Fréttablaðið - 08.01.2008, Blaðsíða 43
ÞRIÐJUDAGUR 8. janúar 2008 27
FÓTBOLTI Það voru enn fjórtán úrvalsdeild-
arlið í pottinum þegar dregið var í fjórðu
umferð, 32 liða úrslit, FA-bikarsins í gær-
dag en leikirnir fara fram helgina 26.-27.
janúar.
Núverandi FA-bikarmeistarar í Chelsea
drógust gegn Wigan og ferðast á JJB leik-
vanginn og þá verður pottþétt annar slag-
ur úrvalsdeildarliða á Old Trafford þar
sem Englandsmeistarar Manchester
United mæta annaðhvort Tottenham
eða Read ing. Arsenal fær annaðhvort
Newcastle eða Stoke í heimsókn á
Emirates leikvanginn og Hermann
Hreiðarsson og félagar í Port-
smouth leika gegn Plymouth á
Fratton Park.
Sex fallin úr keppni
Sex úrvalsdeildarlið eru þegar
fallin úr keppni og önnur átta úrvals-
deildarlið þurfa að spila að nýju 15.-16. janúar
eftir að hafa gert jafntefli í leikjum sínum í
þriðju umferð keppninnar. Liverpool er eitt
þeirra liða og nái liðið að hafa betur gegn
Luton þá kemur annaðhvort Swansea eða
utandeildarliðið Havant & Waterlooville í
heimsókn á Anfield.
Manchester City og West Ham þurfa að
mætast aftur til þess að skera úr hvort
liðið fer í fjórðu umferð og mætir þá
Sheffield United á Bramall Lane.
Fulham og Derby þurfa einnig að
mæta mótherjum sínum úr þriðju
umferð, Bristol Rovers og Sheffield Wednesday, á
nýjan leik til þess að komast í fjórðu umferð. Þar
gæti Fulham mætt annaðhvort Swindon eða Barnet
og Derby mætir Preston á heimavelli sínum Pride
Park ef Paul Jewell nær að bera sigurorð af sínu
gamla félagi.
Það er vel við hæfi að „risabanarnir“
Oldham og Huddersfield, sem slógu út
Everton og Birmingham í þriðju umferð
keppninnar, mætast á Boundary Park.
Andy Ritchie, núverandi knattspyrnu-
stjóri Huddersfield, snýr þar með
aftur á sinn gamla heimavöll en hann
stýrði Oldham á árunum 1998-2001.
Þá heimsækir Middlesbrough lið
Mansfield sem er í fallsæti í D-deild
á Englandi.
Fjögur lið á síðustu 12 árum
Aðeins fjögur lið hafa skipst
á að vinna FA-bikarinn á
undanförnum tólf árum og
eru það „stóru fjögur“
liðin; Arsenal, Chelsea,
Liverpool og Manchester
United.
Manchester United hefur
enn fremur unnið FA
bikarinn oftast allra liða,
eða ellefu sinnum, en
Arsenal fylgir þar fast á
eftir með tíu FA bikar-
titla. - óþ
Dregið var í fjórðu umferð FA-bikarsins á Englandi í gær:
Fer utandeildarliðið á Anfield?
FER HANN Á OLD TRAFFORD?
Ívar Ingimarsson og félagar í
Reading þurfa að vinna Totten-
ham á Madejski-leikvanginum
til þess að mæta Manchester
United.
NORDIC PHOTOS/GETTY
B&L
9
DAGAR
Í EM
Í HANDBOLTA
FÓTBOLTI Didier Drogba, fram-
herji Chelsea, hefur nú enn og
aftur ítrekað vilja sinn í fjölmiðl-
um til að yfirgefa Lundúnaliðið.
„Þessi orðrómur um að ég ætli
að fara frá Chelsea er kominn frá
mér sjálfum og ég er óhræddur
við að segja það sem mér býr í
brjósti. Það versta er hins vegar
að ég er búinn að vera að segjast
ætla að fara í 2-3 ár en það gerist
ekki neitt. Þegar José Mourinho
hætti sem knattspyrnustjóri jókst
vilji minn til þess að fara til
mikilla muna,“ sagði Drogba í
viðtali við Eurosport en hann
hefur þegar verið orðaður við
mörg félög. - óþ
Didier Drogba, Chelsea:
Ég ætla mér að
yfirgefa Chelsea
VILL FARA Drogba hefur enn og aftur
ítrekað vilja sinn í fjölmiðlum að yfirgefa
Chelsea. NORDIC PHOTOS/GETTY
HANDBOLTI Gunnar Pettersen,
þjálfari norska handboltalands-
liðsins, var himinlifandi með
sigur sinna manna á æfinga-
mótinu um helgina.
Norðmenn tryggðu sér sigurinn
með því að vinna sannfærandi 30-
23 sigur á Pólverjum en höfðu
áður gert 28-28 jafntefli við
Ísland og unnið öruggan sigur á
Dönum.
„Við vorum í heimsklassa á
stórum köflum í þessum leik og
höfum aldrei spilað betur,“ sagði
Pettersen eftir mótið. Norðmenn
mæta Dönum í fyrsta leik á
mótinu en þeir eru einnig með
Rússum og Svartfellingum í riðli.
- óój
Þjálfari Norðmanna:
Höfum aldrei
spilað betur
KÁTUR Gunnar Pettersen var ánægður
með spilamennskuna á æfingamótinu.
NORDICPHOTOS/GETTY
HANDBOLTI Það dugði ekki Michael
Bruun að verja 14 skot gegn
Íslandi á sunnudaginn því hann
fær ekki að fara með Dönum á
HM. Danski landsliðsþjálfarinn
Ulrik Wilbek ákvað að velja
frekar Peter Henriksen þrátt
fyrir að hann hafi ekki fundið sig
í leiknum gegn Íslandi og aðeins
varið 2 af 8 skotum. Henriksen
leikur með Snorra Steini Guðjóns-
syni og Ásgeiri Erni Hallgríms-
syni hjá GOG Svendborg.
„Ég er ánægður en jafnframt
mjög þreyttur. Þetta er búinn að
verja langur óvissutími, það var
erfitt að berjast um sætið og því
mikill léttir að fá að fara með,“
sagði Henriksen. Bruun hefur oft
reynst Íslendingum erfiður og
varði meðal annars 24 skot þegar
Ísland tapaði fyrir Dönum í
leiknum um bronsið á EM 2002.
Aðalmarkvörður Dana á mótinu
er hins vegar Kasper Hvidt. - óój
Danski landsliðsþjálfarinn:
Valdi frekar
Henriksen
HANDBOLTI Slóvakar, mótherjar
Íslendinga í öðrum leik þeirra á
EM í Noregi, urðu í þriðja sæti á
Challenge Marrane-mótinu í
Frakklandi.
Slóvakar unnu Katar (31-25) og
töpuðu fyrir Túnis (22-31) í
riðlakeppninni en unnu svo Tékka
38-32 í leiknum um þriðja sætið.
Tékkar léku þó án sterkra manna
eins og Martins Galia, Karels
Nocar, Jans Sobol, Davids
Juricek, Filips Jicha og Jans
Filip. Túnis vann mótið eftir 32-26
sigur á franska liðinu Ivry í
úrslitaleik.
Tékkar eru á leiðinni til Íslands
til þess að spila tvo æfingaleiki
um næstu helgi en Slóvakar mæta
hins vegar Slóvenum í tveimur
leikjum í Bratislava. - óój
Slóvakar eru með okkur í riðli:
Urðu í 3. sæti
í Frakklandi