Fréttablaðið - 13.12.2007, Page 84
52 13. desember 2007 FIMMTUDAGUR
maturogvin@frettabladid.is
Hvaða matar gætirðu síst verið án?
Skyrs, pönnukaka, fisks, grænmetis og banana.
Besta máltíð sem þú hefur fengið:
Ég flokka hluti ekki undir best og verst en eitt af því
eftirminnilegasta sem ég hef borðað er rússnesk kjöt-
súpa, matreidd handa mér af heimamanni í Síberíu
og skolað niður með rússneskum vodka og kampa-
víni. Hrísgrjónagrauturinn hennar ömmu Ástu var líka
snilld, sakna hans mikið.
Er einhver matur sem þér finnst vondur?
Mér finnst sagógrautur ógeðslega vondur. Enn verra
var að ég fékk ekki að standa upp frá borðinu í
leikskólanum fyrr en ég kláraði af disknum. Sat því
oft löngum stundum og starði á glæru kekkina fljóta
í mjólkinni.
Leyndarmál úr eldhússkápnum:
Frosin engiferrót sem ég ríf út á súpur.
Hvað borðar þú til að láta þér líða betur?
Ég fæ mér kreistan gulrótarsafa eða appelsínusafa á
hverjum morgni og tek auðvitað lýsi. Ef ég er slöpp
borða ég hreina engiferrót og drekk kókóssafa.
Þetta virkar því ég verð bara eiginlega aldrei veik.
Hvað áttu alltaf til í ísskápnum?
Filmur, mjólk, lýsi og allskonar sósur.
Ef þú yrðir föst á eyðieyju, hvað tækirðu með
þér?
Veitingastaðinn Ban Thai.
Hvað er það skrítnasta sem þú hefur
borðað?
Mér hafa verið boðnir steiktir kakkalakk-
ar en ég afþakkaði.
MATGÆÐINGURINN ÁSTA KRISTJÁNSDÓTTIR LJÓSMYNDARI
Kókossafi og engifer til varnar veikindum
> Rjómaís
Þegar ítalski landkönn-
uðurinn Marco Polo sneri
heim frá Kína árið 1295 tók
hann með sér kínverska upp-
skrift að eftirrétti sem kall-
aðist mjólkurís. Evrópubúar
skiptu út mjólk fyrir rjóma
og rjómaísinn sló í gegn.
Bergþór Ólafsson, eigandi
líkamsræktarstöðvarinnar
Árbæjarþrek, hefur gaman
af því að baka og býður hér
lesendum upp á ilmandi
eplaböku.
„Ég baka töluvert en tek þetta í
skorpum. Vilborg frænka kenndi
mér að baka þegar ég var í sveit
hjá henni, og ég bakaði mikið sem
unglingur,“ segir Bergþór. Hann
segist helst baka eplabökur, brún-
kökur og tebollur. „Núna er ég
reyndar að æfa mig í að baka
pönnukökur og snúa þeim við í loft-
inu. Ég ætlaði meira að segja að
keppa í pönnukökubakstri í sumar
en það skaraðist við keppni í
hlaupi,“ segir Bergþór og segist
jafnvel geta hugsað sér að læra
bakstur.
Bergþór er ekki alveg viss hvað-
an meðfylgjandi uppskrift kemur.
„Annað hvort frá mömmu eða
Mæju mágkonu. Örugglega Mæju,
hún bakar svo geðveikar kökur.“
1. Hrærið sykri, smjöri, eggjum,
hveiti og lyftidufti saman. Setjið
þriðjung deigsins í botninn á
háu kringlóttu móti. Munið að
smyrja formið vel og strá
jafnvel hveiti yfir.
2. Flysjið og brytjið eplin, og
dreifið bitunum yfir deigið.
3. Skerið súkkulaðið í litla bita og
stráið því yfir eplin, ásamt smá
kanilsykri.
4. Setjið restina af deiginu yfir
eplin og hyljið þau alveg. Deigið
er stíft og best að dýfa sleif í
heitt vatn til að dreifa deiginu.
5. Bakið við 150-170 gráður neðst í
ofninum í allt að klukkutíma.
Fylgist með bökunni, hún á að
vera ljósbrún að ofan.
