Fréttablaðið - 13.12.2007, Síða 82
50 13. desember 2007 FIMMTUDAGUR
Tækniundri James Cameron,
Avatar, hefur verið frestað um
sex mánuði af kvikmyndaveri
Fox. Og í staðinn fyrir að verða
sumarsmellur verður myndin
hugsuð til að taka jólin með
trompi árið 2009. Myndin á að
þykja mikið brautryðjendaverk í
vinnslu kvikmynda og
samkvæmt fregnum af
gerð myndarinnar mun
hún gjörbylta kvikmyndagerð í
heild sinni en hún verður öll í þrí-
vídd.
Ólíkt því sem flestir gætu talið
er Cameron ekkert ýkja ósáttur
með þessa ráðstöfun enda var
sami háttur hafður á með Titanic.
Hún átti upphaflega að vera
frumsýnd að sumarlagi en var
síðan seinkað fram að jólum.
Ævintýri þeirrar myndar ættu
flestir að þekkja en því lauk
með einni eftirminnileg-
ustu setningu Óskarsverð-
launahátíðarinnar: „Ég er
konungur heimsins.“
Annars hefur Fox ekki undan
við að fresta kvikmyndum og
hefur framhaldsmyndunum
Night at the Museum og þriðju
Ísaldar-myndinni einnig verið
slegið á frest og er reiknað með
því að þær verði frumsýndar árið
2009.
> FRUMSÝNDAR UM HELGINA
Alvin and the Chipmunks: Jason Lee
úr My Name Is Earl leikur umboðs-
mann hinna hæfileikaríku íkorna
sem slá í gegn með söng og dans.
Run Fat Boy Run: Simon Pegg og
Thandie Newton leika aðalhlut-
verkin í þessari gamanmynd um
mann sem stingur af úr sínu
eigin brúðkaupi en hleypur
síðan maraþon til að vinna
eiginkonuna sína aftur.
bio@frettabla-
Þær verða sífellt meira krassandi,
kjaftasögurnar í kringum 22. Bond-
myndina. Á vef Empire-kvikmyndatíma-
ritsins er tilkynnt að svissneski leikarinn
Anatole Taubman hafi verið ráðinn
nánasti aðstoðarmaður illmennisins í
myndinni, en það verður leikið af
hinum franska Mathieu Almaric.
Taubman gaf þetta til kynna í sjónvarps-
viðtali og lét hafa eftir sér að það
væri eins og að leika til úrslita
í Meistaradeildinni í
knattspyrnu að leika í
Bond.
En það sem vekur einna
mestu athyglina er að
Taubman sagðist þurfa að
leggja á sig mikla þjálfun
og að hann þyrfti að læra
töluvert mikið af texta,
nokkuð sem aðstoðarmenn þrjótanna hafa ekki þurft að leggja
á sig hingað til heldur hefur þess einfaldlega verið krafist að
þeir gætu sett upp illan svip og veitt James Bond verðuga
samkeppni.
Þessi tíðindi hafa reynst vatn á myllu Bond-samsæriskenn-
ingasmiða, sem eru víst á hverju strái, og þeir spá því að
Almaric sé hluti af sömu glæpasamtökum og Mr.
White sem fékk að finna til tevatnsins í
Casino Royal. Og að þessi samtök séu ansi
alþjóðleg og að yfirmaður þeirra sé enginn
annnar en Ernst Blofeld, höfuðandstæðing-
ur MI6. Bond 22 fer í tökur í næsta mánuði
og mun Daniel Craig að sjálfsögðu verða í
hlutverki Bond.
Bond að fara að kljást við Blofeld
FÆRIST NÆR BLOFELD Bond-spekingar
eru sannfærðir um að verið sé að búa til
leit að Ernst Blofeld í Bond 22.
Heimildarmynd eftir Óskarsverð-
launahafann Errol Morris um Abu
Ghraib verður frumsýnd á kvik-
myndahátíðinni í Berlín sem hald-
in verður í byrjun febrúar. Morris
hlaut Óskarinn fyrir Fog of War
árið 2004 og að þessu sinni beinir
hann sjónum sínum að þessu mikla
hneyksli sem reið yfir bandaríska
herinn fyrir þremur árum. Reikna
má með að mynd Morris hljóti
mikla athygli enda vöktu ógeð-
felldar myndir úr fangelsinu mik-
inn óhug og spurningar um veru
herliðs í Írak en á ljósmyndunum
mátti sjá bandaríska hermenn
niður lægja íraska fanga. Ellefu
þeirra voru síðar dæmdir fyrir
óskapnaðinn.
