Fréttablaðið - 13.12.2007, Blaðsíða 22
22 13. desember 2007 FIMMTUDAGUR
Svona erum við
fréttir og fróðleikur
10
.6
09
11
.0
43
10
.3
27
1997 2001 2006
FRÉTTASKÝRING
KLEMENS ÓLAFUR ÞRASTARSON
klemens@frettabladid.is
> Ógiftar konur, skráðar í sambúð:
HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS
Jólaverslunin
virðist standa
með miklum
blóma þessa
dagana enda
aðeins rúm
vika til jóla.
Hvernig
gengur
jólaverslunin?
Ég fór af stað
fyrstu vikuna
í desember
og kíkti þá í
Smáralind,
Kringluna, á Laugaveginn og í Húsa-
smiðjuna og stærstu staðina og þá
var mér sagt að jólaverslunin hefði
byrjað vel. Í Kringlunni og Smáralind
höfðu mælst auknar heimsóknir
miðað við sömu helgi í fyrra en
ekki lágu fyrir neinar sölutölur frá
einstaka verslunum.
Hvað þýðir það? Það er erfitt að
segja. Á þessari stundu er ekki hægt
að segja hvort jólaverslunin verði í
heildina meiri en í fyrra en viðskipt-
in eru augljóslega fyrr á ferðinni.
Maður veltir fyrir sér hvort verslunin
dreifist betur en í fyrra en svo getur
verið að verslunin verði jöfn og
þétt alveg til jóla. Rannsóknarsetur
verslunarinnar hefur spáð því að
aukningin verði tæplega 9,5 prósent
frá því sem var í fyrra.
Er það samt ekki mikil aukning?
Það er aukning en samt minni
aukning en var milli áranna þar á
undan. Samkvæmt því er kannski
að hægjast eitthvað á aukningunni
en samt er ennþá aukning.
Á hvaða sviðum er mesta aukn-
ingin? Rannsóknarsetrið telur að
mikil verslun verði í leikföngum
vegna aukinnar samkeppni á
leikfangamarkaði og svo er líka talið
að aukning verði í íþróttavörum og
rafmagnsvörum.
SPURT & SVARAÐ
JÓLAVERSLUNIN
Byrjaði vel í
desember
1
2
3
4
1
2
3
4
KRISTÍN HULDA
GUÐMUNDSDÓTTIR
Markaðsstjóri SVÞ.
Fyrir nokkrum mánuðum töldu fáir að Mike
Huckabee, fyrrverandi ríkisstjóri í Arkansas,
ætti nokkurn möguleika á útnefningu
Repúblikanaflokksins sem frambjóðandi
þeirra í forsetakosningunum sem fram
fara í Bandaríkjunum eftir tæpt ár. Nýlegar
kannanir sýna hann á gífurlegri siglingu,
með sextán prósentustiga forystu á næsta
frambjóðanda í Iowa, ríkinu þar sem fyrstu
forkosningarnar fara fram.
Hver er Mike Huckabee?
Mike Huckabee er 52 ára gamall, fæddur
og uppalinn í Arkansas-ríki. Hann var vígður
til prests í söfnuði baptista og hefur haft
íhaldssöm kristileg gildi í hávegum frá upp-
hafi stjórnmálaferils síns. Hann er einnig
mikill áhugamaður um tónlist og leikur á
bassa í rokksveitinni Capitol Offense. Árið
1996 varð hann ríkisstjóri í Arkansas og
gegndi því embætti þar til fyrr í ár.
Hver eru stefnumál Hucka-
bees?
Huckabee segist sjálfur vera
íhaldsmaður. Hann styður
dauðarefsingar, er andvígur
fóstureyðingum, giftingum
samkynhneigðra og
hertri vopnalöggjöf.
