Fréttablaðið - 13.12.2007, Page 94
62 13. desember 2007 FIMMTUDAGUR
FÓTBOLTI Fátt virðist nú koma í veg
fyrir að Ítalinn Fabio Capello verði
næsti þjálfari enska landsliðsins í
knattspyrnu. Hinn 61 árs gamli
Capello státar af frábærum
árangri með öllum þeim liðum
sem hann hefur stýrt en hann
hefur hlotið gagnrýni fyrir að
spila leiðinlegan fótbolta.
Fabio Capello flaug til London í
gær til þess að hefja viðræður við
Brian Barwick stjórnarformann
og Sir Trevor Brooking, yfirmann
knattspyrnumála, hjá enska knatt-
spyrnusambandinu, en Capello
hafði áður lýst yfir miklum áhuga
á starfinu í fjölmiðlum.
„Starf landsliðsþjálfara enska
landsliðsins er stórkostleg áskor-
un,“ sagði Capello, sem hefur náð
frábærum árangri með lið sín.
Capello hefur þó orð á sér fyrir
að vera harður í horn að taka og
frekar strangur. Enn fremur hefur
Capello verið gagnrýndur fyrir að
láta lið sín spila agaðan og fremur
varfærnislegan fótbolta. Ruud
Gullit, núverandi stjóri LA Galaxy,
sem lék undir stjórn
Capello hjá AC
Milan, lýsir
honum sem
mjög
varnar-
sinn-
uðum
knatt-
spyrnu-
stjóra.
„Hann
spilar ekki
upp
á fegurð knattspyrnunnar, svo
mikið er víst. Þú sérð hann heldur
ekki brosa mikið og þú vilt ekki fá
hann upp á móti þér. Hann veit
nákvæmlega hvað hann vill hverju
sinni og ef þú gefur eitthvert
merki um að þú viljir ekki spila
fyrir hann, þá ertu út úr myndinni
eins og skot,“ segir Gullit, sem
telur að ef Capello verði ráðinn
muni hann leggja mikla áherslu á
vörn liðsins.
„Capello er eins og flestir
ítalskir þjálfarar og vill fyrst og
fremst að vörnin sé sterk og
liðið geti varið heiður sinn.
Þegar menn eru góðir í þeirri
vinnu verður mjög erfitt að sigra
þá og oft vinna þeir leiki án þess
að lið þeirra sé að spila sérstak-
lega vel. Árangur hans er hins
vegar öllum ljós.“ - óþ
Allt bendir til þess að Fabio Capello verði ráðinn nýr þjálfari enska landsliðsins:
Spilar árangursríkan fótbolta
SIGURVEGARI
Fabio Capello.
NORDICPHOTOS/GETTY
ÞJÁLFARAFERILL CAPELLO:
1991-1996: Vinnur fjóra deildartitla
á fimm árum með AC Milan. Vinnur
einnig Meistaradeildina og Super-bik-
arinn með liðinu.
1996-1997: Vinnur deildartitil með
Real Madrid árið 1997.
1998: Tekur við AC Milan en er rekinn
eftir tímabilið.
1999-2004: Vinnur deildartitil með
Roma árið 2001.
2004-2006: Vinnur tvo deildartitla
með Juventus sem eru síðar dæmdir
af liðinu í dómarahneykslinu fræga.
2006-2007: Vinnur deildartitil með
Real Madrid árið 2007 og er síðar
rekinn.
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
1
49
k
r/
sk
ey
tið
.
SMS
LEIKUR
SENDU SMS BTC BOF
Á NÚMERIÐ 1900
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
VINNINGAR ERU DVD MYNDIR,
VARNINGUR TENGDUR MYNDINNI
OG MARGT FLEIRA!
KEMUR Í VERSLANIR
13. DESEMBER
ÍÞRÓTTIR FATLAÐRA Íþróttasamband
fatlaðra tilkynnti í gær val á
íþróttamanni og íþróttakonu árs-
ins úr röðum fatlaðra. Enn fremur
var svokallaður Guðrúnarbikar
afhentur.
Jóhann Rúnar Kristjánsson,
borðtennismaður úr íþróttafélag-
inu Nesi í Reykjanesbæ, var val-
inn íþróttamaður ársins 2007.
Jóhann Rúnar hefur æft borð-
tennis í um tíu ár og er sem stend-
ur í 14. sæti á styrkleikalista
alþjóðaborðtennisnefndar fatl-
aðra í sínum fötlunarflokki og
stendur í mikilli baráttu að halda
velli þar.
Jóhann stefnir á Ólympíumót
„Þessi verðlaun, íþróttamaður
ársins, eru bæði mikill heiður og
einnig góð hvatning fyrir mig í
baráttunni við að vinna mér
keppnisrétt á Ólympíumótinu
2008. En næsti liður í baráttunni
er mót á milli jóla og nýárs í Chi-
cago í Bandaríkjunum og eftir
það mót fer að skýrast hvernig
styrkleikalistinn mun líta út fyrir
mótið og líklega þarf ég að hækka
mig um eitt sæti þar til þess að
verða öruggur,“ segir Jóhann
Rúnar, sem er þakklátur bæði
fjölskyldu og vinnuveitanda fyrir
að hafa staðið við bakið á sér.
