Fréttablaðið - 08.01.2008, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 08.01.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Karenar D. Kjartansdóttur Stúlka sem ég þekki leigði eitt sinn íbúð í litlu fjölbýlishúsi. Framan af átti hún ánægjuleg sam- skipti við aðra íbúa hússins, þá sér- staklega gömlu konuna sem bjó í risinu ásamt uppkomnum syni sínum, sem sagt var að ekki væri með öllum mjalla. Eftir að gamla konan féll frá var vinkona mín þó ekki eins sátt með íbúasamsetning- una því eftir að rólegt hjal hennar við mann og annan í stigaganginum þagnaði byrjaði hópur skuggalegs fólks að vafra um húsið. Eins og gjarnt er með skuggaverur vöktu þær helst á næturnar og einhverra hluta vegna hurfu síur af vöskum í sameiginlega þvottahúsinu og stöku þvottur eftir að þær byrjuðu að líða um húsið. Fólkinu fylgdi einnig kynleg reykjarlykt sem fór í taug- arnar á hinum. KUNNINGJAKONA mín kallaði þessar ágætu verur dópista og róna. Það þóttu mér ljót heiti yfir jafn skondin fyrirbæri. Ég reyndi að útskýra fyrir henni að hún misskildi skemmtilegheit tilverunnar ger- samlega. Það væri deginum ljósara að þetta fólk væri af kyni álfa, lík- lega væri það búálfar. Flest af því gegndi jú nöfnum sem ekki væru skráð í þjóðskrá, til þess bærist aldrei hefðbundinn póstur, það hefði ólæti um nætur og léti smáhluti hverfa. Af takmarkaðri þekkingu minni á frásögnum af samskiptum íbúa Bretlandseyja og búálfa sagði ég henni að besta ráðið væri að gefa þeim eitthvað að éta. RÁÐLEGGING mín gekk eftir. Skömmu seinna hvarf bjórkippa sem stúlkan hafði geymt fyrir utan útidyrnar hjá sér til kælis. Um það bil viku síðar barði tötrum klæddur maður upp á hjá henni og viður- kenndi að hafa tekið kippuna. Vildi hann launa greiðann og bauðst til að gera við þvottavélina hjá henni í staðinn; hann hefði heyrt í henni undarleg hljóð sem hann gæti kippt í liðinn, fengi hann lánuð til þess verkfæri. NÝLEG könnun á vegum félags- vísindadeildar Háskóla Íslands sýnir að trú á huldufólk lifir enn góðu lífi á Íslandi. Ég er stolt af því að íslenska þjóðin hafni ekki til- veru ósýnilegs veruleika. Oft finnst mér þó heldur klént að það haldi að hulduverurnar hafi ekki tekið nein- um stakkaskiptum með okkur á leið inn í nútímann. Eru ekki allar líkur á því að huldufólk hafi flutt út úr hólum á sama tíma og forforeldrar okkar fluttu úr torfbæjum og í venjuleg hús. Í stað þess að búa á annarri hæð, eins og til dæmis ég, ætti það að búa á þriðju og hálfu hæðinni eða öðrum ógreinilegum kima. Nú eða í einhverju hús númeri sem pósturinn hefði ekki á skrá. Bara rétt hjá okkur en aðeins fyrir utan viðurkenndan veruleika hins opinbera. Ógæfuálfarnir Í dag er þriðjudagurinn 8. janúar, 8. dagur ársins. 11.10 13.34 15.58 11:20 13.19 15.18 KIA • Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5700 • www.kia. is Nú með vetrardekkjum og dráttarbeisli FULLBÚINN ALVÖRUJEPPI 3.645.000 kr. KIA umboðið á Ís landi er í e igu HEKLU Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi • 5 þrepa sjálfskipting • Hátt og lágt drif • ESP-stöðugleikastýring • Ný og glæsileg innrétting • 16" álfelgur • Vindskeið og þokuljós • Öflug 170 hestafla dísilvél • Hraðastillir (Cruise Control) • Þakbogar • 3.500 kg dráttargeta Fullbúinn alvörujeppi með ríkulegum staðalbúnaði KIA Sorento Sorento hefur slegið í gegn um allan heim og eignast dygga fylgismenn á Íslandi. Það er ekki að ástæðulausu að Sorento er orðinn einn vinsælasti jeppi landsins, enda líklega bestu jeppakaupin í dag. Vetrardekk og dráttarbeisl fylgja með.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.