Fréttablaðið - 13.12.2007, Page 36

Fréttablaðið - 13.12.2007, Page 36
36 13. desember 2007 FIMMTUDAGUR AF NETINU Virði menntunar UMRÆÐAN Kjör kennara Menntamálaráð-herra boðar nú breytta tíma með breyttri samfelldri menntastefnu þar sem hann (hún) talar um meistaranám og að það muni boða hærri laun til kennara. Samkvæmt kjarasamningi Kennarasambands Íslands (KÍ) og Launanefndar sveitarfélaga (LN) hækkar leiðbeinandi, grunn- skólakennari, umsjónarkennari, sérkennari eða námsráðgjafi um tvo launaflokka hafi hann tvöfalt B.ed./BA/BS-próf eða MA/MS- próf. Ég er menntaður íþróttakenn- ari frá Laugarvatni og er því með B.ed.-próf þaðan. Ég settist aftur á skólabekk árið 2002 er ég hóf nám í viðskiptafræðum við Við- skiptaháskólann á Bifröst. Árið 2004 lauk ég diplómagráðu sem rekstrarfræðingur þaðan, en það er 60 eininga nám á háskólastigi. Hefði ég tekið 3ja árið, sem er 30 eininga nám, hefði ég útskrifast sem viðskiptafræðingur, sem er BS-gráða og þá hefði ég ekki staðið í þessum skrifum. Ég hins vegar sótti um að fara beint í meistaranám og fékk samþykki fyrir því, þar sem ég hafði kenn- aramenntun fyrir. Ég hef lokið 30 einingum af meistaranámi frá Bifröst. Ég hef fengið og látið í hendur LN staðfestingu frá Viðskiptaháskólnaum á Bifröst þess efnis að gæði þess náms sem ég nam á Bifröst séu fylli- lega jafngild gæðum BS– gráðu og virði mitt því sambærilegt virði ein- stakings með BS–gráðu. Samkvæmt réttu ætti ég því að fá greidda þessa tveggja launa- flokka hækkun sem mér ber fyrir skólaveturna 2005-2006 er ég kenndi á Flúðum og 2006– 2007 er ég kenndi á Blönduósi. Ég kenndi stærðfræði þessa tvo vetur og ég efa það að ég hafi verið ráðinn vegna íþróttakennar- menntunar minnar frá Laugar- vatni. Það lítur því út fyrir að ég hafi verið ráðinn vegna viðskipta- fræðimenntunar minnar frá Bif- röst en LN neitar að greiða mér sanngjörn laun fyrir mín störf. Það sem ég hafði því upp úr krafsinu fyrir að auka menntun mína var ca 3 ár í námi með litlar tekjur og aukin námslán. Ég þarf nú að borga 100.000-150.000 í námslán næstu 30 árin eða svo og hef engar tekjur á móti. Ég fæ sömu laun fyrir að kenna í grunn- skóla og ég hafði fyrir. Ég er verð- mætari fyrir grunnskólana en ég var þar sem hæfni mín hefur aukist en þeir greiða mér ekki laun fyrir aukna hæfni. Ég sit því uppi með að minnka raunvirði menntunar minnar fyrir mig, þar sem nettótekjur vegna menntun- ar hafa lækkað allverulega, óþökk sé launanefnd íslenskra sveitar- félaga. Ég get því ekki séð annað en að aukin menntun muni bara fela í sér aukinn kostnað fyrir kennara, því eins og sést á mínu dæmi hér leitar LN allra leiða til þess að greiða fólki ekki fyrir aukna menntun. Höfundur er kennari sem flúið hefur grunnskólakennslu. ÁSGEIR H. AÐALSTEINSSON Samkvæmt réttu ætti ég því að fá greidda þessa tveggja launaflokka hækkun sem mér ber fyrir skólaveturna 2005-2006 er ég kenndi á Flúðum og 2006–2007 er ég kenndi á Blönduósi. UMRÆÐAN Kjör aldraðra Lífeyrissjóðirnir voru stofnaðir til að búa í haginn fyrir sjóðsfélaga til að njóta á elliárunum. Ekki til að létta á útgjöldum fyrir ríkissjóð. Ríkissjóður notar lífeyrissjóð- ina eins og