Fréttablaðið - 13.12.2007, Blaðsíða 86
54 13. desember 2007 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> VISSIR ÞÚ?
Amy Winehouse fékk sér sitt fyrsta
húðflúr af mörgum þegar hún var að-
eins fimmtán ára gömul, litla teikni-
myndafígúru á bakið. Að hennar
sögn gerðu foreldrar hennar sér
grein fyrir því að þau kæmu
engum vörnum við. „Þau vissu
að ég myndi gera það sem mér
sýndist og þar með var málið úr
sögunni,“ segir Amy.
Olsen-tvíburarnir Mary-Kate og
Ashley eru ekki ofarlega á
vinsældalista dýra vernd-
unar samtakanna PETA.
Leikkonurnar hafa áður
sætt harðri gagnrýni fyrir að
klæðast pelsum og feldi og
nota sömu efni í tískulínu sinni.
Línan ber heitið The Row, en
henni hefur verið vel tekið af
mörgum tískuunnendum. Gagnrýn-
in hefur hins vegar ekki borið
mikinn árangur og hefur PETA nú
opnað sérstaka heimasíðu tvíburun-
um til handa. Ekki er þó hægt að
segja að hún sé þeim til heiðurs.
Á síðunni gefur að líta teiknaðar
myndir af tvíburunum, en þar ganga
þær undir nöfnunum Hairy-Kate og
Trashley Trollsen. Lesendum gefst
kostur á að senda tvíburunum
sérstakt bréf, þar sem þær eru
beðnar um að hætta notkun felda og
pelsa í bæði tískulínu sinni og
daglegu lífi. Þá er hægt að kaupa boli
með teiknaðri mynd af systrunum í
blóði drifnum pelsum og feldskóm.
Enn hafa engin viðbrögð við
síðunni borist úr herbúðum tvíbur-
anna. Síðuna má skoða á www.peta2.
com/trollsens.
PETA gagnrýnir Olsen-systur
HAIRY-KATE OG TRASHLEY Dýraverndunar-
samtökin PETA gagnrýna tvíburasysturnar
Mary-Kate og Ashley Olsen harðlega á nýrri
heimasíðu.
NORDICPHOTOS/GETTY
J.K. Rowling hefur lagt lokahönd
á fyrstu bókina sem hún sendir frá
sér síðan Harry Potter-ævintýrinu
lauk svo eftirminnilega fyrr í ár.
Bókin heitir The Tales of Beedle
the Bard, en á hana er minnst í síð-
ustu bókinni um Harry Potter.
Bókin er handskrifuð og mynd-
skreytt af Rowling, en hún kemur
einungis út í sjö eintökum – jafn
mörgum og bækurnar um Harry
Potter urðu.
Ein bók verður boðin upp hjá
Sotheby’s í London í vikunni en
ágóði af sölu hennar mun renna til
góðgerðasamtakanna Children’s
Voice. Inngangur fremst í bókinni
útskýrir hvað verður um hinar, en
þær „verða gefnar þeim sem hafa
tengst Harry Potter-bókunum
hvað mest síðustu sautján árin“.
Rowling færir kaupanda bókar-
innar einnig persónulegar þakkir:
„Til þess sem nú á bókina, takk
fyrir – og megi gæfan fylgja þér.“
Beedle boðinn upp
SJÖ EINTÖK J.K. Rowling sendir frá sér
bókina The Tales of Beedle the Bard í
einungis sjö eintökum. Eitt þeirra verður
selt.
„Við höfum alltaf litið á það þannig
að þeir sem hafa verið gæfu aðnjót-
andi í lífinu eiga að gefa til baka,“
segir Steinunn Camilla úr stúlkna-
sveitinni Nylon, en eins og fram
hefur komið í fjölmiðlum hefur
sveitin ákveðið að gefa samtökun-
um Blátt áfram allan ágóða af safn-
plötu sinni, Best of Nylon.
„Út af því hvað við höfum verið
heppnar í gegnum tíðina þá höfum
við velt fyrir okkur hvernig við
gætum gefið til baka. Okkur lang-
aði til að gefa til Blátt áfram. Það er
svolítið tabú málefni. Það er eins og
það megi ekki hjálpa nema að hafa
lent í einhverju sjálfur. Okkur
finnst frábært hjá öllum þeim sem
hjálpa til og þótt við höfum verið
heppnar langaði okkur að gefa þess-
um samtökum ágóðann,“ segir hún.
