Fréttablaðið - 08.01.2008, Blaðsíða 40
24 8. janúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
10
16
7
10
16
16
7
THE NANNY DIARIES kl. 8 - 10
THE GOLDEN COMPASS kl. 8 - 10.10
ALVIN & ÍKORNARNIR kl. 6 ÍSL. TAL
DUGGHOLUFÓLKIÐ kl. 6
10
7
12
10
16
ÍM NOT THERE kl.6 - 9 ótextuð
THE GOLDEN COMPASS kl.5.30 - 8 - 10.30
WE OWN THE NIGHT kl.5.30 - 8 - 10.30
RUN FAT BOY RUN kl. 8 - 10.10
DAN IN REAL LIFE kl.5.45
THE NANNY DIARIES kl. 5.40 - 8 - 10.20
THE GOLDEN COMPASS kl. 5.30 - 8 - 10.30
THE GOLDEN COMPASS LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30
ALVIN & ÍKORNARNIR kl. 4 - 6 ÍSLENSKT TAL
ALVIN & ÍKORNARNIR kl. 8 - 10 ENSKT TAL
HITMAN kl. 8 - 10.10
DUGGHOLUFÓLKIÐ kl. 4 - 6
THE NANNY DIARIES kl. 5.40 - 8 - 10.20
THE GOLDEN COMPASS kl. 5.30 - 8 - 10.30
I AM LEGEND kl. 5.40 - 8 - 10.20
WE OWN THE NIGHT kl. 8 - 10.30
DUGGHOLUFÓLKIÐ kl. 6
5%
5%
5%
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR BÍÓMIÐANN
MEÐ KREDITKORTI TENGDU AUKAKRÓNUM!
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
Stórskemmtileg gamanmynd um
fóstru hjá ríka liðinu í New York.
En ekki er allt sem sýnist!
Dagbók fóstrunnar
Vinsælasta myndin
á Íslandi í dag!
Beint á
toppinn
í USA.
TÖFRAPRINSESSAN
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
RVE - fbl
mögnuð spennumynd
ÁLFABAKKA
KEFLAVÍK
KRINGLUNNI
AKUREYRI
SELFOSS
NAT. TREASURE 2 kl. 5:30 - 8D - 10:40D 12
NAT. TREASURE 2 kl. 8 - 10:40 VIP
I AM LEGEND kl. 5:30 - 8 - 8:20 - 10:30 - 10:40 14
I AM LEGEND kl. 5:30 VIP
TÖFRAPRINSESSAN ÍSL TAL kl. 5:30D L
ENCHANTED M/- ENSK TAL kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 L
BÝFLUGUMYNDIN M/- ÍSL TAL kl. 5:30 L
SIDNEY WHITE kl. 8 L
AMERICAN GANGSTER kl. 10:40 16
DIGITAL
DIGITAL
NAT. TREASURE 2 kl. 8D - 10:40D 12
I AM LEGEND kl. 8D - 10:10D 14
TÖFRAPRINSESSAN ÍSL TAL kl. 5:50D L
ENCHANTED M/- ENSK TAL kl. 5:50 - 8 L
FRED CLAUSE kl. 10:10 L
BEOWULF Síðustu sýningar kl. 5:50(3D) 12
NAT. TREASURE 2 kl. 8 - 10:30 12
I AM LEGEND kl. 8 - 10 14
NATIONAL TREASURE 2 kl. 8 - 10:30 12
THE GOLDEN COMPASS kl. 8 10
SAW IV kl. 10:20 16
NATIONAL TREASURE 2 kl. 6 - 8 - 10 12
TÖFRAPRINSESSAN ÍSL TAL kl. 6 L
I AM LEGEND kl. 8 - 10 14
REYKJAVÍK AKUREYRI KEFLAVÍK SELFOSS
STÆRSTA ÆVINTÝRI VETRARINS
ER UM ÞAÐ BIL AÐ HEFJAST.
VINSÆLASTA MYNDIN Í BANDARÍKJUNUM Í DAG.
