Fréttablaðið - 13.12.2007, Side 88
13. desember 2007 FIMMTUDAGUR
Árið 2007 var ár lögbrota og
gleðskapar hjá þeim Lindsay
Lohan, Paris Hilton, Britney
Spears, Amy Winehouse og
Nicole Richie þótt sú síðast-
nefnda virðist hafa fundið
beinu brautina. Stelpurnar
hljóta að teljast umtöluðustu
Hollywood-stjörnur ársins
enda hefur blanda æsku,
ríkidæmis og frægðar sjald-
an klikkað þegar kemur að
því að vekja umtal.
Lindsay Lohan
Janúar: Biður fatafellur afsökunar
á að hafa kallað þær hórur í tölvu-
pósti sem lak til fjölmiðla. Fer í
meðferð aðeins tveimur vikum
eftir botnlangauppskurð.
Febrúar: Skellir sér á djammið
degi áður en 30 daga áfengismeð-
ferð hennar átti að ljúka.
Maí: Handtekin fyrir ölvunar-
akstur ellefu dögum eftir aðra
áfengismeðferð sína.
Júlí: Aftur tekin fyrir ölvunar-
akstur og fyrir að hafa kókaín
undir höndum.
Október: Sættist við föður sinn
meðan hún var í sinni þriðju með-
ferð í Utah.
Paris Hilton
Janúar: Vefsíðan parisexposed.
com opnuð með dagbókarfærslum,
heimavídjóum og persónulegum
skjölum Parísar.
Maí: Dæmd til 45 daga fangelsis-
vistar fyrir að aka um með útrunn-
ið ökuskírteini.
Júní: Sleppt úr fangelsi eftir aðeins
þrjá daga. Síðan send þangað aftur
til að ljúka við afplánunina.
Október: Frestar ferð sinni til
Rúanda þrátt fyrir að hafa heitið
því að leggja góðgerðamálum lið
eftir fangelsisvistina.
Nóvember: Málar bæinn rauðan í
Kóreu þar sem hún endurnýjaði
samning sinn sem talskona Fila.
Britney Spears
Febrúar: Rakar af sér hárið og
skráir sig í meðferð – tvisvar.
Ákveður hins vegar að fara ekki
fyrr en í þriðju tilraun. Eyðir mán-
uði á meðferðarheimili.
Maí: Heldur tónleika í nokkrum vel
völdum klúbbum með döprum
árangri.
Júní: Rífst opinberlega við mömmu
sína.
Ágúst: Fyrrverandi eiginmaður
Britneyjar, Kevin Federline, sæk-
ist eftir fullu forræði yfir sonum
þeirra. Dómarinn í málinu segir að
Britney misnoti bæði áfengi og eit-
urlyf í tíma og ótíma.
September: Kemur fram á MTV-
hátíð. Það sem átti að vera mikið
„kombakk“ verður hneyksli á allra
vörum sökum ömurlegrar frammi-
stöðu poppstjörnunnar.
Amy Winehouse
Maí: Giftist Blake Fielder-Civil
eftir að hafa verið trúlofuð honum
í mánuð.
Júní: Kemst á „topp tíu“ á Bill-
board listann með lag sitt
„Rehab“.
Ágúst: Þjáist af ofþreytu og aflýsir
öllum bókunum, meðal annars á
verðlaunahátíð MTV. Sést skömmu
seinna á götum Lundúna útötuð í
blóði og með skurði á handleggj-
um.
Október: Handtekin fyrir að hafa
maríjúana í vörslu sinni.
Nóvember: Kallar áhorfendur á
tónleikum „apapíkur“ eftir að þeir
púa á hana. Tileinkar fangelsuðum
eiginmanni sínum eitt lag.
Desember: Fer í göngutúr um götur
Lundúna í brjóstahaldara og galla-
buxum einum fata. Tilnefnd til sex
Grammy-verðlauna. Mamma
hennar skrifar opið bréf og segist
vilja dóttur sína aftur.
