Fréttablaðið - 27.01.2008, Blaðsíða 70
27. janúar 2008 SUNNUDAGUR28
ATVINNA
Nýleg grein í tímaritinu
The Economist veltir upp
spurningunni um hvort
fegurð hafi áhrif á laun.
Er fegurð ávísun á vel-
gengni? Um það fjallaði
nýleg grein í viðskipta-
tímaritinu The Economist.
Þar var reynt að komast að
því hvort tengsl séu milli
þess hvernig fólk lítur út og
hversu farsælt það er.
Á heimasíðu VR er sagt
frá þessari áhugaverðu
grein þar sem höfundar
hennar spyrja spurningar-
innar: Ef útlit skiptir ekki
máli, af hverju erum við að
hafa okkur til fyrir ráðn-
ingarviðtal, jafnvel þó að
starfið krefjist þess ekki
að við séum alltaf vel til-
höfð? Ef fríðleiki skiptir
máli ættu hinir fallegu og
gjörvilegu að njóta meira
brautargengis en aðrir –
jafnvel í störfum þar sem
útlitið skiptir engu máli. Og
þeir spyrja áfram, ef útlit
annarra hefur áhrif á þig, er
það endilega svo slæmt?
Skýrt er frá niðurstöð-
um rannsókna bandarísks
háskólaprófessors, Daniels
Hamermesh, sem sýna að
fegurð og fjárhagsleg vel-
gengni virðast fara saman.
Í rannsókn Hamermesh í
Bandaríkjunum og Kanada,
sem gerð var fyrir rúmum
áratug, kom í ljós að laun
fallega fólksins voru yfir
meðallaunum en laun þeirra
ófríðu undir meðallagi.
Fallegir karlar voru að með-
altali með 5% hærri laun en
meðallaunin en laun þeirra
ljótu voru 9% lægri en með-
altalið. Hjá konunum var
munurinn ekki eins mikill,
fallegar konur voru með 4%
hærri laun en þær ófríðu
með 6% lægri laun.
Þessi rannsókn hefur
verið gerð víðar. Kemur
fram að munurinn sé til að
mynda gríðarlegur í Kína,
sérstaklega hjá konum.
Aðlaðandi karlar í Sjang-
hæ eru með 3% hærri laun
en meðaltalið en óaðlað-
andi með 25% lægri laun.
Fallegar konur þar í borg
eru með 10% hærri laun en
ófríðar með 31% lægri laun
en meðaltalið. Öfgarnar eru
minni í Bretlandi, fallegt
fólk er með 1% hærri laun
en meðaljóninn en ófríðar
konur eru með 11% lægri
laun og ófríðir karlar 18%.
Aðrir sérfræðingar hafa
sýnt fram á tengsl fríðleika
og velgengni á öðrum svið-
um, s.s. á vettvangi stjórn-
málanna.
Hægt er að nálgast grein-
ina á www.vr.is
Tengsl fegurðar
og velgengni
Það sakar ekki að líta út eins og Angelina Jolie.
Atvinnuþátttaka rúm 80 prósent
ATVINNUÞÁTTTAKA ER SVIPUÐ Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU OG
Á LANDSBYGGÐINNI.
Á fjórða ársfjórðungi 2007 töldust um 220.000 manns hér á
landi vera á vinnualdri, það er á aldrinum 16-74 ára. Af þeim
voru 179.800 manns virkir á vinnumarkaði, þar af 176.300
starfandi og 3.500 atvinnulausir. Þetta þýðir að atvinnuþátt-
taka hafi í lok árs verið 81,7 prósent og atvinnuleysi 1,9 pró-
sent. Frá þessu segir á vef Alþýðusambands Íslands www.
asi.is
Atvinnuþátttaka er svipuð á höfuðborgarsvæðinu og á
landsbyggðinni. Þátttakan er hins vegar mun meiri meðal
karla en kvenna og langmest meðal fólks á aldrinum 25-
54 ára. Miðað við síðustu tvö
ár stendur atvinnuþátttaka
nokkurn veginn í stað.
Atvinnuleysi er tals-
vert meira á lands-
byggðinni en á höfuð-
borgarsvæðinu og er
það viðsnúningur frá
fyrra ári. Það er held-
ur meira meðal karla
en kvenna og mest
meðal aldurshópsins
16-24 ára.
www.asi.is
0