- bara lúxus
Sími: 553 2075
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
NATIONAL TREASURE 2 kl. 5, 8 og 10.30 12
THE GOLDEN COMPASS kl. 5, 8 og 10.15 10
RUN FATBOY RUN kl. 8 og 10 L
ALVIN OG ÍKORNARNIR - ÍSL TAL kl. 6 L
Viðskiptavinir, sem greiða
með korti frá SPRON, fá
20% afslátt
af miðaverði á myndina
„Við erum bara í pásu, höfum
hvorki spilað né æft síðan 21. júní
þegar við spiluðum á Seyðisfirði,“
segir Þorvaldur H. Gröndal,
trommari í Trabant. Trabant hefur
verið með vinsælli hljómsveitum
landsins, en strákarnir létu síðast
heyra frá sér á plötu árið 2005
þegar Emotional kom út og sló í
gegn. Trabant var nokkuð á veg
komin í meikharki í Englandi,
lagið The One kom m.a. út hjá
fyrirtæki Fatboy Slim, en Þorvald-
ur segir öll þau mál í biðstöðu.
„Er þetta ekki bara það sem
gerist hjá öllum hljómsveitum á
Íslandi,“ spyr hann. „Þær fara í
pásu, en hætta aldrei. Kannski
verðum við eins og Sálin, birtumst
annað slagið með Sinfó eða Gospel-
kórnum. Nei, ég er að grínast.“
Meðlimir Trabant hafa nóg að
gera þótt hljómsveitin sé í pásu.
Viðar og Gísli Galdur hafa spilað
með The Motion Boys upp á síð-
kastið, Hlynur sinnir klassíkinni,
Ragnar Kjartansson er á kafi í
myndlistinni og verður sem kunn-
ugt er fulltrúi Íslands á Feneyja-
tvíæringnum árið 2009 og Þor-
valdur vinnur hjá deCode.
„Það hefur ekkert verið ákveðið
með framhaldið,“ segir Þorvaldur,
„en við höfum verið að hringjast á
og þreifa hver á öðrum. Það þýðir
ekkert að hjakka endalaust bara
til að hjakka og því má segja að
við séum einfaldlega að bíða eftir
greddunni. Við erum í þægilegri
stöðu, það er engin pressa á okkur,
engir bransakarlar að anda niður
hálsmálið á okkur. Við komum
bara aftur þegar við erum
tilbúnir.“
Trabant bíður eftir greddunni
ALVEG ÓÞARFI AÐ HJAKKA Trabant
kemur bara aftur þegar henni sýnist.
Íslenski tónlistarmaður-
inn Teddy Owolabi fékk
á dögunum African Best-
verðlaunin sem voru afhent
í London við hátíðlega at-
höfn. Tók hann einnig lagið
fyrir Nelson Mandela, Ken
Livingstone, borgarstjóra
London, og fleiri fyrir-
menni.
„Það kom mér mjög á óvart að
vera valinn því ég vissi ekki að
fólk væri mikið að fylgjast með
mér úti í heimi. Ísland er heldur
ekki mjög þekkt land en kannski
er Myspace-síðan mín bara að
virka svona vel,“ segir Teddy, sem
flutti til Íslands frá Nígeríu fyrir
tíu árum.