Hann styður stríðið
í Írak og dregur
þróunarkenningu
Darwins í efa. Mesta
áherslu hefur hann
lagt á að vernda
landamærin
við Mexíkó gegn
ágangi ólöglegra innflytjenda. Hefur hann
meðal annars fengið leikarann Chuck
Norris til að lýsa yfir stuðningi við sig og
þá stefnu sína.
Hvað segja andstæðingar hans?
Andstæðingar Huckabees hafa gagnrýnt
íhaldssamar skoðanir hans. Fyrr á
stjórnmálaferli sínum lýsti hann
því yfir að konur og sam-
kynhneigðir ættu ekki að
fá að gegna hermennsku.
Árið 1992 lét hann hafa
eftir sér að best væri að
setja alnæmissjúklinga
í sóttkví. Segja demó-
kratar að hann sé ekki í
tengslum við almenning
í Bandaríkjunum.
FBL-GREINING: MIKE HUCKABEE
Íhaldsmaðurinn skýst upp í könnunum
Fyrir fjórum árum fór
Ásgeir Ebenezersson niður
í Landsbanka til að kynna
hugmyndir að nýrri versl-
unarmiðstöð sem næði frá
Skúlagötu til Laugavegs.
Vel var tekið í hugmyndina.
Nú ætlar félag eins eigenda
bankans að byggja þar.
„Það tók langan tíma fyrir mig að
viðurkenna þetta fyrir sjálfum
mér, en nú er ljóst að Björgólfur og
hans félag, Samson Properties,
hafa stolið þessari hugmynd minni
frá A til Ö,“ segir Ásgeir Ebenez-
ersson athafnamaður, sem hefur í
fórum sínum fjögurra ára gamlar
teikningar að verslunarmiðstöð,
sem átti að ná frá Skúlagötu að
Laugavegi.
Samson Properties, félag
Björg ólfsfeðga, kynnti nýverið
ekki alls ólíkar hugmyndir.
Áform Ásgeirs voru kynnt
Reykjavíkurborg í apríl 2003. Hann
segir að formanni skipulagsráðs og
skipulagsstjóra hafi litist vel á hug-
myndina og hún var send áfram í
kerfinu.
Í ágúst 2003 svarar Jóhannes S.
Kjarval, hverfisarkitekt hjá skipu-
lagssviði, Ásgeiri. Í bréfi Jóhannes-
ar er Ásgeiri uppálagt að „skýra
þátt stærsta núverandi eiganda,
þ.e. Landsbankans“.
Ásgeir segir svo frá: „Ég fór með
hugmyndina í Landsbankann í maí
2003. Ég skildi eftir gögnin og var
skömmu síðar boðaður á fund hjá
fyrirtækjasviði bankans. Þar var
mér sagt að Landsbanka litist vel á
verkefnið. Ég þyrfti að fjármagna
tuttugu prósent, en bankinn myndi
koma með afganginn.“ Samkomu-
lagið var munnlegt.
Líður nú og bíður. Árið 2004 var
Ásgeir „búinn að fá annan fjár-
mögnunaraðila og beið eftir því að
Skipulagssjóður seldi lóðir sínar á
svæðinu. Mér skildist að þær yrðu
auglýstar.“
Batt vonir við nýjan meirihluta
Snemma árs 2005 segist Ásgeir
hafa hitt Halldór Kristjánsson,
bankastjóra Landsbankans, og
fengið hjá honum staðfestingu á
að samkomulagið stæði. Halldór
hafi vísað á Landsafl, fasteigna-
félag Landsbanka. Þar hafi verið
ákveðið að bíða niðurstöðu borgar-
stjórnarkosninga, „vegna
aðgerðaleysis R-lista“. Þeir hafi
bundið vonir við að hugsanlegur
nýr meirihluti myndi selja eignir
á reitnum.
Skipulagssjóður borgarinnar átti
þá margar fasteignir á svæðinu.
Stóð á tímabili til að selja þær í
almennri sölu.
Kristín Einarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Skipulagssjóðs,
kannast við hugmyndir Ásgeirs.
