
Rokkararnir halda aðventutónleika á
Akureyri 14. desember.
Bandaríska hljómsveitin Rage
Against the Machine verður
aðalnúmerið á tónlistarhátíðinni
Pinkpop í Hollandi næsta sumar.
Rokkararnir í Foo Fighters ætla
einnig að spila á hátíðinni.
Þeir félagar í Rage Against the
Machine hafa verið mjög
eftirsóttir af tónleikahöldurum
síðan þeir komu aftur saman á
Coachella-hátíðinni í Bandaríkj-
unum í fyrra. Sveitin hefur þegar
boðað komu sína á Big Day Out-
hátíðina sem verður haldin í
Ástralíu og Nýja-Sjálandi í byrjun
næsta árs auk þess sem fleiri
tónleikar eru fyrirhugaðir á
næsta ári.
Rage spilar í
Hollandi
Barnalánið í Hollywood virðist
síst í rénun, en tímaritið People
greindi frá því í gær að leikkonan
Jessica Alba ætti nú von á barni
með kærasta sínum. „Ég get
staðfest að Jessica og Cash eiga
von á barni í byrjun sumars,“
sagði talsmaður leikkonunnar,
Brad Cafarelli.
Alba, sem er tuttugu og sex ára
gömul, hefur átt í sambandi við
Cash Warren frá árinu 2004,
þegar þau hittust við tökur á
myndinni The Fantastic Four, en
Warren var þar aðstoðarmaður
leikstjóra kvikmyndarinnar. Alba
er þó kannski hvað þekktust fyrir
hlutverk sitt í myndinni Sin City,
en nú er unnið að gerð Sin City 2.
Barnið verður fyrsta barn bæði
Alba og Warren.
Alba er ólétt
FJÖLGAR MANNKYNINU Jessica Alba
á von á barni með kærastanum Cash
Warren. Það mun koma í heiminn í vor
eða sumar. NORDICPHOTOS/GETTY
RAGE AGAINST THE MACHINE Banda-
rísku rokkararnir ætla að spila í Hollandi
á næsta ári.
Franskur doktorsnemi í tölvunarfræði
hefur gert helstu stærðfræðinga veraldar
agndofa með því að reikna þrettándu rót af
200 stafa tölu í huganum – og á aðeins 70
sekúndum.
„Þetta snýst ekki einungis um stærðfræði. Þetta
er ákveðin tækni sem maður notar til að tvinna
saman stærðfræði og minni,“ sagði hinn 27 ára
gamli stærðfræðisnillingur Alexis Lamaire,
spurður um aðferðina sem hann notaði við að
reikna hið ótrúlega stærðfræðidæmi á mánudag.
Þetta mun vera stærsta tala sem reiknuð hefur
verið í huganum frá upphafi.
Fyrir þá sem ekki vita er rétt að taka fram að
þrettánda rót gengur út á að finna tölu sem
samsvarar upphaflegri tölu ef hún er margfölduð
með sjálfri sér þrettán sinnum. Og þegar talan er
með 200 tölustafi, eins og í dæminu sem Lamaire
fékk, þá geta svörin orðið um 393 trilljón
talsins. Lamaire, eða „hin mennska
reiknivél“, eins og hann er kallaður nú
um stundir, fann rétta svarið á 70
sekúndum.
„Þetta var með ólíkindum. Hann settist
niður og það hefði mátt heyra saumnál
detta í salnum. Allt í einu stóð hann upp
og var þá búinn að skrifa svarið niður. Ég
hef aldrei séð neitt þessu líkt,“ segir Jane
Wess, forstöðumaður Vísindasafnsins í
London, þar sem gjörningurinn fór fram.
Lamaire hefur í mörg ár rannsakað
þrettándu rót stærðfræðinnar og gerir
daglega æfingar sem ganga út á að bæta
minnið og æfa heilann í að svara slíkum
dæmum. Sérfræðingar hafa ráðlagt honum
að leggja ekki of mikið á heilann á sér því
annars eigi hann á hættu að verða sjálfhverf-
ur. „Svona þrautir krefjast gríðarlegrar
einbeitingar og álagið á heilann er mikið. Við
of mikið álag geta afleiðingarnar orðið
alvarlegar,“ segir Bernard Mazoyer, heilasér-
fræðingur við háskólann í Caen.
Reiknaði 200 talna dæmi í
huganum á 70 sekúndum
MENNSKA REIKNIVÉLIN Alexis Lamaire hefur rannsakað 13. rót
stærðfræðinnar í mörg ár og gerir daglega æfingar til að þjálfa
heilann og bæta minnið.
DÆMIÐ SEM
LAMAIRE FÉKK:
Hver er þrettánda rótin af:
836895668823695693983732866
222564522472678046649383667
749735755815730350757040896
252880238578315683768029349
382010563433638555959315144
5041514949070 94190977044493
05660268402771869624155
688082648640933?
Rétta svarið, sem Lamaire fann
á 70 sekúndum:
2391481494636373.