„Það eru sautján prósent barna
undir átján ára aldri sem lenda í
þessu. Þetta er allt of algengt í sam-
félaginu og við viljum vekja athygli
á þessu,“ segir Steinunn en Blátt
áfram vinna að því að efla forvarnir
gegn kynferðisofbeldi á börnum.
Í lok mánaðarins syngur Nylon á
jólatónleikum til styrktar krabba-
meinssjúkum börnum sem umboðs-
maður þeirra, Einar Bárðarson,
hefur staðið fyrir undanfarin ár. Á
næsta ári er ferðinni síðan heitið til
Bretlands þar sem þær ætla að
halda áfram að koma sér á fram-
færi. - fb
Nylon gegn barnaníði
NYLON Stelpurnar styrkja Blátt áfram.
Þuríður Stefánsdóttir hefur
hannað nýja íslenska förðun-
arlínu sem hún segir henta
öllum konum. Línan verður
fáanleg á heimasíðunni mak-
euptime4u.is.
Þuríður, sem oftast er kölluð Þura,
er menntaður förðunar- og snyrti-
fræðingur og hefur lengi starfað
sem slíkur. „Ég kenndi förðun í
mörg ár og síðastliðið eitt og hálft
ár hef ég unnið við að þróa snyrti-
vörulínu fyrir erlent fyrirtæki,“
útskýrir Þura, sem nú ýtir nýrri
íslenskri förðunarlínu úr vör. „Ég
veit ekki um aðra íslenska línu sem
stendur, ekki eftir að Rifka hætti,“
segir Þura.
Eigin lína Þuru, sem hefur feng-
ið nafnið Makeuptime4u, verður
eingöngu seld á netinu til að byrja
með. „Það ættu allar konur að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi þarna,“
segir Þura. „Línan er svo passlega
stór. Konur verða ekkert ruglaðar í
ríminu af að skoða hana. Það er allt
til alls, en ekkert aukavesen. Það
er bara mjög þægilegt að vinna
með hana,“ bætir hún við.
Vefsíðan opnaði í gær, en þá
höfðu þegar borist nokkrar pantan-
ir. „Já, við erum strax farin að
selja. Fólk virðist hafa komist í að
panta þó að við værum ekki búin að
opna síðuna formlega,“ segir Þura
hlæjandi, en hún og eiginmaður
hennar, Rúnar Arnarson, sjá sjálf
um fyrirtækið eins og er. Í verslun-
inni er einnig hægt að nálgast aðrar
vörur, svo sem upphitaðan augn-
hárabrettara og gerviaugnahár. Á
síðunni verður svo einnig að finna
ýmiss konar fróðleik og fyrir-
spurnahorn.
Línunni verður ýtt opinberlega
úr vör á föstudaginn, með opnunar-
teiti á Apótekinu. „Eftir það förum
við á fullt og verðum til dæmis með
námskeið fyrir konur,“ segir Þura,
sem er vongóð um að viðskipti á
netinu gangi vel. „Það er alltaf að
færast í aukana að fólk versli á
vefnum, og við bindum vonir okkar
líka við fólk úti á landi,“ segir Þura,
en hún segist hafa passað upp á að
myndir á síðunni séu eins nákvæm-
ar og hægt sé. „Þær eiga að gefa
hárrétta mynd af litum og slíku,“
segir Þura. „Nú hlakka ég bara til
að sjá hvernig þetta fer af stað,“
bætir hún við. sunna@frettabladid.is
Ný íslensk snyrtivörulína
ÍSLENSKAR SNYRTIVÖRUR Þuríður Stefánsdóttir hefur kennt snyrtingu og förðun í
mörg ár. Nú ýtir hún úr vör nýrri íslenskri förðunarlínu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KRINGLUNNI OG SMÁRALIND
pils
5.990
eyrnalokkar
2.790
sokkabuxur
2.490
kjóll
13.990
skór
4.990
hringur
1.090
veski
3.490
toppur
5.490