Fréttablaðið - 13.12.2007, Blaðsíða 76
44 13. desember 2007 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Kl. 17. 15
Gísli Þór Ólafsson les upp úr nýrri
ljóðabók sinni, Aðbókinni, á
síðasta Skáldaspírukvöldinu fyrir
jól í dag kl. 17.15 á Amtsbókasafn-
inu á Akureyri. Aðbókin er önnur
ljóðabók Gísla og hefur að geyma
skarpar, hnitmiðaðar og kómískar
ljóðlínur sem margir geta eflaust
fundið samhljóm með.
Elskulegi bangsinn Paddington
hefur glatt margar kynslóðir
barna síðan hann kom fyrst
fram á sjónarsviðið árið 1958.
Það vita þó allir að hann hefur
lengi haft einstakt lag á að
koma sér í vandræði og verður
engin breyting þar á í nýrri bók
um kappann sem kemur út
næsta sumar í tilefni af fimmtíu
ára afmæli hans.
Paddington er búsettur í
Englandi þrátt fyrir að vera
upprunalega frá Perú. Michael Bond, höfundur
Paddington-bókanna, segir að nýju sögurnar
endur spegli að mörgu leyti þær breytingar sem
átt hafa sér stað í ensku samfélagi á þeim fimm-
tíu árum sem liðin eru frá því að björninn vinalegi
birtist fyrst. Paddington sjálfur býr reyndar yfir
þeim öfundsverða eiginleika að eldast ekki, en
samfélagið sem hann býr í hefur aftur á móti
tekið breytingum sem samsvara
raunveruleikanum. Því er staða
Paddingtons sem innflytjanda
tekin til skoðunar í nýju bókinni.
Umræða um innflytjendamál
hefur verið afar áberandi í Eng-
landi undanfarin ár, en var varla
til staðar fyrir hálfri öld.
Í nýju bókinni lendir Padding-
ton í því að innkaupakerran hans
hverfur á dularfullan hátt. Hann
tilkynnir hvarfið til lögreglunnar
en tekst að koma sér í klandur
með því að segja lögreglunni frá uppruna sínum.
Lögreglan tekur bangsann vinalega því til yfir-
heyrslu til þess að fá úr því skorið hvort hann hafi
öll tilskilin leyfi til búsetu í landinu.
Bond vill þó ekki meina að hann sé í sögunni
að reyna að koma á framfæri skoðun sinni um
stöðu innflytjenda í Englandi, enda væri slíkt
óviðeigandi í barnabók. - vþ
PADDINGTON Á næsta ári kemur
út ný bók um bangsann.
Paddington í yfirheyrslu
> Ekki missa af...
Upplestri Önnu Margrétar Stef-
ánsdóttur úr ljóðabók hennar
Engilinn minn í Dómkirkjunni
í Reykjavík í kvöld kl. 20.30. Í
bókinni fjallar Anna um afar
persónulega lífsreynslu og veitir
innsýn í sorgarferli þess sem
misst hefur barn. Ljóðin lýsa
á einlægan hátt innri átökum
höfundar sem tekst að lokum
að ná sátt og horfa með bjart-
sýni fram á veginn.
KÓR LANGHOLTSKIRKJU Syngur jólasöngva um helgina. MYND/SIGFÚS PÉTURSSON
Jólasöngvar Kórs Lang-
holtskirkju fara fram í þrí-
tugasta skipti nú um helg-
ina. Fyrstu jólasöngvarnir
fóru fram í Landakotskirkju
1978 og voru þá nýmæli
hérlendis. Þessi siður hefur
nú öðlast miklar vinsældir
sem sést best á þeim fjölda
jólatónleika sem fara fram
um land allt í ár.
„Það er komin hefð fyrir þessum
tónleikum og við verðum vör við
að fólk kemur aftur ár eftir ár.
Þetta eru ákaflega skemmtilegir
tónleikar og það myndast alltaf
mikil og góð stemning,“ segir Jón
Stefánsson, kórstjóri og organisti
í Langholtskirkju.
Tónleikarnir verða með hefð-
bundnu sniði í ár, enda þarf að
fara varlega í allar breytingar á
efnisskrá og formi tónleika sem
hafa fest sig svo rækilega í sessi.
Þó verður boðið upp á frumflutn-
ing á jólalagi sem Glenn Miller
gerði vinsælt á sínum tíma. Lagið
er byggt á stefi úr 6. sinfóníu
Tsjaí kovskíjs, en Jón útsetti lagið
sérstaklega fyrir tónleikana.
Björn Ingiberg Jónsson syngur
einsöng í laginu, en hann gerði
jafnframt við það íslenskan texta.
