Fréttablaðið - 13.12.2007, Side 6

Fréttablaðið - 13.12.2007, Side 6
6 13. desember 2007 FIMMTUDAGUR HUGSAÐU VEL UM HÚÐINA ÞÚ FÆRÐ DECUBAL Í NÆSTA APÓTEKI HEILBRIGÐISMÁL „Þetta var reynt í Finnlandi og þeim sem lifðu af hjartastopp fækkaði mikið. Hér myndi það samsvara sjö mannslíf- um. Að lágmarki,“ segir Bjarni Þór Eyvindarson, læknir við Land- spítalann. Bjarni vísar til þess að yfir- stjórn Landspítalans hyggst hætta að bjóða upp á læknisþjónustu í neyðarbíl Landspítala og slökkvi- liðs. Starfsfólk bílsins þjónar þeim sem veikjast skyndilega utan spít- ala, til dæmis í heimahúsum, og kemur að um hundrað endurlífg- unum á ári. Í stað læknanna á sjúkraflutningafólk að fram- kvæma endurlífganir. Með þessu á að spara þrjátíu milljónir króna. „Það er verið að skera niður þjónustu til veikustu einstakling- anna,“ segir Bjarni. Nánast alls staðar í Evrópu séu læknar með í för í neyðarútköllum. Bandaríkja- menn hafi hins vegar kosið að láta sjúkraflutningamenn eina um endur lífgun. „Þeir tímdu bara ekki að hafa lækna á bílunum, enda eru Amer- íkanar ekki hátt á listanum yfir endurlífganir,“ segir Bjarni. Þetta sé spurning um hvernig mannslíf eru verðlögð. „Auðvitað bætir þetta ekki þjón- ustuna, það segir sig sjálft,“ segir Magnús Pétursson, forstjóri Land- spítalans. „En það er mjög sterk fullyrðing að með þessu séu mannslíf lögð í hættu.“ - kóþ Læknir við Landspítalann óttast mjög niðurskurðaráætlanir spítalans: Sparnaður upp á sjö mannslíf BJARNI ÞÓR EYVINDARSON Segir skelfilega reynslu af sparnaði við svona neyðarþjónustu í Finnlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA LÖGREGLAN Þýfi sem tekið var úr Austurbæjarskóla á föstudags- kvöld fannst við húsleit í Reykja- vík í gær. Óprúttnir innbrotsþjófarnir höfðu annað hvort læðst inn fyrr um kvöldið eða haft lykil að húsinu, því engin ummerki voru um eiginlegt innbrot. Bar glæpurinn merki atvinnu- mennsku. Meðal horfinna muna voru skjávarpar og fartölvur. Guðmundur Sighvatsson, skólastjóri Austurbæjarskóla, hvatti skólaræningjana til að skila þýfinu í Fréttablaðinu í gær en lögreglan á höfuðborgarsvæð- inu varð fyrri til að nappa þá. - kóþ Þjófnaður í Austurbæjarskóla: Þýfið fannst við húsleit KJARAMÁL Fimmtán rafvirkjar af þeim sautján sem starfa á Landspítalanum hafa sagt upp störfum. Rafvirkjarnir eru allir sérhæfðir í störfum innan spítalans og getur tekið langan tíma að þjálfa nýja menn til að gegna stöðum þeirra. Uppsagnirnar gætu því haft víðtækar afleiðingar innan spítalans. Uppsagnir rafvirkjanna tóku gildi 1. desember og losna samningar þeirra í byrjun mars. Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, segir þá tvo rafvirkja sem ekki sögðu upp ætla að hætta fljótlega sökum aldurs. „Búnaðurinn á spítalanum er mjög viðkvæmur og flókinn. Það segir sig sjálft að það þarf sérmenntaða menn til að fást við rafkerfi spítala. Sérfræðiþekkingin er ekki metin að verðleik- um og hafa þeir því ákveðið að fara til starfa annars staðar,“ segir Guðmundur. Hann bendir á að miðað við launakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Rafiðnaðarsambandið í ágúst ættu meðal dagvinnu- laun rafvirkja á Landspítalanum að vera um 330 þúsund á mánuði. Fréttablaðið hafði samband við Hafstein Guðmundsson, einn þeirra sem sagt