Fréttablaðið - 13.12.2007, Side 43
FIMMTUDAGUR 13. desember 2007 7
Fyrir komandi jól ákvað mark-
aðsráð Salzburgar í Austur-
ríki í samvinnu við dýragarð
borgarinnar, dótaminjasafnið
og þjóðleikhúsið að setja á fót
sjálfshjálparnámskeið fyrir
börn sem hræðast þarlenda
jólagrýlu meira en góðu hófi
gegnir.
Krampus heitir hann sem ásækir
óþekku börnin. Hann skilur eftir kol
til viðvörunar heima hjá þeim eða,
þegar í harðbakkann slær, bindur
hann þau á höndum og fótum með
stálkeðjum og slær þau í rassinn
með birkivendi.
„Upplifðu Krampus“ heitir nám-
skeiðið þar sem börnin læra að
þekkja fyrirbærið og þeim er kennt
að komast yfir hræðsluna. Með því
að föndra, dansa og klappa dýrum
minnkar smám saman fjarlægðin
við hinn hyrnda, ófrýnilega og loðna
Krampus.
Í dýragarðinum skoða þau horn á
dýrum, í dótaminjasafninu er þeim
kennd saga Krampusar og þau látin
smíða sína eigin Krampus-grímu og
í þjóðleikhúsinu fá þau að klæða sig
í Krampus-búning og hlaupa um.
Námskeiðið var haldið í fyrsta
skipti nú í haust og varð geysivin-
sælt. Sjö hundruð krakkar tóku þátt
og verður því haldið áfram um sinn
þótt Krampus sé farinn að hlaupa
um götur að hræða mann og annan.
Uppeldisfræðingarnir einblína á
jákvæðar hliðar grýlunnar: að
Krampus reki burt illa anda með
sínu ljóta útliti og bjöllum og strjúki
fólki með birkivendi til að stuðla að
frjósemi.
Markmið námskeiðsins er að upp-
ræta hræðslu í hjörtum barnanna.
Hins vegar á enn eftir að koma í ljós
hvort Krampus fækki ferðum sínum
til óþekkra barna með vönd sinn og
keðjur. - nrg
Krampushræðslan
kveðin niður
Krampus á samkvæmt gömlum sögnum
að slá börn með birkivendi.
Gyllta jólaskrautið frá Georg
Jensen ber með sér glæsi-
leika.
Jólaóróar frá Georg Jensen eru
orðnir á þriðja tuginn. Sá fyrsti
var búinn til 1984 og síðan hafa
komið nýjar útfærslur ár hvert.
Oftast birtast þeir upp úr pásk-
um. Fjölmargir safna þessum
gripum og þeir eru vinsælir til
gjafa einkum um þetta leyti.
Sumir leyfa þeim að hanga uppi
allt árið en aðrir taka þá bara
fram fyrir jólin. Órórana er
hægt að nota á marga vegu og
borðarnir sem fylgja eru
ármerktir. Þeir eru til í tveimur
stærðum og er sá minni flottur á
jólatréð. - gun
Gyllt og
glæsilegt
Þessi myndarlegi geithafur frá árinu
1991 er einn óróanna góðu.
Kerti og tölvuspil
TÍMARNIR BREYTAST OG MENNIRNIR
MEÐ.
Í gamla daga létu börnin sér
nægja kerti og spil en í dag dugar
ekkert minna en tölvuspil. Á vef-
síðunni leikjanet.is er hægt að
spila fjölda jólaleikja. Leikurinn
Ævintýraálfurinn 2 gengur út á að
safna sem flestum smákökum. Í
Merry Chrismash þurfa leikmenn
að svara spurningum um jólin
og í Gift Wrapped er keppt í að
rífa gjafapappírinn utan af jóla-
pökkunum á sem stystum tíma.
Þetta eru bara nokkrir af þeim
jólaleikjum sem boðið er upp á
og um að gera fyrir tölvuáhuga-
fólk að kynna sér málið. - öhö
Jól í dós
MALT OG APPELSÍN ER ÓRJÚFAN-
LEGUR HLUTI AF JÓLABORÐHALD-
INU.
Mikilvægt er að
hella fyrst app-
elsíninu í glas-
ið og svo malt-
inu. Ef gert er
öfugt freyðir upp
úr glasinu út á
borð. Hægt er
að kaupa tilbúna
blöndu í dósum
til hægðarauka.
- rt
Enn betra golf 3
Enn betra golf
Eftir
Arnar Má Ólafsson
landsliðsþjálfara og
Úlfar Jónsson
margfaldan
Íslandsmeistara
og golfkennara
Eftir Arnar Má Ólafsson
landsliðsþjálfara og
Úlfar Jónsson
margfaldan Íslandsmeistar
a
GOLF
ENN BETRANNBETRA
G
O
LF
Arnar M
ár Ó
lafsson og Ú
lfar Jónsson
11/20/07 11:46:42 PM
Jólabók golfarans!
Borgartúni 23 · 105 Reykjavík · Sími: 512 7575 - www.heimur.is
eftir Arnar Má Ólafsson og Úlfar Jónsson
Fæst í helstu bókabúðum og víðar!
Verð kr. 3.490,- m/vsk
Jólagjöf fyrir þá
sem „eiga allt“
Gefðu hlýju og samveru um jólin!
Allir kunna að meta það að hafa tækifæri á að komast í gott
frí í sólina eða annað. Gjafabréf Heimsferða er jólagjöf, sem
er í senn hagnýt, skemmtileg og sveigjanleg og felur í sér
hlýju og samveru með sínum nánustu. Lágmarksupphæðin
er 3.000 kr. en annars ræður þú upphæðinni.
Nánar á www.heimsferdir.is og í síma 595 1000.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
3
0
87
7