Fréttablaðið - 13.12.2007, Qupperneq 92
60 13. desember 2007 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Helgi Valur Daníelsson samdi í gær við hið sterka sænska lið
Elfsborg. Samningur Helga Vals við félagið er til þriggja ára.
Fréttablaðið náði tali af Helga í gær þegar hann var nýbúinn
að skrifa undir samninginn í gær eftir að hafa gengist undir
ítarlega læknisskoðun.
„Þetta er mikill léttir. Það er ekki hægt að neita því. Ég er
bara virkilega ánægður með að allt hafi gengið eftir,“ sagði
Helgi Valur en það getur oft reynst æði erfitt fyrir leik-
menn að komast að hjá sterku liði eftir að hafa fallið
niður í kjallarann líkt og Helgi Valur lenti í með Öster,
sem féll fyrst úr úrvalsdeild og síðan úr 1. deildinni.
„Ég var farinn að verða nokkuð órólegur enda ekki
mörg spennandi lið sem voru að sýna mér áhuga
framan af. Svo kom Elfsborg inn í myndina á seinni
stigum og var klárlega mest spennandi liðið sem sýndi
mér áhuga. Ég er því ákaflega kátur að við skyldum
hafa náð saman. Ég lít á þennan samning sem annað
tækifæri fyrir mig sem ég ætla mér að nýta,“ sagði Helgi
Valur, sem er sáttur við samninginn sem hann fékk hjá
liðinu. „Þetta er töluvert betri samningur en ég var með hjá Öster.
Ég er samt engin stórstjarna og fæ því samning í samræmi við
það.“ Helgi Valur settist niður með þjálfara liðsins í gær og var
mjög jákvæður eftir það spjall.
„Það var þjálfarinn sem lagði mikla áherslu á að fá mig til liðsins
en ekki einhverjir stjórnarmenn. Hann sagðist hafa séð marga leiki
með Öster og vissi því hvað hann væri að fá. Það er mjög
öflugt að finna að þjálfarinn hafi trú á manni,“ sagði Helgi
en Elfsborg er eitt af stóru liðunum í Svíþjóð. Það varð
í fjórða sæti á síðustu leiktíð en var meistari árið þar á
undan.
„Að hafa fengið þennan samning sýnir að árin
tvö hjá Öster voru ekki alveg til einskis. Þó að liðinu
hafi gengið skelfilega finnst mér persónulega að ég
hafi tekið miklum framförum og í raun var ég alltaf
sáttur við mína spilamennsku hjá liðinu,“ sagði Helgi
Valur en hann er þriðji Íslendingurinn sem spilar með
Elfsborg. Kristján Jónsson lék með því fyrstur leiktíðina
1996-97 og Haraldur Ingólfsson á árunum 1998-2000.
HELGI VALUR DANÍELSSON: SAMDI VIÐ SÆNSKA ÚRVALSDEILDARFÉLAGIÐ ELFSBORG TIL ÞRIGGJA ÁRA
Lít á þetta sem nýtt tækifæri fyrir mig
HANDBOLTI Dómur aganefndar
HSÍ yfir Aðalsteini Eyjólfssyni
er án fordæma hér á landi og sá
þyngsti sem þjálfari eða leik-
maður hefur hlotið fyrir ummæli
í fjölmiðlum. HSÍ fór þá leið í
fyrsta skipti í gær að birta rök-
stuðning aganefndarinnar. Hann
er svohljóðandi:
„AE tjáði sig mjög um allt sem
við kom leiknum. Ekkert af því
hefur hann viljað draga til baka
þrátt fyrir að hafa fengið tæki-
færi til þess, heldur frekar ítrek-
að fyrri umsagnir.
Vó hann þar mjög að æru dóm-
ara, svo nærri að það gæti varð-
að við íslenska meiðyrðalöggjöf.
Jafnframt vændi hann HSÍ og
dómaranefnd um spillingu. Það
verður að teljast mjög alvarlegt
þegar þjálfari fer slíkum orðum
um handknattleikshreyfinguna.
Líta verður á að þjálfarar jafnt
sem leikmenn liða í efstu deild
eru fyrirmyndir barna og ungl-
inga og bera ábyrgð sem slíkir.