En það er ekki bara heimildar-
mynd Morris sem vekur athygli
því kvikmynd Pauls Thomas And-
erson, There Will Be Blood, verður
einnig frumsýnd en hún skartar
sérvitringnum Daniel Day-Lewis í
aðalhlutverki. Myndin fjallar um
olíubransann á upphafsárum þess
í Bandaríkjunum. Til gamans má
geta að Paul Dano leikur einnig í
myndinni en hann verður væntan-
lega í aðalhlutverki í næstu kvik-
mynd Dags Kára, Good Heart.
Af öðrum myndum sem vafalítið
eiga eftir að vekja athygli á hátíð-
inni er Gardens of the Night, nýj-
asta mynd Johns Malkovich, og þá
eiga stuttmyndir Isabellu Rossell-
ini um kynlíf skordýra eflaust eftir
að trekkja að.
Abu Ghraib á Berlín
HNEYKSLI Abu Ghraib var mikið
hneykslismál og á Berlínarhátíðinni
verður frumsýnd heimildarmynd um
fangelsið.
Börnin trúa á jólasveininn,
trúa því að hann komi með
eitthvað fallegt handa þeim
í skóinn. Og Hollywood
trúir líka á jólasveininn,
í það minnsta þegar hann
græðir peninga fyrir stóru
kvikmyndaverin.
Um helgina verður frumsýnd enn
ein jólasveinamyndin þegar Fred
Clause verður tekin til sýningar.
Fred þessi er bróðir jólasveinsins
og á lítið sameiginlegt með hinni
gjafmildu fjölskyldu sinni. Hann
starfar við innheimtu og kýs því
frekar að hirða hluti af fólki frek-
ar en að gefa þá. En þegar Fred er
gripinn við þjófnað kemur bróðir
hans á hreindýrunum og bjargar
honum úr klípunni með einu skil-
yrði þó; Fred þarf að vinna í verk-
smiðjunni á hjara veraldar.
Coca Cola-sveinninn
Þrátt fyrir að hinir séríslensku
jólasveinar séu þrettán, þjófóttir
bræður og eigi tröllskessu fyrir
mömmu hefur engum í Bandaríkj-
unum dottið í hug að festa þá á
filmu. Þótt saga þeirra sé vissu-
lega merkileg og ekki algengt að
menn eigi sér dvalarstað í fjöllun-
um hefur kvikmyndagerðin frá
því um miðja síðustu öld aðallega
snúist um hinn feitlagna,
skeggjaða og útitekna Coca Cola-
jólasvein sem á heima á Norður-
pólnum og er með heilan her
dverga til að framleiða leikföng
handa smáfólkinu.
En saga jólasveinsins á hvíta
tjaldinu hefst reyndar langt fyrir
tíma markaðsvæðingar banda-
ríska gosdrykkjaframleiðandans
og endurnýtingar hans á teikning-
um Thomas Nast. Við upphaf 20.
aldar voru gerðar nokkrar stutt-
myndir um jólasveininn sem gaf
krökkum í skóinn og hvarf síðan
jafnharðan upp um skorsteininn.
D. W Griffith gerði þannig mynd
um börn sem hugðust klófesta
þennan gjafmilda karl þegar hann
kæmi til þeirra á jólanótt en með
litlum árangri. Og landkönnuður-
inn Frank E. Kleinschmidt gerði
25 mínútna langa kvikmynd um
jólasveininn í Alaska þar sem
hann hlúði að hreindýrum sínum
og rabbaði við eskimóa.
Vantrú og efasemdir
Jólasveinamyndir leitast við að
útskýra leyndarmálin á bak við
söguna, hvernig í ósköpunum hann
fari að því að dreifa gjöfum til
allra barna í heiminum og viti
jafnframt hver þeirra séu góð og
hver óþekk og ekki hvað síst;
hvernig hreindýrin geti flogið með
vagninn hans. Allt hefur þetta
verið skilmerkilega skjalfest í
kvikmyndunum frá Hollywood.
Flugkrafturinn kemur frá stjörnu-
ryki, jólasveinninn er með njósn-
ara frá Timbuktu til New York og
svo eru það dvergarnir sem sjá
um að framleiða gullin handa
krökkunum í risastórri og full-
kominni verksmiðju.
