Fréttablaðið - 08.01.2008, Blaðsíða 17
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Heiður Anna Helgadóttir byrjaði að æfa
karate fyrir sex árum og kennir nú á byrjenda-
n ámskeiðum hjá Þórshamri.
„Þetta er mjög góð líkamsrækt sem æfir bæði þol og
styrk og einbeitingu og maður lærir líka aga,“ segir
Heiður Anna en hún æfir og kennir karate hjá Þórs-
hamri ásamt því að stunda nám í Menntaskólanum
við Hamrahlíð. „Ég hef verið að æfa frá því 2002 og
er komin með annað brúna beltið af þremur,“ útskýr-
ir hún. „Ég byrjaði að kenna í fyrrahaust og nú er ég
að fara að kenna börnum og unglingum á byrjenda-
námskeiðum en námskeiðin eru að fara af stað núna
eftir áramótin.“
Heiður Anna útskýrir að karate byggist upp á
tveimur þáttum, kihon eða grunnæfingum þar sem
gerðar eru æfingar út í loftið og svo kumite þar sem
tveir andstæðingar berjast. „Þetta er kennt saman og
maður þarf að ná tökum á hvoru tveggja. Kata er
síðan flétta af mörgum grunnæfingum sem settar
eru saman, t.d. vörn og árás og svo verða flétturnar
alltaf erfiðari og flóknari eftir því sem maður kemst
lengra. Það er keppt í kata og kumite en ekki í grunn-
æfingunum,“ útskýrir Heiður og segir að hjá Þórs-
hamri sé mælt með að fólk keppi á mótum. „Það eru
haldin nokkur mót á önn og mælt með því að fólk
keppi á sem flestum mótum, ekkert endilega til að
vinna heldur bara til að æfa sig í að koma fram fyrir
fólk og losa um stressið. Ég stefni t.d. á að að fara út
í mars að keppa og er byrjuð að æfa fyrir það, við
erum nokkrar stelpur sem ætlum að fara á opið mót í
Svíþjóð,“ segir hún.
Heiður hefur stundað íþróttir frá unga aldri og
hefur fundið sig í karate. „Ég hef alltaf æft eitthvað
og byrjaði í fimleikum þegar ég var lítil og æfði í þó
nokkur ár. Svo fór ég að æfa skauta og eftir það sund.
Loks fór ég í karate með vinkonu minni og mér finnst
það langskemmtilegast. Ég mæli með þessu fyrir alla
og þetta er ekki dýr líkamsrækt. Þarna er fólk á öllum
aldri, krakkar alveg frá sex ára og fólk upp fimm-
tugt, að byrja að æfa karate og það er ekkert mál,“
segir Heiður að lokum. heida@frettabladid.is
Krakkar frá sex og fólk
upp í fimmtugt í karate
Heiður Anna Helgadóttir kennir börnum og unglingum karate. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SIPPAÐ AF KRAFTI
Valdís Silja Sigurþórsdóttir
einkaþjálfari hefur innleitt
til landsins líkamsrækt sem
kallast Jump Fit. Þessi ný-
stárlega sipptækni hefur
notið mikilla vinsælda í
Bandaríkjunum.
HEILSA 2
KÍNVERSKUNÁMSKEIÐ
Magnús Björnsson kennir
Íslendingum kínversku hjá
Mími-símenntun og fræðir þá
einnig um gersemar Peking-
borgar þar sem Ólympíuleik-
arnir verða haldnir í sumar.
NÁM 4
Laugavegi 51 • s: 552 2201
STAF
GANG
A
ÁHRIF
ARÍK
LEIÐ
TIL LÍ
KAMS
RÆKT
AR
Stafgöngunámskeið hefjast 15. janúar n.k.
stafgönguþjálfi, 616 85 95.
stafgönguþjálfi, 694 35 71.
Þriðjudaga & fimmtudaga, kl. 17:30.
Þriðjudaga & fimmtudaga, kl. 17:30.
SKRÁNING & NÁNARI UPPLÝSINGAR Á:
„...fyrst á visir.is“
...ég sá það á visir.is