Hún hefur enga skýringu á hvers
vegna fór sem fór, en hugmynd-
irnar hafi ekki náð fram að ganga.
Upphaflega hafi lóðakaup á reit-
unum verið gerð með íbúðarhús-
næði í huga en ekki verslun.
„Þetta strandaði ekkert sérstak-
lega hjá Skipulagssjóði. Við héld-
um bara okkar striki að kaupa
þessar eignir. Um tíma stóð til að
bjóða þær út, en síðan [í september
2006] var ákveðið að ganga til við-
ræðna við Samson.“
Það hafi verið gert í ljósi þess að
Samson var þá með ráðandi hlut
eigna á svæðinu og lauslegar hug-
myndir að uppbyggingu. Hvort
þær hafi verið sömu tillögur og
Ásgeir var með segist Kristín ekki
þess umkomin að meta það.
Bréf til Björgólfs
Mánuði eftir að borgin gekk til við-
ræðna við Samson sendi Ásgeir
Björgólfi bréf. Hann þóttist sjá að
hann hefði tapað leiknum og lauk
bréfinu á þeim orðum að honum
„þætti vænt um að fá að vera með í
spilinu“. Björgólfur hefur ekki
svarað bréfinu.
Ásgeir segist orðlaus yfir fram-
komu Björgólfs, sem hann kynntist
fyrst árið 1966. „Og ég held að fólk
með góðar hugmyndir ætti að vara
sig á Landsbankanum.“
Ekki einstök hugmynd
Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður
Björgólfs Guðmundssonar og Sam-
son Properties, segist aldrei hafa
séð hugmyndir nafna síns, en í tví-
gang rætt við hann um þær.
Hann þvertekur fyrir að hug-
myndin hafi síast úr Landsbanka
til Samson Properties.
„Við höfðum ekki hugmynd um
að þetta hefði verið í Landsbankan-
um og það er mjög alvarleg ásökun
að halda því fram að bankinn hafi
brugðist trúnaði.“
Í ársbyrjun 2006 hafi félög boðið
Samson eignir á reitunum til kaups.
Samson hafi þá leitað til innlendra
sem erlendra sérfræðinga eftir
hugmyndum að uppbyggingu.
Endan leg hugmynd Samson hafi
komið frá erlendum hönnuðum.
Ekki komi til greina að þeir hönn-
uðir hafi fengið sendar hugmyndir
Ásgeirs Ebenezerssonar til að
byggja á.
Ásgeir Ebenezersson hafi ein-
faldlega ekkert haft fram að færa í
verkefnið, hvorki fjármagn né fer-
metra.
„En ég skil vonbrigði mannsins
mætavel. Því miður var þetta farið
of langt af stað þegar hann kom til
okkar. Þetta er góð hugmynd, en
augljóslega ekki einstök.“
Björgólfur stal hugmynd minni
ÁSGEIR EBENEZERSSON
KRISTÍN
EINARSDÓTTIR
ÁSGEIR
FRIÐGEIRSSON
1. ÍBÚÐARBLOKKIR VIÐ SKÚLAGÖTU 2. VERSLUNARMIÐSTÖÐ BARÓNSREITSMEGIN 3. GÖNG YFIR HVERFISGÖTUNA
4. VERSLUNARMIÐSTÖÐ MILLI LAUGAVEGS OG HVERFISGÖTU
Teikning Samson Properties gerir ráð fyrir hringflæði, tveimur göngum yfir Hverfisgötu, en hin fyrir einföldum göngum.
Báðar tillögurnar gera ráð fyrir miklum bílastæðakjallara.
HUGMYND ÁSGEIRS EBENEZERSSONAR FRÁ ÁRINU 2003 HUGMYND SAMSON PROPERTIES, KYNNTAR ÁRIÐ 2007
LAUGAVEGUR
HVERFISGATA
SKÚLAGATA