Fréttablaðið - 02.02.2008, Síða 4
4 2. febrúar 2008 LAUGARDAGUR
SKIPULAGSMÁL „Mikil lista- og
menningarstarfsemi hefur verið
þarna í gegnum árin og við ætlum
að virkja það inn í þetta eins og við
mögulega getum,“ segir Níels
Pálmar Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri Festa ehf. Félagið á
öll hús á svokölluðum Sirkusreit,
nema húsin við Laugaveg 13 og 15
og Klapparstíg 26. Festar sérhæfa
sig í þróun fasteignaverkefna og
útleigu með áherslu á miðborg
Reykjavíkur. Fyrstu húsin á reitn-
um voru keypt árið 1998.
Hjá Festum er unnið með tvær
tillögur að uppbyggingu á reitnum.
Í báðum þeirra er gert ráð fyrir að
fjöldi húsa muni víkja. Er gert ráð
fyrir hóteli þar sem í öðru tilfellinu
verði hótelbyggingin við Hverfis-
götuna en í hinu verði hún í ellefu
hæða turni á miðjum reitnum. Verði
turninn lítið sýnilegur frá götum í
kring þar sem hús í næsta nágrenni
skyggi á hann.
Reiturinn verði annars nýttur
undir verslanir, veitingastaði,
skemmti staði, matvörumarkað og
er svo gert ráð fyrir 300 bílastæð-
um undir húsinu. Að auki verði fjöl-
nota menningarsalur á reitnum.
„Við viljum sjá líf á þessum reit,
mikla grósku og fjölbreytt mann-
líf,“ segir Hanna G. Benediktsdótt-
ir, fjármálastjóri Festa.
Er stefnt að því að leggja tillög-
urnar fyrir skipulagsráð í næstu
viku. „Embættismenn borgarskipu-
lags hafa haft þessar tillögur síðan
í nóvember, til skoðunar,“ segir
Benedikt Sigurðsson, stjórnarfor-
maður Festa, en vegna umróts í
pólitíkinni hafi menn ekki getað
unnið markvisst í kynningu.
„Laugavegur 17 er það stórt hús
að það verður ekki flutt,“ segir
Benedikt en áætlað er að endur-
byggja húsið. Er það eina húsið í
eigu Festa sem eftir stendur sam-
kvæmt annarri tillögunni. Sam-
kvæmt hinni tillögunni mun
Hverfis gata 26 einnig standa en
byggt verði
ofan á húsið.
„Með endur-
gerð á Lauga-
vegi 17 telj-
um við okkur
vera að koma
til móts við
umræðuna
um útlit götu-
myndar,“
segir Hanna.
Mesta breyt-
ingin verði
Hverfisgötu-
megin á
reitnum.
Hljóma-
lindarhúsið
er mjög illa farið að innan að sögn
Benedikts en áætlanir Festa myndu
lítið breytast þótt ákveðið yrði að
friða húsið, eins og Húsafriðunar-
nefnd hyggst leggja til. Yrði húsið
þá við torg sem báðar áætlanir gera
ráð fyrir. „Friðun hússins myndi
ekki setja verkefnið úr lagi,“ segir
hann en samkvæmt núgildandi
deiliskipulagi er heimilt að rífa
húsið eða flytja það. „Sé það vilji
borgaryfirvalda að húsið standi á
sama stað þá verður svo að vera,“
segir Benedikt.
Þá segir Benedikt rekstraraðila í
húsunum hafa strax í upphafi verið
látna vita að til niðurrifs gæti
komið nánast hvenær sem væri. Að
núverandi rekstraraðili Sirkuss
hafi komið til árið 2000. „Við keypt-
um Sirkushúsið árið 1998 og þá var
staðurinn lokaður.“
„Við breytingu á meirihluta á
ekki að umturna skipulagsmálum,“
segir Benedikt. „Það er langtíma-
stefna sem menn taka og svo er
hægt að þróa hana með mismun-
andi hætti.“ Hann segir deiliskipu-
lag á reitnum samþykkt árið 2003
og fimm ár ekki langan tíma í skipu-
lagi og hönnun. olav@frettabladid.is
Áætlað að rífa flest húsin
Festar fasteignafélag á mestan hluta húsa á Sirkusreitnum svokallaða en félagið áætlar mikla uppbyggingu
á svæðinu sem kallar á niðurrif flestra þeirra. Eitt hús verði rifið við Laugaveg en annað endurbyggt.
BANDARÍKIN, AP Hillary Clinton og
Barack Obama hafa ákveðið að
grafa stríðsöxina. Þau komu fram
sameiginlega í sjónvarpi á
fimmtudag þar sem þau sýndu
hvort öðru virðingu og vinsemd.
Clinton sagði að ef næsti forseti
Bandaríkjanna yrði repúblikani,
þá væru kjósendur aðeins að fá
meira af því sama. Síðan leit hún
til Obama og sagði: „Við munum
breyta landinu okkar.“
Þau sækjast bæði eftir að verða
forsetaefni Demókrataflokksins
þegar kosið verður í haust.
Demókratar voru margir hverjir
farnir að óttast að illdeilur þeirra
síðustu vikur gætu kostað þau
bæði sigur í forsetakosningunum.
- gb
Clinton og Obama:
Segjast nú hætt
öllum illdeilum
OBAMA OG CLINTON Ganga með friði til
forkosninganna á þriðjudag.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
„Við breytingu á meiri-
hluta á ekki að umturna
skipulagsmálum.“
BENEDIKT SIGURÐSSON
STJÓRNARFORMAÐUR FESTAR EHF.