Jafnframt er ljóst að órökstuddar
dylgjur í fjölmiðlum um dómara
og stjórnendur handknattleiks-
hreyfingarinnar skaða hreyfing-
una verulega útávið.
Niðurstaða aganefndar er að
Aðalsteinn Eyjólfsson er úrskurð-
aður í bann til 1. febrúar 2008 og
til greiðslu sektar að upphæð kr.
50.000.“
- hbg
Dómur aganefndar yfir Aðalsteini Eyjólfssyni:
Ummælin gætu varðað
íslenska meiðyrðalöggjöf
HANDBOLTI Aganefnd HSÍ kvað í
gær upp dóm yfir þjálfurum Fram
og Stjörnunnar vegna ummæla
þeirra í kjölfar leiks Fram og
Stjörnunnar í N1-deild kvenna.
Einar Jónsson, þjálfari Fram, var
áminntur og fékk ávítur frá aga-
nefndinni en Aðalsteinn Eyjólfs-
son, þjálfari Stjörnunnar, fékk
mjög þungan dóm; bann til 1.
febrúar á næsta ári sem og 50 þús-
und króna sekt. Aðalsteini var
brugðið þegar Fréttablaðið heyrði
í honum þegar dómurinn lá fyrir.
Hvað með ummæli Viggós og
fleiri?
„Ég er hreinlega orðlaus. Ég átti
alls ekki von á þessu. Þarna er
verið að vega að mínum starfs-
rétti og mínu lífsviðurværi enda
má ég ekki einu sinni stýra ungl-
ingaflokknum sem ég þjálfa. Það
verður athyglisvert að vita hvaða
forsendur eru fyrir þessum dómi
enda hafa menn eins og Viggó Sig-
urðsson og fleiri látið ýmislegt
misjafnt flakka í fjölmiðlum án
þess að fá slíka refsingu.“
Greinilega nóg að segja „sorrí“
„Ég spyr að því hvað var verra við
þessi ummæli en mörg önnur
ummæli?“ sagði Aðalsteinn sem
er heldur ekki sáttur við hversu
vægan dóm kollegi hans Einar
fékk: „Það virðist vera nóg að
segja „sorrí“ og þá eru það ávítur
í stað lengri dóma. Það er greini-
lega í lagi að nota hin ýmsu blóts-
yrði og sparka í dauða hluti.“
Einar dró ummæli sín í garð
dómaranna til baka en Aðalsteinn
gerði það ekki. Hann hefur áður
ítrekað að hann standi við orð sín
um dómgæsluna en hann segist
sjá eftir ákveðnu orðalagi eins og
að hafa kallað þjálfara Fram og
dómarana „drykkjufélaga“.
Aðalsteinn er einnig ósáttur við
vinnubrögð fjölmiðla í þessu máli.
„Ég spyr mig að því hvort fjöl-
miðlar séu að setja mig í bann með
því að klippa út úr mínum viðtöl-
um þannig að viðtölin virki sölu-
vænni á almenning? Ég útskýrði
mín ummæli við flesta fjölmiðla
en það hafa ekki margir birt það,“
sagði Aðalsteinn, sem hefur að
öllum líkindum ekki sagt sitt síð-
asta í málinu.
Ósáttur við vinnubrögð aganefndar
HSÍ
„Ég ætla að skoða málið með
mínum lögfræðingi. Það er að
segja hvaða heimildir séu fyrir
þessu banni. Ég er líka ósáttur við
vinnubrögð aganefndar. Dómur-
inn er dæmdur að mér fjarver-
andi, ég er ekki kallaður fyrir dóm
og fæ ekki að sjá sönnunargögn
gegn mér né bera fyrir mig vörn-
um gagnvart þeim sönnunargögn-
um sem komið hafa fram,“ sagði
Aðalsteinn, sem er á því að málið
hafi skaðað mannorð hans.
