Fréttablaðið - 20.01.2008, Qupperneq 56
ATVINNA
20. janúar 2008 SUNNUDAGUR36
Vinnueftirlitið hefur upp-
lýsingar um að persónuhlíf-
ar sem ekki eru CE-merkt-
ar séu á markaðnum og í
notkun á vinnustöðum.
Með orðinu persónuhlíf
er átt við hvers konar
búnað eða tæki sem
einstaklingar klæð-
ast eða halda á, sér
til verndar við
vinnu, til dæmis
endurskins- og
hlífðarfatnað,
öryggishjálma,
heyrnarhlíf-
ar, öryggisskó,
hlífðarhanska,
fallvarnarbúnað
og öndunarfæra-
hlífar.
Óheimilt er að
setja á markað og
taka í notkun per-
sónuhlífar sem
ekki eru CE-merkt-
ar. Mikilvægt er
að hafa í huga að
ekki er hægt að treysta því
að persónuhlíf sem ekki er
CE-merkt uppfylli þær lág-
markskröfur um gæði og
öryggi sem til hennar eru
gerðar í reglum um gerð
persónuhlífa.
Á vefsíðunni
www.vinnueftirlit.is
má fá upplýsingar
um persónuhlífar.
Þrátt fyrir að á Íslandi
verði maður ekki var
við að stjörnufræðing-
ar séu margir þá hafa
þúsundir vísindamanna
um heim allan stjörnu-
fræðina að lifibrauði.
Hér á landi er hægt
að velja námsleiðir í
Háskóla Íslands sem
undirbúa fólk vel fyrir
frekara nám í stjarn-
vísindum.
Nám
Skynsamlegt er fyrir
menntaskólanema að
velja stærðfræði- eða
náttúrubraut sem undir-
búning fyrir háskólanám-
ið. Undirstaðan í stjörnu-
fræði er eðlisfræði og því
mikilvægt að kunna góð
skil á henni. Í Háskóla
Íslands er boðið upp
á ýmsar námsleiðir í
grunnnámi eðlisfræði til
BA-prófs (eðlisfræði, há-
tæknieðlisfræði og jarð-
eðlisfræði) og nokkur
námskeið sem tengjast
beint stjörnufræði. Þó svo
að eðlisfræði sé undir-
stöðugrein þá hafa sumir
stjörnufræðingar líka
bakgrunn í efnafræði,
jarðfræði eða líffræði. Í
Háskóla Íslands er einn-
ig boðið upp á meistara-
nám í stjarn eðlisfræði
en síðan þarf að leita út
fyrir landsteinana.
Helstu námsgreinar
Námskeiðin almenn
stjarnvísindi, stjarneðl-
isfræði 1 og 2 og líf í al-
heimi eru öll kennd í
eðlisfræðinámi til BA-
prófs. Sérsviðin eru fjöl-
mörg og má þar nefna
reikistjörnufræði, sól-
stjörnufræði, vetrar-
brautafræði, stjörnu-
líffræði, heimsfræði
og fleiri. Fjölbreytn-
in er mikil og vett-
vangurinn er lífleg-
ur þar sem rann-
sóknarmenn úr
öllum heimshlut-
um vinna að því í samein-
ingu að kanna himingeim-
inn og svara spurningum
um eðli alheimsins.
Að loknu námi
Svið stjörnufræðinnar
skiptist í tvo hluta: at-
hugunarstjörnufræði og
kennilega stjörnufræði.
Margir stjörnufræðingar
tilheyra báðum hópum. Í
stuttu máli snýr athugun-
arstjörnufræði að því að
nota sjónauka til að taka
myndir og litróf af fyr-
irbærum á himninum og
túlka þær en kennileg
stjörnufræði snýst um
að búa til eðlisfræðileg
líkön af fyrirbærinu og
reikna út eiginleika þess.
Augu atvinnustjörnu-
fræðinga geta ekki fylgst
með nema broti af víð-
áttum geimsins og því
kemur sér vel að til er
fjöldi sjálfmenntaðra
áhugastjörnufræðinga
sem kanna himingeim-
inn líka og hefur fram-
lag þeirra reynst mikil-
vægt. Oft starfa stjörnu-
fræðingar við rannsóknir
og kennslu jöfnum hönd-
um.
Rétt val á persónu-
hlífum nauðsynlegt
Persónuhlífar án tilskilinna merkinga er að finna á
íslenskum markaði.
HVERNIG VERÐUR MAÐUR...
STJÖRNUFRÆÐINGUR?
Undirstaðan eðlis-
fræði og stærðfræði
Persónuhlífar eru búnaður
eða tæki sem einstaklingur
klæðist eða heldur á sér til
verndar við vinnu.
28
Barnalæknir
Tryggingastofnun ríkisins hefur verið falin framkvæmd á lögum um greiðslur til foreldra langveikra og alvarlega fatlaðra barna. Því hefur verið
ákveðið að ráða barnalækni í hlutastarf.
Helsta verkefni læknisins verður læknisfræðileg ráðgjöf í málum sem snúa að börnum og fjölskyldum þeirra. Læknirinn mun taka þátt í mótun
verkferla í hinum nýja málafl okki.
Hæfniskröfur:
• Sérfræðiréttindi og reynsla í sérgrein sem nýtist í starfi
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Hæfni í þverfaglegu samstarfi og miðlun þekkingar
• Nákvæm og vandvirk vinnubrögð
• Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
Nánari upplýsingar veita Haraldur Jóhannsson yfi rlæknir og Hallveig Thordarson deildarstjóri í síma 560 4400.
Umsóknarfrestur er til 4. febrúar 2008.
Vinsamlegast sendið umsóknir og starfsferilsskrár rafrænt (starf@tr.is) eða í pósti til starfsmannaþjónustu Tryggingastofnunar, Laugavegi 114, 150
Reykjavík. Í umsóknum skulu koma fram ítarlegar upplýsingar um menntun og fyrri störf. Öllum umsóknum verður svarað þegar niðurstaða um
ráðningu liggur fyrir.
Sjá einnig upplýsingar um auglýst störf á www.tr.is