Margir góðir hljóðfæraleikarar
koma fram með kórnum. Má þar
nefna Hallfríði Ólafsdóttur og
Örnu Kristínu Einarsdóttur sem
leika á flautur, Moniku Abendroth
sem leikur á hörpu og Láru Bryn-
dísi Eggertsdóttur sem leikur á
orgel. Um létta djasssveiflu sjá
Kjartan Valdemarsson á píanó,
Gunnar Hrafnsson á bassa og
Pétur Grétarsson á trommur. Enn
eru ónefnd þau Bragi Bergþórs-
son og Ólöf Kolbrún Harðardóttir
sem syngja einsöng.
Að vanda verður tónleikagest-
um boðið upp á heitt súkkulaði og
piparkökur. Jón segir vera komna
langa hefð fyrir þessum veiting-
um. „Árið 1980 héldum við jóla-
tónleikana í fyrsta skipti í Lang-
holtskirkju, en hún var þá enn í
byggingu og til að mynda ekki
búið að setja í hana glugga. Kór-
inn söng þá eins og hann gat í
kuldanum og svo var öllum smal-
að inn í safnaðarheimilið og þar
boðið upp á heitt súkkulaði og pip-
arkökur til að ylja mannskapnum.
Þrátt fyrir að það séu löngu komn-
ir gluggar í kirkjuna höfum við
haldið í þennan góða og hlýlega
sið.“
Aðsóknin að jólatónleikum Kórs
Langholtskirkju hefur verið afar
góð alveg frá upphafi og hefur
iðulega selst upp á þá.
Tónleikarnir fara fram í Lang-
holtskirkju annað kvöld kl. 20 og
kl. 23 og svo aftur á laugardags-
kvöld kl. 20 og 23.
vigdis@frettabladid.is
Hefð á jólum
Myndlistarmaðurinn, rithöfund-
urinn og háskólakennarinn dr.
Enrique del Acebo Ibáñez verður
með stutta kynningu á verkum
sínum sem hanga uppi á kaffistofu
Café Cultura í Alþjóðahúsinu við
Hverfisgötu í kvöld kl. 18. Kynn-
ingin fer fram á spænsku og
ensku.
Á sama stað munu liggja frammi
eintök af nýútkominni bók hans,
Félagsfræði rótfestunnar: Kenn-
ingar um uppruna og eðli borgar-
samfélagsins, en bókin kom út í
íslenskri þýðingu nú í vikunni.
Argentínsk stemning svífur svo
yfir vötnum fram á kvöld í
Alþjóðahúsinu þar sem tangó-
kennsla og dans hefst kl. 20. - vþ
Argentínsk myndlist
Ljóðskáldin Sigurður Pálsson og Óskar Árni Óskars-
son lesa upp og kynna nýjar tónskreyttar ljóðaútgáf-
ur í bókaversluninni Iðu, Lækjargötu 2a, í kvöld kl.
20.30. Auk þeirra kemur saxófónleikarinn Jóel
Pálsson fram og leggur til tónskreytingar.
Ljóðaútgáfurnar samanstanda af prentútgáfu af
ljóðunum og geisladiski sem inniheldur lestur
skáldanna og viðeigandi tónskreytingar. Jóel Pálsson
lagði til tónskreytingar við ljóð Sigurðar Pálssonar,
en Sunna Gunnlaugsdóttir píanóleikari skreytti ljóð
Óskars Árna.
Áður hafa komið út í sömu ritröð ljóð Gyrðis
Elíassonar með tónskreytingum Kristins Árnasonar,
ljóð Ingibjargar Haraldsdóttur með tónskreytingum
Tómasar R. Einarssonar, ljóð Aðalsteins Ásbergs
Sigurðssonar með tónskreytingum Sigurðar Flosa-
sonar, ljóð Sigurbjargar Þrastardóttur með tón-
skreytingum Eðvarðs Lárussonar og ljóð Braga
Ólafssonar með tónskreytingum eftir Matthías
Hemstock. - vþ
Ljóð tónum skreytt
SIGURÐUR PÁLSSON Les upp ljóð sín í Iðu í kvöld.
ALÞJÓÐAHÚSIÐ Býður upp á sýningu á
argentínskri myndlist.
FÖST. 14. DES. 2007
OPIÐ FRÁ KL. 21.00 // MIÐAVERÐ KR. 2000 // ALDURSTAKMARK 20 ÁRA
OPIÐ FRÁ KL. 23.00 // MIÐAVERÐ KR.1500 // ALDURSTAKMARK 20 ÁRA
NÝDÖNSK
STÓRVIÐBURÐUR!
LAUG. 15. DES.2007
STÓRVIÐBURÐUR!
SENUÞJÓFARNIR
ÁSAMT DANÍEL ÁGÚST
MEGAS &