Nicole Richie
Júlí: Dæmd til fjögurra daga fang-
elsisvistar fyrir ölvunarakstur. Til-
kynnir í sama mánuði að hún sé
komin fjóra mánuði á leið.
Ágúst: Fer í fangelsi og situr inni í
82 mínútur.
September: Ákveður að hætta að
drekka og fer á námskeið um skað-
semi áfengis.
Nóvember: Gefur allar gjafir
ófædds barns síns til góðgerða-
mála.
Desember: Heldur óvænta veislu
fyrir 100 ungar mæður á heilsu-
gæslustöð í Hollywood og gefur
þeim gjafir fyrir jafngildi 12,5
milljóna króna.
„Við ákváðum að virkja listræna
hlið starfsfólks verslana á Lauga-
veginum í tilefni af því að Lista-
háskólinn er að flytja niður í bæ,“
segir Anna Rakel Róbertsdóttir,
nemandi á fyrsta ári í grafískri
hönnun í Listaháskóla Íslands.
Hún fór ásamt tveimur bekkjar-
systrum sínum, Kötlu Rós Völu-
dóttur og Hildu Björgu Stefáns-
dóttur, búð úr búð á Laugavegi í
þeim tilgangi að fá starfsfólk til
þess að teikna eitthvað úr
umhverfi sínu á stuttum tíma.
„Þetta var skólaverkefni sem
var frjálst að öðru leyti en því að
við áttum á einhvern hátt að gefa
af okkur, sýna verkið utan skólans
og höfðum aðeins tvo daga,“ segir
Anna Rakel. „Við fengum frábær-
ar viðtökur þótt sumir hafi haft
áhyggjur af því að þeir væru ekki
nógu flinkir að teikna. Fólk átti
líka að skrifa eina setningu á
annað blað – einhver hlý skilaboð
sem myndu fá fólk til að brosa.
Svo skönnuðum við þetta inn og
bjuggum til tvö veggspjöld, annað
með setningum og hitt með mynd-
um. Þau voru hengd upp til sýnis í
glugga á Prikinu og allir þeir sem
tóku þátt fengu boðskort. Auk þess
tókum við ferlið upp, klipptum
það til og bjuggum til myndband.
Þess ber að geta að Pixel styrkti
gerð verkefnisins, án þeirra hefð-
um við ekki getað gert þetta.“
Anna Rakel segir að bæði mynd-
irnar og setningarnar hafi verið
afar mismunandi. „Einn teiknaði
jólatré og annar hundinn sinn. Af
setningum má nefna „Pabbi, ég
elska þig“, „Knúsa gamalt fólk“ og
„Faðmlag er góð æfing fyrir
brjóstvöðvana, best að gera nóg af
því“.“ Verkefnið vakti mikla lukku
og nú eru stelpurnar önnum kafn-
ar við að búa til póstkort úr verk-
unum sem þær ætla að selja í betri
verslunum á Laugavegi til styrkt-
ar Mæðrastyrksnefnd. -sók
Listamenn virkjaðir á Laugavegi
SÝNDU Á PRIKINU Þær Hilda Björg,
Anna Rakel og Katla Rós framan við
veggspjaldið á Prikinu.
MIÐBÆJARTEIKNINGAR Teikningar
afgreiðslufólksins á Laugavegi voru bæði
fjölbreyttar og skemmtilegar.
Vandræðakvendi ársins 2007
PA
R
IS H
ILTO
N
NICOLE RICHIE
AMY WINEHOUSEBRITNEY SPEARS
Sendu sms BTC KUV
á númerið 1900
og þú gætir unnið!
Vinningar eru DVD myndir,
varningur tengdur myndinni
og margt fleira!
SMS
LEIKUR
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
1
49
k
r/
sk
ey
tið
.
KOMIN Í VERSLANIR!
LIN
D
SA
Y LO
H
A
N