hafa upp, og sagði hann að eftir 46 ára starf sem rafvirki fengi hann 213 þúsund og 211 krónur sem dagvinnu- laun. Hann sagðist vita til víðtækrar óánægju meðal rafvirkja spítalans vegna kjaramála en ítrekaði að ekki væri um skipulagða hópuppsögn að ræða og Rafiðnaðarsambandið hefði ekki haft milligöngu um málið. „Það segir hver og einn upp á sínum forsend- um,“ sagði hann. Aðalsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri tækni og eigna Landspítalans, segir aðdragandann hafa verið óánægju rafvirkja með kjör. Spítalinn fari eftir gildandi kjarasamningum en rafvirkjar miði við launaskrið sem hafi orðið í samfélaginu. „Það er alvarleg staða komin upp en við vinnum eins og við getum að því að finna lausn á þessu máli og tryggja öryggi inni á spítalanum,“ segir Aðalsteinn. „Framkvæmdastjórinn sýnir feikilega mikið ábyrgðarleysi í þessu máli því spítalinn mun ekki fá annað en lærlinga á þessum kjörum og þá tekur um þrjú ár að þjálfa upp í störf inni á spítalanum,“ segir Guðmundur. karen@frettabladid.is Landspítalinn að verða rafvirkjalaus Nær allir rafvirkjar Landspítalans hafa sagt upp starfi sínu. Uppsagnirnar eru taldar geta haft víðtækar afleiðingar innan spítalans. Formaður Rafiðnaðar- sambandsins sakar forsvarsmann spítalans um „feikilegt ábyrgðarleysi“. GÆTI HAFT VÍÐTÆKAR AFLEIÐINGAR Rafvirkjar sjá ekki um viðgerðir á viðkvæmum lækningartækjum en hins vegar sjá þeir til þess að þau fái straum til að geta starfað. FRÉTTABLAÐIÐ/ÚR SAFNI Það segir sig sjálft að það þarf sérmenntaða menn til að fást við rafkerfi spítala. GUÐMUNDUR GUNNARSSON Auglýsingasími – Mest lesið Telur þú að maðkar séu í mysunni vegna sölu á ríkis- eignum á Keflavíkurflugvelli? Já 49,8% Nei 50,2% SPURNING DAGSINS Í DAG: Telur þú rétt að takmarka þyngd lyftingalóða í líkams- ræktarsölum fangelsa? Segðu þína skoðun á visir.is ORKUMÁL Breytt hönnun á fyrirhuguðum virkjunum í neðri hluta Þjórsár hefur það í för með sér að flatarmál uppistöðulóna minnkar um fjórðung. Í stað 23,8 ferkílómetra verða lónin um 18 ferkílómetrar, um fjórðungi minni. „Nú er verið að vinna að nánari hönnun á virkjunum, og sú vinna miðar meðal annars að því að lágmarka rask en halda orkugetu virkjananna,“ segir Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkj- unar. Þrjár virkjanir og þrjú lón eru fyrirhuguð. Það lón sem minnkar mest er Heiðarlón, neðsta og stærsta lónið. Áður stóð til að það yrði 12,5 ferkílómetrar, en það verður 9 ferkílómetrar samkvæmt nýrri hönnun. Hin lónin áttu að vera samtals 11,3 ferkílómetrar en verða 9 ferkílómetrar. Þessu samhliða verður yfirborðshæð Heiðarlóns lækkuð úr fyrirhuguðum 51 metra yfir sjávarmáli í 50 metra hæð, eins og greint hefur verið frá. Þorsteinn segir að jafnframt sé nú ætlunin að hlaða upp tvo grjótgarða við austurströnd Heiðarlóns. Þeir muni koma í veg fyrir að vatn setjist í lægðir í landinu. Með þessu og öðrum aðgerðum muni einungis þrír af átján ferkílómetrum lónanna verða utan núverandi árfarvegs. - bj Hönnun virkjana í neðri hluta Þjórsár breytt og uppistöðulón minnkuð: Lónin minnka um fjórðung ÞJÓRSÁ Grjótgarðar verða hlaðnir við austurströnd Þjórsár til að koma í veg fyrir að vatn setjist í lægðir. KJÖRKASSINNVEISTU SVARIÐ?
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.