Fréttablaðið - 02.02.2008, Síða 22

Fréttablaðið - 02.02.2008, Síða 22
22 2. febrúar 2008 LAUGARDAGUR FÖSTUDAGUR, 25. JANÚAR. Á fjósbitanum Sigurður Líndal lagaprófessor húðstrýkir Sjálfstæðisflokkinn og vesalings Árna Mathiessen í magnaðri grein í Fréttablaðinu í dag. Það er betra seint en aldrei þegar innanbúðarmenn koma auga á sílspikaða spillinguna á fjósbit- anum í flokknum sínum. Mér er nokk sama þótt Sjálf- stæðisflokkurinn fyrirgeri ærunni. Það er meira áhyggjuefni að Alþingi Íslendinga hefur verið að glata virðingu sinni undir for- sæti Sólveigar Pétursdóttur, Hall- dórs Blöndals og Sturlu Böðvars- sonar. Löggjafarvaldið er orðið að pöntunarlager fyrir framkvæmda- valdið sem er líka farið að seilast gróflega inn á yfirráðasvæði dómsvaldsins. Ég gladdist þegar ég hélt að valdbeit- ingarferli Davíðs Oddssonar lauk loksins og fagnaði því að Geir Haarde, sem ég hélt að væri vænn og heiðarlegur maður, tók við hinu háa embætti forsætis- ráðherra. Ég kæri mig ekki um einræði hérna, ekki heldur ráðherraræði, heldur vil ég lýðræði og þingræði eins og stjórnarskráin okkar gerir ráð fyrir og sjálfstæða og óháða dómstóla. Úr því að forsætisráðherra hefur ekki manndóm í sér til að láta ráðherra fara sem ofbýður þjóðinni með misbeitingu á valdi sínu – úr því að samráðherrar hans hugsa meira um eigin metorð og pólitískar brellur í framtíðinni en leikreglur lýðræðisins á líðandi stund – úr því að Samfylking stendur núorðið fyrir Samtrygg- ing – þá skal ég sjálfur bera fram kröfuna um að Árni Mathiesen eigi að víkja úr ríkisstjórn Íslands. Þessi embættisfærsla hans gleym- ist ekki. Látum hann róa. Þótt ég sé orðinn soldið gleym- inn er engin hætta á því að ég gleymi þessu svínaríi og á það skal ég minna reglulega, þar til lögum og reglum í þjóðfélaginu og fólk- inu í landinu hefur verið sýnd sú lágmarksvirðing að láta ráðherra víkja úr embætti fyrir að gera minna gagn en ógagn. Ég er ekki að tala um að hann þurfi að biðjast fyrirgefningar, greiða sekt eða fara í fangelsi eða segjast iðrast. Ég vil bara losna við hann úr minni þjónustu. Sem allra fyrst. Takk fyrir. LAUGARDAGUR, 26. JAN- ÚAR. Heilsufæði á 300 krónur Fann nýjan grænmet- isstað. Tvíréttaður hádegisverður kostar 90 tékk- neskar krónur – það er þrjú hundruð kall. Þessi staður er í 300 m göngufæri frá mér, lítill og hippa- legur staður í Borz- ov-stræti sem nýtur þeirrar sérstöðu að vera stysta gatan í Prag. Maturinn þarna er ljómandi góður og sá metnaður ríkir í eld- húsinu að framreiða grænmetis- rétti sem eru jafn bragðgóðir og fallegir og máltíðir úr öðrum efnum. Það er alltaf smekkfullt inni á þessum stað. Heillar aldar áróður fyrir hollustu grænmetis er farinn að skila sér. Hádegismatinn byrja hipparnir um hálftólf og þá fer matargestina að drífa að. Sumir síðhærðir í mussum og bera bakpoka. En holl- ustan höfðar greinilega ekki ein- göngu til velviljaðra skuggabaldra með rastafléttur, því þarna úir og grúir líka af karlmönnum í jakka- fötum og kvenfólki í buxna- drögt um. Og svo er þarna ein og ein amerísk ekkja með fjólublátt hár. Staðurinn heitir LEHKÁ HLAVA (SKÝR KOLLUR) og stendur skammt frá Karlsbrúnni yfir Moldá. SUNNUDAGUR, 27. JANÚAR. Tilgerð í bloggmállýsk- um Stundum þegar ég hef lítið fyrir stafni kíki ég inn á bloggsíður á mbl. is og visir.is. Þar kennir ýmissa grasa. Margar góðar og jákvæðar hug- myndir eru þarna á kreiki í bland við