„Lykillinn að árangri er náttúr-
lega að leggja hart að sér og vera
með gott fólk í kringum sig og ég
gæti vitanlega ekki staðið í þessu
nema vera með góða fjölskyldu á
bak við mig, auk skilningsríks
vinnuveitanda,“ segir Jóhann
Rúnar og hlær, en hann hefur
unnið hjá Verkalýðs- og sjó-
mannafélagi Keflavíkur í átta ár.
Karen Björg Gísladóttir, sund-
kona úr sundfélaginu Firði í Hafn-
arfirði, var valin íþróttakona árs-
ins 2007. Karen Björg hefur æft
sund undanfarin 6-7 ár og hefur
tekið miklum framförum og þykir
einstaklega efnileg. Karen Björg
fór á kostum á Norðurlandamóti
fatlaðra sem haldið var hér á
landi í lok október og vann þar
fimm gullverðlaun í öllum þeim
greinum sem hún tók þátt í. Þrátt
fyrir mikla fjölhæfni kveðst
Karen Björg þó best kunna við
skriðsundið.
Karen sátt með árangurinn
„Mér finnst skemmtilegast að
synda skriðsund og gildir þá einu
hvort um 50 eða 100 metra sund
sé að ræða. Ég hef verið að æfa
vel undanfarið og er í mjög góðu
formi. Mér gekk rosalega vel á
Norðurlandamótinu um daginn og
ætla bara að halda áfram að standa
mig vel. Það var mjög skemmti-
legt að hafa fengið þessi verðlaun
og þau hvetja mig áfram,“ segir
Karen Björg ánægð.
Jón Oddur Halldórsson sprett-
hlaupari og Kristín Rós Hákonar-
dóttir sundkona voru sérstaklega
heiðruð í gær og verðlaunuð með
eignarbikar fyrir framúrskar-
andi árangur þeirra á síðasta ári,
þegar þau voru valin íþróttafólk
ársins úr röðum fatlaðra.
Þar að auki hlaut Margrét
Kristjánsdóttir, íþróttafélaginu
Ösp, Guðrúnarbikarinn fyrir frá-
bært starf í þágu fatlaðs íþrótta-
fólks. Bikarinn er gefinn af Öss-
uri Aðalsteinssyni, til minningar
um eiginkonu hans, Guðrúnu
Pálsdóttur, og var veittur í sjö-
unda sinn í gær. omar@frettabladid.is
Jóhann og Karen sköruðu fram úr
Jóhann Rúnar Kristjánsson og Karen Björg Gísladóttir voru valin íþróttamenn ársins úr röðum fatlaðra,
en verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í gær. Einnig voru Jón Oddur og Kristín Rós heiðruð fyrir að
hafa verið valin íþróttamenn ársins í fyrra. Margrét Kristjánsdóttir hlaut Guðrúnarbikarinn í þetta sinn.
GUÐRÚNARBIKARINN Margrét Kristjáns-
dóttir hjá Ösp hlaut verðlaun fyrir gott
starf í þágu fatlaðra. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
ÍÞRÓTTAFÓLK ÁRSINS Jóhann Rúnar Kristjánsson borðtennismaður og Karen Björg
Gísladóttir sundkona voru valin íþróttamaður og -kona ársins 2007 úr röðum fatlaðra
við hátíðlega athöfn Íþróttasambands fatlaðra í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
SKÍÐI Björgvin Björgvinsson
endaði í 28. sæti í svigi í Evrópu-
bikarnum í Obereggen á Ítalíu í
gær.
Björgvin fann sig ekki í fyrri
ferðinni en náði tólfta besta
tímanum í seinni ferðinni en hann
kom rúmum þremur sekúndum á
eftir Svíanum Andre Myhrer sem
vann keppnina.
Björgvin náði ekki að klára í
svigkeppninni í Bad Kleinkirch-
heim um helgina en næsta mót
hjá Björgvini verður í svigi í
Heimsbikarnum á sunnudag. - óój
Björgvin Björgvinsson:
Tólfti besti tím-
inn í seinni ferð
ENDAÐI VEL Björgvin Björgvinsson var
að keppa á Ítalíu í gær.
FÓTBOLTI Varnarmaðurinn
Kristján Valdimarsson hefur
skrifað undir nýjan þriggja ára
samning við Fylki.
Kristján er uppalinn Fylkis-
maður en lék með Grindavík
sumarið 2006. Hann snrri svo
aftur á heimaslóðir fyrir síðasta
sumar þar sem hann blómstraði í
stöðu miðvarðar og var einn
albesti leikmaður Fylkis.
Það var því mikið kappsmál
fyrir Fylki að tryggja sér
þjónustu varnarmannsins áfram
sem félagið hefur nú gert. - hbg
Kristján Valdimarsson:
Framlengir við
Fylki
KRISTJÁN VALDIMARSSON Áfram í
Árbænum.