Fréttablaðið - 13.12.2007, Blaðsíða 39
FIMMTUDAGUR 13. desember 2007 3
Í vor- og sumartísku Yves Saint
Laurent er horfið aftur til fyrri
hluta síðustu aldar.
Óhætt er að segja að vor- og sum-
arlína tískhönnuðarins Yves
Saint Laurent dragi dám af
fjórða áratug síðustu aldar,
þegar þokkagyðjurnar Marlene
Dietrich og Katherine Hepburn
drottnuðu á hvíta tjaldinu.
Vatnsgreitt hár, vesti, mittis-
háar og næstum herralegar
buxur, breið belti og stórar
hálsfestar voru á meðal þess sem
sýningarstúlkur spígsporuðu í á
tískusýningu Laurent í París. Það
er því um að gera að athuga
hvort amma gamla
eigi ekki
eittvað sem
er hægt að fá
lánað fyrir
næsta sumar.
- rve
Vatnsgreitt
hár og vesti
Skemmtilega
óþekk
ILMURINN FUNNY! FRÁ MOSCHINO
SKILUR EFTIR SIG GIRNILEGA, ORKU-
GEFANDI, ÖRVANDI, SKEMMTILEGA
OG EILÍTIÐ ÓÞEKKA ANGAN.
Moschino-ilmvötnin hafa frá upp-
hafi verið upplífgandi, hótfyndin og
ungæðingsleg og enn og aftur hafa
þessi einkenni verið framkölluð í
umbúðum Funny! sem er nýjasti
ilmur Moschino. Flaskan er ljósblá
og lokuð með silfurhjarta, en blái
liturinn vísar til tærs vorhimins með
hjartalaga bleikum skýjum, glitr-
andi bakgrunni og silfurstöfum.
Hjarta Funny! er umvafið mun-
úðarfullu jasmínblómi sem bland-
ast fínlegri bóndarós. Fjóla eykur
enn á kvenleika ilmsins, en
ávaxtakeimur er í toppnótunni.
Bleikur pipar, ósæt
appelsína og rifsber
gera angan Funny!
bæði aðlaðandi, for-
vitnilega og ferska,
en grunnur-
inn byggist
á hlýju amb-
ers, bland-
aðs mosa, se-
drusviðar og
moskusilms.
- þlg
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Hún fékk bók en greifinn
nál og tvinna
Þar sem ég sit við tölvuna og hugsa heim, hlustandi á uppáhalds-
jólaplötuna mína með Diddú (Man ég þá er hátíð var í bæ, þvílík
della þessi texti annars), þá finn ég til með þeim sem eiga jóla-
gjafirnar eftir. Ég byrja yfirleitt að versla í janúar enda vissara
að hafa tíma fyrir sér þegar þarf að finna 25 hugmyndir, jafnvel
tvisvar á ári ef afmæli eru talin. En er ekki ótrúlega erfitt að
finna eitthvað sniðugt handa herrum? Þrátt fyrir að þeir séu nú
farnir að nota meira af kremum og öðrum snyrtivörum og fylgj-
ast sífellt betur með tískunni eru hugmyndirnar ekki svo margar.
Hvað ætli ég sé oft búinn að gefa bróður mínum, föður og mági,
bindi í jólagjöf? Þeir munu sjálfsagt bráðlega halda sýningu sem
mun hafa yfirskriftina „Bindi í tuttugu ár!“ svo mörg eru þau
orðin.
En stundum koma tískusveiflur okkur til bjargar. Í ár er það
einhver tískuskríbentinn sem ákvað að í vetur skyldu það vera
hnepptar peysur sem yrðu ómissandi. Sniðug lausn í gjafamál-
unum, ekki satt? Það er nefnilega þannig í vetur að flíkin sem
hefur slegið öllum öðrum við er hneppta jakkapeysan í öllum
litum og efnum, jafnt einlit sem marglit, með tíglamunstri, í
angóraull eða kasmír og svo mætti áfram telja. Verðið er eins
mismunandi og gerðirnar. Til dæmis er hægt að finna hnepptar
peysur á 29 evrur hjá Delaveine og H&M, á 49,90 hjá Zöru en
upp í 500 evrur hjá Hermès, allt eftir því hversu flottar þær eiga
að vera. Flestar eru þær þó líkar hverri annarri og erfitt að sjá
mun á peysu frá Prada eða Gap.
Hins vegar er alltaf áhugavert að velta sér fyrir uppruna
hverrar flíkur því tískusagan er eins og hver önnur sagnfræði,
oft nátengd atburðum líðandi stundar. Hvaðan kemur litli svarti
kjóllinn? Hver hannaði smókinginn? Eða rykfrakkann sem var
gerður fyrir skotgrafir fyrra stríðs og fékk þess vegna nafnið
„trench-coat“ (trench=skotgröf).
Jakkapeysan eða cardigan sem er
nafn hennar jafnt á ensku sem á
frönsku, á sér langa sögu. Nafn-
ið kemur einmitt frá greif-
anum af Cardigan í
Wales-héraði á Bret-
landi. Það var á
fyrri hluta 19.
aldar sem
greifinn af
Cardigan
var í
breska
hernum og
fannst hann
vera aðþrengdur
í peysunni sem fylgdi
einkennisbúningnum.
Hann tók sig til og risti
peysuna í sundur með sverði (í þeirri sveit hefur líklega verið
sungið á jólum: „hún fékk bók og hann fékk nál og tvinna“),
saumaði svo fyrir endana. Þetta þótti þessi fína hugmynd og
seinna bættust tölurnar við.
Og nú 170 árum seinna bjargar greifinn af Cardigan jólunum.
Þetta er yndislegt líf. Bara hægt að fara að baka piparkökur
enda jólaglögg á sunnudag. bergb75@free.fr
Útskriftakjólar
Ótrúlegt úrval af
útskriftarkjólum
Verð frá 7990
Kringlunni Sími: 553 5020