tæki sem rænir og skerðir lífeyrissjóðsgreiðslur hjá elli- og örorkubótaþegum, strax á fyrstu krónu sem þeir fá úr lífeyrissjóði. Þar eru engin frítekjumörk eins og svo margir halda. Við búum í velferðarþjóðfélagi en það er þjóðinni til skammar hvernig ríkisstjórnin hefur í mörg ár verið í stríði við eldri borgara og öryrkja þessa lands. Það er margbúið að benda á ósann- gjarnar skerðingar á lífeyristekjur, aukalífeyris- sparnað og margt fleira sem ekki verður rakið hér. Hugsa sér að skattleysismörk eru 30% undir reikn- uðum fátækramörkum Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, fátækramörkin ættu að vera samkvæmt þeirra útreikningum 130 þúsund kr. á mánuði. Margir stjórnmálamenn sögðu bæði í ræðu og riti fyrir kosningar að lífeyrissjóðskerfið væri það besta í heimi. En fyrir hverja? Ekki fyrir þá sem þeim voru ætlaðir, ekki fyrir fólkið sem hefur greitt í sjóðina frá upphafi. Eru það bara alþingis- mennirnir sem eiga rétt á áhyggjulausu ævi- kvöldi?! eigum við bara að horfa á og sleikja sárin, því við vorum ekki nógu vel vakandi fyrir okkur sjálf? Er ekki kominn tími til að verkalýðshreyf- ingin og lífeyrissjóðirnir láti heyra í sér um þessi mál, áður en ríkið er búið að þjóðnýta lífeyrissjóð- ina? Nú hefur ný ríkisstjórn tekið við völdum og er búin að lögbinda það að 70 ára og eldri megi vinna eins og þeir vilji án skerðinga á bótagreiðslum og 67-70 ára megi vinna fyrir 25 þúsund krónurá mánuði án skerðingar. Hvers eigum við að gjalda sem erum á lífeyris- bótum í dag og höfum greitt í lífeyrissjóð hátt í 40 ár? Það er verið að hegna okkur sem greiddum í lífeyrissjóð. Við fáum lægri heildargreiðslur en þeir sem aldrei hafa greitt í lífeyrissjóð. Það sést best á þeim dæmum sem hér fylgja á eftir. Auðvitað á ekki að skerða tekjurnar frá lífeyris- sjóði. Til hvers vorum við að greiða í almennu lífeyrissjóðina í öll þessi ár? Dæmin hér á eftir sýna vel hvernig farið er með okkur í dag. Hæstu greiðslur sem einstaklingur getur fengið greitt frá Tryggingastofnun í dag eru 126.537 kr. á mánuði. Hér eru dæmi um tvo ellilífeyrisþega sem búa einir. A hefur greitt í lífeyrissjóð í 35 ár og fær 80 þús. kr. á mánuði frá lífeyrissjóði. B hefur aldrei greitt í lífeyrissjóð en vinnur nú fyrir 80 þús.kr.á mánuði. Hér eru sýnd dæmi sem sýna hvað þessir einstaklingar fá til viðbótar frá Tryggingastofnun. Hér sést vel hvað skerðingin er mikil á launatekj- um sem koma frá lífeyrissjóði. Hér eru dæmi um tvenn hjón önnur hjónin hafa greitt í 35 ár í lífeyrissjóð en hin ekki. Hér koma svo dæmi um 67 ára einstaklinga. A- fær kr. 25 þúsund lífeyrissjóðstekjur, B-hefur ekki greitt í lífeyrissjóð,en vinnur fyrir 25 þúsund á mánuði. Hér eru aðeins sýnd sex dæmi sem sýna glöggt óréttlætið. Það er ekki sama hvaðan tekjurnar koma. Skerðingin er mest ef tekjurnar koma frá lífeyrissjóðum. Það skal tekið fram að í öllum dæmunum er um heildartekjur að ræða – þarna á eftir að taka skatt. Skattleysismörkin eru í dag 90 þúsund kr. Þetta er ekki eina skerðingin í bótakerfinu því þegar kemur að því að reikna desember og orlofsuppbót þá er líka hægt að sjá óréttlætið þar. Desemberuppbótin er reiknuð 30% á