Fjölmiðlar sett málið fram á
einsleitan hátt
„Það er ljóst að dómstóll göt-
unnar er búinn að dæma út
frá þeim hlutum er hafa
komið fram. Fjölmiðlar
hafa sett málið fram á
einsleitan hátt og tekið
afstöðu í málinu. Fjöl-
miðlarnir sem hafa
fjallað um
málið hafa
einblínt of mikið á orðin í stað
aðalatriðanna. Ég er mjög
svekktur og sár og maður hlýtur
að spyrja sig að því hvort allur
tíminn og fyrirhöfnin sem maður
setur í handboltann sé þess virði
þegar svona mál koma
upp,“ sagði Aðalsteinn
Eyjólfsson.
henry@frettabladid.is
Mun leita aðstoðar lögfræðings
Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar, fékk í gær þyngsta dóm sem aganefnd HSÍ hefur
veitt þjálfara eða leikmanni fyrir ummæli í fjölmiðlum. Aðalsteinn má hvorki þjálfa meistara- né ungl-
ingaflokk Stjörnunnar til 1. febrúar. Hann segir vegið að starfsrétti sínum og mun tala við lögfræðing.
HANDBOLTI Í kjölfar hasarsins í
kringum kvennaleik Fram og
Stjörnunnar sem fram fór í
Safamýri á dögunum hefur stjórn
HSÍ bókað að þeim tilmælum
verði komið til dómaranefndar
HSÍ að hún verði með eftirlit á
leikjum liðanna í óákveðinn tíma.
Breytingu mátti sjá á þeim
málum á þriðjudag þegar
formaður dómaranefndar, Guðjón
L. Sigurðsson, var mættur í
eftirlit hjá Stjörnunni er liðið lék
gegn Haukum. - hbg
Stjórn HSÍ:
Vill eftirlit hjá
Stjörnunni og
Fram
EINAR JÓNSSON Þjálfari Fram verður
undir eftirliti í næstu leikjum en hann
játaði að hafa gengið of langt með
hegðun sinni í leiknum gegn Stjörnunni.
> Ragna úr leik á Ítalíu
Badmintonkonan Ragna Ingólfsdóttir féll úr keppni á
alþjóðlegu móti á Ítalíu í gær. Ragna byrjaði daginn á því
að leggja eistnesku stúlkuna Kati Tolmoff í tveim lotum,
21-17 og 21-15. Hún mætti síðan hinni ensku Elizabeth
Cann, sem er önnur besta einleikskona Englendinga,
í sextán manna úrslitum og tapaði þá í
tveim lotum, 21-18 og 21-14. Cann er átján
sætum ofar en Ragna á heimslistanum
og því var viðbúið að leikurinn yrði henni
erfiður.
HANDBOLTI Þorsteinn Rafn
Johnsen, formaður handknatt-
leiksdeildar Stjörnunnar, var enn
að kynna sér dóm aganefndar
þegar Fréttablaðið ræddi við
hann í gær en hann sagði þó
eftirfarandi:
„Ég sé ekki annað en aðeins
sum gögn séu skoðuð af aga-
nefndinni og ég skil það ekki
alveg. Hann er í staðinn dæmdur
á viðtölum. Mér finnst fáránlegt
að þjálfari Fram fái aðeins
skammir. Er sem sagt í lagi að
segja og gera hvað sem er og ef
menn biðjast síðan afsökunar er
allt í himnalagi? Eru það skilaboð-
in? Auðvitað er ég ekki sáttur við
ummæli Aðalsteins enda voru þau
yfir strikið. Fyrst háttnefnd
aganefnd ákveður samt að hengja
hann svona þá hefði hún vel mátt
kalla hann fyrir nefndina. Það er
bara verið að drepa hann með
þessu enda grafalvarlegt mál þar
sem handboltinn er hans lifi-
brauð,“ sagði Þorsteinn ákveðinn.
- hbg
Þorsteinn Rafn Johnsen:
Verið að drepa
Aðalstein
ÞORSTEINN RAFN Harðorður út í aga-
nefnd HSÍ og hennar vinnubrögð.
AÐALSTEINN EYJÓLFSSON Er svekktur
og sár yfir þungum dómi aganefndar
yfir sér. Hann var dæmdur í bann til
1. febrúar á næsta ári.
MYND/ALEKSANDAR DJOROVIC