AKRANES Ungur maður á torfæru-
hjóli reyndi á föstudaginn var að
komast undan lögreglunni á
Akranesi þegar hún hugðist ræða
við hann.
Vegna hálku þótti lögreglu ekki
á það hættandi að veita mannin-
um eftirför en hann var réttinda-
laus, hjálmlaus og með farþega á
hjólinu. Þekktu lögreglumenn til
unga mannsins og höfðu samband
við forráðamenn hans. Kom hann
á lögreglustöð, gekkst við broti
sínu og baðst afsökunar á hegðun
sinni.
Getur ökumaðurinn búist við
sektum upp á tugi þúsunda króna
fyrir athæfið. - ovd
Réttinda- og hjálmlaus:
Stakk af frá
lögreglu á hjóli
Hvalur á reki við Garðskaga
Hvalshræ sást á reki um eina og
hálfa sjómílu norður af Garðskaga á
fimmtudag. Gæti hvalurinn verið vara-
samur fyrir smærri báta þar sem hann
sést ekki vel í sjónum. Gert er ráð fyrir
að hann reki inn á Faxaflóann og inn
fyrir Garðskaga.
FAXAFLÓI
$
%& '
()
*
#
#
#
#
#
+
#
!
,
"
!
!
!
!
!
"
"
+
+
+
+
+
BÚFJÁRHALD Ungum mönnum tókst að koma
kindunum sex úr sjálfheldunni á syllu í Ólafsvík-
ur enni á miðvikudag. Þær eru þó enn í fjallinu þar
sem enginn kemst til þeirra en hafa nóg að bíta.
„Við notuðum bara snæfellskt hugvit og kjark til
að reka þær af syllunni,“ segir Óttar Sveinbjörns-
son, formaður landbúnaðarnefndar Snæfellsbæjar.
„Það fóru ungir og vaskir menn úr byggðarlaginu á
snjósleðum upp á ennið, bundu svo spotta í
lóðabelg sem þeir drógu síðan eftir syllunni og
náðu þannig að reka þær úr sjálfheldunni. Þær
kæmust alveg í burtu núna en þær kjósa að vera í
skjóli þarna við bergið. Við ætlum því bara að bíða
þangað til þiðnar en þá náum við þeim niður.“
Upphaflega voru kindurnar sjö en ein er nú dauð
en talið er að hún hafi runnið á klakanum og fallið
fram af. Óttar hafði sagt við Fréttablaðið að hinna
kindanna biði ekkert nema dauðinn ef þær
fengjust ekki af syllunni þar sem þær höfðu ekkert
að bíta. - jse
Snæfellsku hugviti beitt á kindurnar sex sem voru á syllu í Ólafsvíkurenni:
Ráku rollurnar úr sjálfheldunni
KINDURNAR SEX Á SYLLU Í ÓLAFSVÍKURENNI Tekist hefur að
reka kindurnar af syllunni í Ólafsvíkurenni en ungir menn
notuðu til þess sitt snæfellska hugvit. Þær eru enn í fjallinu
þar sem enginn kemst til þeirra en hafa þó eitthvað að éta en
því var ekki að fagna í sjálfheldunni á syllunni.
NÍELS PÁLMAR
BENEDIKTSSON
GENGIÐ 01.02.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
126,1138
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
64,52 64,82
128,43 129,05
95,97 96,51
12,873 12,949
11,957 12,027
10,139 10,199
0,6062 0,6098
102,83 103,45
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
1. Laugavegur 21 – Kaffi Hljóma-
lind – Hljómalindarhúsið
2. Laugavegur 19 – Veitingastað-
urinn Indókína og íbúðir
3. Laugavegur 17 – Barnafataversl-
unin Du Pareil au Même og
íbúðir
4. Laugavegur 15 – Verslanir,
snyrtistofa og íbúðir - Verslun
Bláa lónsins, Franch Michelsen
úrsmíðameistari, Snyrtistofan
Mandý, Spilaverslun Magna
5. Laugavegur 13 – Verslanir og
skrifstofur – Gullkúnst Helgu,
Loftmyndir ehf., Arkitektastofa,
Ísgraf ehf., Rannís, Verslunin
Tiger, Umboðsmaður barna
6. Smiðjustígur 4 – Íbúðir
7. Smiðjustígur 4a
8. Smiðjustígur 6 – Skemmtistað-
urinn Grand Rokk
9. Hverfisgata 26 – Veitingahúsið
Celtic Cross og teiknistofan
Arkitektúr.is
10. Hverfisgata 28 – Íbúðarhús
11. Hverfisgata 32 – Iðnaðar- og
íbúðarhús
12. Hverfisgata 32a – Íbúðarhús
– Rifið
13. Hverfisgata 32b – Íbúðarhús
– Rifið
14. Hverfisgata 34 - Iðnaðar- og
íbúðarhús
15. Klapparstígur 26 – Hótel Klöpp
16. Klapparstígur 28 – Atvinnu- og
íbúðarhúsnæði – Sjá-viðmóts-
prófanir, Sprettur þróun ehf.
17. Klapparstígur 30 – Skemmtistað-
urinn Sirkus
2
1904
3
1909
og 1918
4
1930
5
1954
6
1951
7
8
1930
9
1939
10
1905
11
1904
12
1859
13
1907
14
1910
15
1947
16
1932
17
1917
1
1916