tekjutrygg- ingu en orlofsuppbótin er reiknuð 20% á heimilis- uppbót. Hjón fá ekki orlofsuppbót af því þau fá ekki heimilisuppbót. Ég treysti nýrri ríkisstjórn til að lagfæra þennan óskapnað sem greiðslur lífeyrisbóta eru komnar í og vinda ofan af vitleysunni. Er ekki kominn tími til að Samtök atvinnulífsins, verkalýðshreyfingin, lífeyrissjóðirnir og ríkisstjórnin fari að tala saman? Það er nauðsynlegt að hægri höndin viti hvað sú vinstri er að gera. Höfundur er formaður félags eldri borgara á Suðurnesjum. Grein þessi birtist í blaðinu í gær en fyrir mistök féllu skýringardæmin niður. Greinin er því birt aftur. Til hvers að borga í lífeyrissjóð? GUÐRÚN E. ÓLAFSDÓTTIR Dæmi A: 70 ára maður býr einn. Launatekjur frá líf- eyrissj. 80 þús.á mánuði. Ellilífeyrir kr.24.831 Tekjutrygging kr.46.582 Heimilisuppbót kr.13.740 Samtals kr. 85.153 Dæmi B: 70 ára maður býr einn. Vinnur fyrir 80 þús. á mánuði. Ellilífeyrir kr.24.831. Tekjutrygging kr.59.366. Heimilisuppbót kr.17.510. Samtals kr. 101.707 Dæmi C: Hjón 70 ára fá hvort um sig 80 þús.kr.frá lífeyrissjóði á mánuði: Ellilífeyrir kr.24.831 Tekjutrygging kr.46.582 Heimilisuppbót 0 Samtals kr.71.413 Dæmi D: Hjón 70 ára hafa aldrei greitt í lífeyrissjóð. Vinna hvort um sig fyrir 80 þúsund á mánuði. Ellilífeyrir kr.24.831 Tekjutrygging kr.66.078 Heimilisuppbót 0 Samtals kr. 90.909 Dæmi F: B-býr einn. Vinn- ur fyrir 25 þúsund á mán- uði. Ellilífeyrir kr. 24.831 Tekjutrygging kr. 78.542 Heimilisuppbót kr. 23.164 Samtals kr. 126.537 Dæmi E: A- býr einn fær 25 þúsund kr. í launatekj- ur frá lífeyrissjóði. Ellilífeyrir kr. 24.831 Tekjutrygging kr. 78.542 Heimilisuppbót kr. 20.219 Samtals kr. 113.604 Heiðurslaun Enn er Alþingi að garfa í heiðurslaun- um listamanna. Núna á að hækka þau úr 125 þúsundum í 150 þúsund á mánuði. Vonandi gagnast sú hækk- un útvöldum listamönnum – lista- fólki, svo að maður sé korrekt – til að geta einbeitt sér betur að listinni. Jón Nordal (81) fær meiri tíma frá brauð- stritinu til að semja tónverk. Matthías Johannessen (77) getur ort fleiri ljóð per mánuð. Guðmunda Elíasdóttir (87) getur sungið meira en ella. Erró (75) getur keypt sér snúða. Hér vakna þó spurningar eins og endranær. Er það sérstakur heiður að vera á 150 þúsund króna launum? Meiri heiður en að vera t.d. á eftirlaunakjörum þingmanna og ráðherra, sem Alþingi ákveður líka? Hlynur Þór Magnússon hlynur.eyjan.is Hvar er Björn? En það hefur vakið athygli margra, hversu Björn hefur lítið haft sig í frammi nú síðustu daga í einhverju heitasta pólitíska deilumáli sem nú er uppi. Sérstaklega er þetta athyglisvert, þegar haft er í huga að Björn Bjarna- son er ráðherra kirkjumála og ætti þess vegna að vera öðrum fróðari um þau mál. Þegar svo við bætist að um fyrrverandi menntamálaráðherra er að ræða, er eiginlega alveg magnað að Björn skuli ekkert hafa tjáð sig um þau áform ráðherra menntamála að afnema markmið um kristilegt siðgæði úr námsskrám leikskóla og grunnskóla. Er þetta þó ekki akkúrat vettvang- urinn og málið, þar sem Björn Bjarna- son hefði átt að taka til varna? Björn Ingi Hrafnsson eyjan.is/bjorningi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.