Fréttablaðið - 27.01.2008, Blaðsíða 112
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Jóns Arnar
Marinóssonar
Í dag er sunnudagurinn
27. janúar, 27. dagur ársins.
10.25 13.40 16.57
10.25 13.25 16.26
OMXI15 var 5.050,71, þegar Villi borgarstjóri opnaði dyrn-
ar laumulega án þess nokkur vissi,
Nasdaq var 2.292,27, þegar Daggi
borgarstjóri bauð mér sæti eftir 3
mínútur, og Dow Jones var
11.971,91 þegar Óleff borgarstjóri
spurði 5 mínútum síðar hvað ég
vildi. Ég yrði að svara strax ef
hann ætti að ráða. Hann væri með
39 stiga hita og hálsbólgu, væri að
fara í rúmið og yrði skipt um
meirihluta í borgarstjórn eftir
hálftíma.
ÓLEFF borgarstjóri tók ekki í mál
að ég fengi að rífa gamla úti-
kamarinn á baklóðinni við Lauga-
veg, hann væri partur af uppruna-
legri götumynd. Ég sagði að væri
skítalykt af honum. „Hvar er ekki
skítalykt,“ spurði Óleff og bætti
við: „Ég held að borgarbúar séu
orðnir vanir skítalykt.“ Ég sit uppi
með kamarinn nema Óleff kaupi
hann af mér fyrir 800 millur eins
og hann bauðst til að gera þegar
hann yrði aftur borgarstjóri eftir
hálsbólguna.
GENGISFALL á hlutabréfamark-
aðnum hvarf í skuggann af gengis-
hruni á íslenska stjórnmálamark-
aðnum. Þeir sem eru vanir
mórölsku tómarúmi eru farnir að
kannast við sig í íslenskri pólitík.
Ég gæti alveg hugsað mér að fá
Villa Þonn til starfa í Sjálfsmín-
banka. Hann er flinkur í baktjalda-
makki á meðan enginn veit af og
lætur ekki neina hjartans sann-
færingu vera að þvælast fyrir sér
og valdastólunum. Hann er líka
gæddur þeirri einstöku prinsipp-
tilfinningu að vita alveg upp á hár
hvaða prinsipp kemur sér best í
hverju tilfelli.
ÉG er hins vegar ekki viss hvort
ég vildi fá Óleff í bankann. Hann
hefur að vísu sýnt að hann hefur
hæfileika til að fara á bak við fólk
sem heldur að það geti treyst
honum. En honum hættir greini-
lega til trúa því, sem aðrir segja
við hann, jafnvel og því sem hann
segir sjálfur, og að auki er hann
svo hræðilega bugaður af málefn-
um að stórsér á honum.
LOKS er spurning hvort ég dáist
meira að Birninga eða Gaujól.
Gaujól fer auðvitað ekki í fötin
hans Björnsinga en þó er svo
margt svipað með þeim, eitthvert
hækvolití lókvolití sem nýtist vel
þegar maður þarf að láta hlutina
ganga í bíssness og hefur ekki efni
á að láta einhverja viðkvæmni
stöðva sig. Þeir eru báðir lausir.
Tala við þá á morgun. Sinn í hvoru
lagi.
Billjónsdagbók
27.01.2008
með ánægju
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Sumarið
Stokkhólmur
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Billund
Berlín
Frankfurt Hahn
Friedrichshafen
Eindhoven
Varsjá
Basel
London
París
Barcelona
Alicante
Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum.
Verð frá:
7.995 kr. 50%
Börn:
Börn, 11 ára og yngri í fylgd með
fullorðnum, fá helmingsafslátt af
verði fyrir skatta og aðrar greiðslur.
2008