Fréttablaðið - 13.12.2007, Page 37
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ JÓLIN KOMA O.FL.
Birna Halldóra Ólafsdóttir hefur alla tíð haft
yndi af fallegum fötum. Það hefur hún meðal
annars frá móður sinni og eldri systur sem
báðar eru smekkkonur.
„Ég myndi segja að ég væri með frekar klassískan
smekk,“ segir Birna. „Ég klæðist nær alltaf einhverju
svörtu og vel oftast frekar stílhrein föt. Ég nota svo
töskur og skó til að lífga upp á þau,“ bætir hún við.
Birna er þegar búin að velja jóladressið í ár og
fyrir valinu varð kjóll sem hún keypti á Tenerife í
haust. „Pilsið er plíserað en að ofan er hvítur toppur
með graffítímunstri og á hálsmálinu eru kósar. Það
má segja að kjóllinn sé pínulítið rokkaður og kannski
ekki alveg dæmigerður fyrir minn stíl. Við hann ætla
ég að nota minkaskinnsslá sem er ættargripur frá
ömmu minni en hana nota ég eingöngu við mjög hátíð-
leg tækifæri,“ segir hún.
Birna viðurkennir að hún sé pínulítið veik fyrir
merkjavöru. „Ég vil frekar versla sjaldan en kaupa
þá vandaðar flíkur. Mér finnst það miklu skemmti-
legra,“ segir hún. Birna vann um tíma hjá Sævari
Karli og þar kynntist hún hinum ýmsu merkjum. „Ég
hef alltaf verið hrifin af Prada, Dolce & Gabbana og
Roberto Cavalli svo eitthvað sé nefnt en kaupi þó að
sjálfsögðu annars konar föt. Svo er ég líka sjúk í tösk-
ur og hef meira að segja gert mér ferð til London til
að kaupa mér Gucci-tösku,“ segir hún og hlær.
Þá segist Birna versla mikið á netinu. „Ég fer inn á
hinar ýmsu síður og hef keypt allt frá skartgripum
upp í yfirhafnir.“ Hún er einnig liðtæk við saumavél-
ina og segist ekki hika við að breyta flíkum ef hún
telur þörf á. vera@frettabladid.is
Ættardjásn
á herðunum
Birna notar minkaskinnsslána ein-
göngu við hátíðleg tækifæri en hún
var upphaflega í eigu móðurömmu
hennar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
A
/V
Ö
LU
N
D
U
R
SKART FYRIR JÓLIN
Alls konar fylgihlutir eru fá-
anlegir í verslunum bæjarins
sem geta lífgað upp á
jóladressið.
TÍSKA 2
ÍSBJÖRN Í STOFUNA
Ross Lovegrove hefur hannað
sófa sem klæddur er gæru-
skinni og kallast
Barbarella.
HEIMILI 9
Vatnagörðum 24 - 26 • Sími 520 1100 • www.bernhard.is
Bernhard ehf. er eini viðurkenndi
innfl utnings- og umboðsaðili
á Fly-Racing búnaði á Íslandi