„Hjá mér tekur þetta klukku-
tíma en ég er með gamlan ofn án
blásturs, svo kannski þarf ekki
svo langan tíma. Eplabökur á þó
að baka eins lengi og hægt er svo
þær verði ekki blautar,“ segir
Bergþór. „Best er að borða kökuna
volga með ís eða rjóma og kaldri
mjólk.“
En mælir íþróttamaðurinn með
svona sætindum? „Það er hluti af
því að láta sér líða vel að borða
góðan mat, en auðvitað í hófi,“
segir Bergþór. „Ég borða oftast
hollan mat en er líka sælkeri. Of
margir úða í sig óhollustu í of
miklu magni og ætla svo að redda
sér með stuttu heilsuátaki. Ég
mæli frekar með því að gera dag-
lega hreyfingu að sjálfsögðum
hluta lífsins og einblína ekki á
vigtina heldur þjálfunina sem
hreyfing gefur.“
eygloa@frettabladid.is
Eplabaka eftir æfingu
Í LAGI AÐ BORÐA SÆTINDI Í HÓFI Bergþór Ólafsson hefur gaman af því að baka, en hann lærði kökubakstur í sveit hjá frænku
sinni á árum áður. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Mörgum þykir ómissandi að
drekka heita jólaglögg á köldu
aðventukvöldi enda fátt sem
kemur meiri yl og jólaskapi í
kroppinn. Glögg má upprunalega
rekja til þýska orðsins glühwein
sem breiddist út um allan heim en
þróaðist þó nokkuð á leið sinni.
Svíar hafa líklega haldið heiðri
glaggarinnar hvað hæstum, en þar
er eflaust til sérstök uppskrift á
hverju heimili.
Áður var glöggin talsvert dauf-
ari en við þekkjum í dag, en rauð-
vín var þá þynnt til helminga á
móti vatni. Glöggin varð sterkari
þegar menn komust að því að
brenndur sykur bætti bragðið.
Áfengið þurfti að vera minnst 20%
til þess að sykurinn brynni áður
en honum var blandað saman við.
Talsvert af áfenginu hverfur þó
við þessa aðferð og í dag styrkja
menn glöggina án þess að brenna
sykurinn.
Aragrúi ólíkra uppskrifta að
glögg er til en netsíðan cocktail.is
býður upp á eina ofureinfalda.
Áfengið er hitað í potti og látið
malla, ekki sjóða, við meðalhita í
klukkutíma. Sykurinn er síðan
leystur upp í víninu, og negulnögl-
um, kanilstöngum, kardimommu
og engiferrót bætt út í. Margir
taka hýðið af appelsínuberki og
bæta því sömuleiðis út í.
Kælið í hálftíma og sigtið svo
frá. Nú má bæta við rauðvíni,
sykri, áfengi eða kryddi eftir
smekk. Mörgum þykir gott að
bragðbæta með púrtvíni, koníaki,
Armagnac eða Grand Marnier.
Hitið aftur og berið fram með rús-
ínum og heslihnetum eða pipar-
kökum.
Jólaglögg á aðventu
JÓLAGLÖGG Víða um Norðurlönd er heit
og ilmandi jólaglögg ómissandi þáttur
jólahaldsins.
Ebba Guðný Guðmundsdóttir
sendi nýlega frá sér bókina Hvað
á ég að gefa barninu mínu að
borða? Bókin er ætluð sem leiðar-
vísir fyrir foreldra sem eru að
byrja að gefa börnum sínum fasta
fæðu.
„Ég held og vona að þörf sé
fyrir svona bók, ég hefði þurft
hana þegar dóttir mín fór að borða
fasta fæðu. Maður er eins og auli
fyrst og veit ekkert,“ segir Ebba.
Í bókinni er meðal annars fjallað
um hvenær börn mega byrja að
borða vissar fæðutegundir og
hvernig best sé að framreiða mat-
inn fyrir þau, ásamt einföldum
uppskriftum og nytsömum fróð-
leik.
„Fólk er orðið hálfringlað og
fær sífellt nýjar upplýsingar og
ráðleggingar. Að útbúa matinn
sjálfur er miklu auðveldara og
skemmtilegra en fólk heldur,“
segir Ebba og bætir við að óhætt
sé að gefa börnunum keyptan mat
með. „Krukkumatur bragðast þó
alltaf eins sem getur gert börnin
dyntótt. Einn kosturinn við heima-
gerðan mat er fjölbreytt bragðið,“
segir Ebba. „Matseldinni fylgir
svo óumflýjanlega ást og
umhyggja, og börnin fá ferska og
næringarríka fæðu.“ - eá
Heimagert fyrir börnin
HVAÐ Á ÉG AÐ GEFA BARNINU MÍNU
AÐ BORÐA? Bók Ebbu Guðnýjar
Guðmundsdóttur er leiðarvísir handa
foreldrum barna sem eru að byrja að
borða fasta fæðu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓSTBRÆÐUR
Á DVD
FÓSTBRÆÐUR
Loksins á DVD!
Tryggðu þér allar
5 seríurnar!
EPLABAKA
250 g sykur
150 g smjör
3 egg
230 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
2 epli
150 g suðusúkkulaði
Kanilsykur
JÓLAGLÖGG
1 lítri rauðvín
15 cl ákavíti eða vodki
10 stk. kanilstangir
2 tsk. kardimomma
5 stk. negulnaglar
5 sneiðar engiferrót
225 g sykur