Leggur hart að sér
Hann segir mikinn heiður að fá
þessi verðlaun, sem hafa undan-
farin ár verið afhent því fólki af
afrískum uppruna sem þykir hafa
skarað fram úr á hinum ýmsu
sviðum mannlífsins. Hafa þau
stundum verið nefnd hin afrísku
MTV-verðlaun. „Þetta er mikil
hvatning fyrir mig sem tónlistar-
mann. Ég hef lagt mjög hart að
mér við að skapa mér nafn í tón-
listinni. Það komu stundir þar sem
ég var alveg við það að gefast upp
en núna er ég búinn að læra að
maður verður að leggja mjög hart
að sér ef maður ætlar að ná langt í
þessum bransa.“
Taugastrekkjandi
Að sögn Teddy var undarlegt að
syngja fyrir framan Mandela og
hin fyrirmennin í London. „Ég
bjóst aldrei við að ég myndi nokk-
urn tímann syngja fyrir framan
svona fólk. Ég hélt að þessir tón-
leikar yrðu smáir í sniðum en þeir
voru í raun þeir stærstu sem ég
hef tekið þátt í. Þetta kom mér
mjög á óvart og var líka dálítið
taugastrekkjandi. En þetta gekk
vel og þeir eru búnir að hringja í
mig og vilja fá mig til að syngja
aftur á næsta ári.“
Sólóplata á leiðinni
Teddy er þessa dagana að vinna að
sinni fyrstu sólóplötu sem kemur
út með vorinu hjá eigin útgáfu-
fyrirtæki. Á meðal samstarfs-
manna hans eru bræðurnir Daði
og Börkur Birgissynir sem áður
voru í Jagúar og Valdimar Kol-
beinn Sigurjónsson, bassaleikari
Hjálma.
Til að kynna plötuna fór Teddy í
tónleikaferð um heiminn síðasta
sumar sem gekk vonum framar.
Spilaði hann í Nígeríu, Suður-
Afríku, Bandaríkjunum, Bretlandi
og á Spáni. „Þú þarft að vinna þig
á toppinn. Það er alltaf einhver
annar þar sem þú vilt vera og þess
vegna verður maður að standa
sig,“ segir Teddy, sem er einnig að
vinna að heimildarmynd um
íslenskt tónlistarlíf.
Nánari upplýsingar um kapp-
ann má finna á www.myspace.
com/djskinnyt. freyr@frettabladid.is
Söng fyrir Nelson Mandela
TEDDY OWOLABI Teddy með African Best-verðlaunin sem hann fékk í London.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Þó að Björk hafi á árinu 1996 verið
á hátindi frægðarinnar var það
engu að síður erfitt ár fyrir hana.
Tvö atvik komust í heimspress-
una; þegar Björk danglaði í blaða-
mann eftir langt ferðalag til Taí-
lands og þegar geðveikur aðdáandi
fargaði sér eftir að hafa sent henni
sýrusprengju.
Geðveiki aðdáandinn var 24 ára
Flórídabúi, Ricardo Lopez. Nú eru
vídeódagbækur hans til sölu á
eBay og er fyrsta boð 99,99 dalir.
Alls eru þetta átján tímar á tíu
diskum af Ricardo að blaðra og
þrugla um Björk. Hann virðist
hafa fengið hana fyrst á heilann
þegar hún byrjaði að vera með tón-
listarmanninum Goldie. Það að
Björk væri með blökkumanni var
of mikið fyrir veikt geð Ricardos.
Dagbækurnar eru frá níu mán-
aða tímabili og enda með því að
Ricardo beinir skammbyssu að
höfði sínu og hleypir af. Þá heldur
hann að sýrusprengjan sem hann
er búinn að póstleggja muni granda
Björk. Svo fór auðvitað ekki og
fyrir kaldhæðni örlaganna var
Björk stödd skammt frá heimili
Ricardos þegar hann batt enda á
líf sitt. Þar að auki var hún löngu
hætt með Goldie.
Seljandi videódagbókanna,
Smooth331 í Flórída, tekur fram að
myndefnið sé ekki fyrir viðkvæma
enda áhrifamikill vitnisburður um
þráhyggju, einangrun og geðveiki.
Kæri sig einhver um að sjá styttri
útgáfuna má benda á að danski
leikstjórinn Sami Saif notaði dag-
bækurnar sem aðaluppistöðuna í
70 mínútna langa heimildarmynd,
The Video Diary of Ricardo Lopez,
sem kom út 1999.
Bjarkar-geðsjúklingur á eBay
VIDEÓDAGBÆKURNAR TIL SÖLU Á EBAY
Ricardo var með Björk á heilanum. BRUGÐIÐ VIÐ FRÉTTIRNAR Björk hefur
aldrei viljað tala um málið en sendi
foreldrum Ricardos blóm í jarðarför
sonarins.