En blessaði jólasveinninn hefur
einnig þurft að kljást við vantrú
og efasemdir barna um að hann sé
til. Kannski ekki skrítið þegar
verslunarmiðstöðvar eru fullar af
rauðklæddum og horuðum jóla-
sveinum með skeggið niður á
nafla. Í kvikmyndinni Miracle on
34th Street frá árinu 1947 lék
Natalie Wood hina ungu Susan
Walker sem neitaði að trúa því að
roskni maðurinn sem móðir
hennar hafði ráðið til að leika Kris
Kringle væri í alvörunni jóla-
sveinninn holdi klæddur. Myndin
var síðar endurgerð árið 1994 og
þá þurfti Richard Attenborough
að ganga í gegnum alvöru, banda-
rísk réttarhöld til að sanna tilvist
sína sem jólasveinninn.
Illmenni og óþokki
Og þótt flestir álíti sem svo að jóla-
sveinninn hafi alltaf verið til þá
þurfti handlagni heimilisfaðirinn
Tim Allen að taka við af þeim
gamla í Santa Claus eitt, tvö og
þrjú. Allen óx skegg og fitnaði
meira en góðu hófi gegnir og varð
síðan að sannfæra son sinn um
örlög sín. Í framhaldsmyndunum
þurfti hann síðan að leita að hinni
einu sönnu ást og kljást við Jack
Frost til að bjarga jólahaldinu.
En jólasveinninn hefur ekki allt-
af verið góður. Og hefur átt undir
högg að sækja. Grinch reyndi
þannig að stela jólunum og Jack
Skellington í Martröð Tim Burton
fyrir jólin dreymdi um það eitt að
vera jólasveinn. Að öllum líkind-
um er það hins vegar Billy Bob
Thornton sem hefur verið hvað
mesti skúrkurinn í rauðu fötunum.
Bad Santa verður seint sökuð um
að vera „jólaleg“ útfærsla á karlin-
um í rauða búningum enda er per-
sóna Billy Bob, Willie, virkur alkó-
hólisti sem nýtir hvert tækifæri til
að komast yfir konur og rænir
verslunarmiðstöðvarnar sem hann
vinnur hjá. Sagan er reyndar
byggð á annarri goðsögn sem virð-
ist lifa góðu lífi þar vestra en
ósjaldan hefur þeim brugðið fyrir,
ógæfumönnum í rauða búningin-
um sem segja hó, hó, hó og betla
peninga á götum stórborganna.
Jólasveinninn í öllum myndum
BRÓÐIR JÓLASVEINSINS Vince Vaughn leikur bróður jólasveinsins sem hefur valið sér
eilítið öðruvísi starfsframa en hinir í fjölskyldunni.
SANNUR JÓLASVEINN Tim Allen verður Kris Kringle eða Santa Claus fyrir röð tilviljana
og þarf því að halda verksmiðjunni gangandi og kljást við óvini starfsins.
ÞRJÓTUR Billy Bob Thornton er ákaflega
fráhrindandi sem jólasveinninn í Bad
Santa.
Cameron frestað
Eins og fram hefur komið í fjöl-
miðlum eru handritshöfundar í
Hollywood enn í verkfalli. Þrátt
fyrir að einhverjir hafi fyllst bjart-
sýni í síðustu viku um að deilan
myndi leysast hefur heldur betur
dregið fyrir sólu og er verkfallið
sagt vera í enn meiri hnút en áður.
Þar sem stórar verðlaunahátíðir
á borð við Golden Globe og Óskar-
inn nálgast óðum eru framleið-
endur þeirra farnir að
ókyrrast því ef verkfallið
dregst á langinn gætu stór-
stjörnurnar afbókað komu
sína til stuðnings við
verkfallsbaráttu
handritshöfund-
anna.
Leikarar hafa
sýnt verkfalli
handritshöf-
unda mikinn
skilning og
rætt á opin-
skáan hátt um málefni þeirra.
Í kvikmyndatímaritinu Variety
er haft eftir framleiðanda að leik-
arar á borð við George Clooney
hafi verið mjög sýnilegir í verk-
fallinu og meira að segja lagt pen-
inga í verkfallssjóðinn. „Og þeir
myndu ekki vilja ganga til liðs við
sjónvarpsframleiðendur, svarna
andstæðinga verkfallsins,“ segir
framleiðandinn við blaðið og því
gæti Kodak-höllin verið hálf-
tóm þegar Óskarinn verður
afhentur í byrjun næsta árs.
Stjörnulaus Óskar
GALLHARÐUR STUÐNINGS-
MAÐUR George Clooney hefur
sýnt stuðning sinn í verki og
lagði meðal annars fjármagn í
verkfallssjóð handritshöfunda.
FRESTAÐ Tækni-
undri James
Cameron,
Avatar, hefur
verið frestað
um hálft ár.