fremur leiðinlegt röfl um sjálf- sagða hluti. Öfugt við það sem tíðkast á venjulegu ritmáli virðast margir keppast við að skrifa götumál eða herma eftir málfari unglinga. Væntanlega sér til uppyngingar blogga sumir á prentsmiðjuensku sem er fremur hallærislegt eða tilgerðarlegt tungumál. Á svip- stundu rekst maður þarna á orð- skrípi eins „Djísúskræst“, „Dónts- úmíplísjeræt“, „Úje“, „Kræmíariver“, „Lofjúgæs“, „Bætmítoðtebónækenteikit“ og „Smjúts á alla“. Og útlensku er slett af því meiri áfergju sem ritarinn skilur minna í merkingu orðanna sem hann slettir. Dæmi: „Ef ég hefði „cloud“ til að breyta...“ Þarna er höfundur að reyna að rifja upp ameríska orðið „clout“ sem þýðir vald eða áhrif en lendir úti á túni og notar valdalaust „ský“ (cloud) í staðinn. Sjálfur hef ég engin efni á því að þykjast vera ofstækismaður um málhreinsun en það mundi skerpa bæði hugsun og tjáningu margra efnilegra bloggara ef þeir temdu sér að sýna tungumálinu okkar lágmarksvirðingu. ÞRIÐJUDAGUR, 29. JANÚAR. Fordómar að ofan Fordómar í garð þeirra sem þjást af geðrænum sjúkdómum lifa góðu lífi enn þann dag í dag. Því miður. Samt eru geðsjúk- dómar hvorki verri né betri en aðrir sjúkdómar sem valda fólki þján- ingum og gera óvinnufært um lengri eða skemmri tíma. Sjálfur hef ég strítt við þunglyndi ára- tugum saman svo að ég hef fylgst vel með því hvernig umræð- an hefur þróast. Þessi umræða tók stórt skref aftur á bak núna um helgina þegar borgarstjórinn í Reykjavík tjáði sig um að hann hefði orðið fyrir „andlegu mótlæti“. „Andlegt mótlæti“ er afar óljóst hugtak sem mér vitanlega er hvergi að finna í sjúkdómaregistri læknisfræðinnar og þaðan af síður hægt að fá læknisvottorð og frí í vinnunni út af andlegu mótlæti – nema það hafi valdið manni ein- hverjum viðurkenndum sjúkdómi sem gerir mann óvinnufæran um lengri eða skemmri tíma. Hitt er annað mál að andlegt mótlæti getur valdið geðröskun- um eða geðsjúkdómum eins og þunglyndi. Þunglyndi er slæmur sjúkdóm- ur en hann skánar aldeilis ekki við að fólk hætti að þora að nefna hann sínu rétta nafni. MIÐVIKUDAGUR, 30. JANÚAR. Við skrifborðið Það kann að virðast mikil bíræfni að skrifa bók um sjálfan sig. Vissu- lega leita efasemdir á hugann. Að skrifa án þess að fela sig á bak við tilbúnar persónur er sold- ið eins og að stunda vísindarann- sóknir á sínum eigin líkama í stað þess að nota hvítar mýs eða ein- hver önnur tilraunadýr. Ég er mitt eigið tilraunadýr. Mýsnar þurfa alla vega ekki að óttast að ég meiði þær. FIMMTUDAGUR, 31. JANÚAR. Lesbók á listasafni Þórir vinur minn er svo hugulsam- ur að hann er hræddur um að ég verði fyrir „andlegu mótlæti“ ef ég sit of lengi við tölvuna mína. Í dag kom hann og dreif mig með sér á Tékkneska lista- safnið. Þar er að finna marga góða gripi. Þarna var til dæmis mjög tilkomumikil höggmynd sem mér sýndist vera af Gunn- ari á Hlíðarenda með spenntan boga en engan bogastreng. Mest kom mér þó á óvart að sjá þarna uppi á vegg síðu úr gamalli Moggalesbók sem Dieter Roth hefur einhvern tím- ann rifið út úr blaðinu og skellt í ódýran ramma. Svona er listin löng og lífið stutt. KÆRA DAGBÓK Þráinn Bertelsson skrifar „Dóntsúmíplísjeræt“ Í Dagbók Þráins Bertelssonar er fjallað spillinguna á fjósbitanum, pöntunarlager framkvæmdavalds- ins, tilgerðarlegar bloggmállýskur, andlegt mótlæti, Gunnar á Hlíðarenda og Moggalesbók á listasafni. Viltu eflast í starfi? Menntamálaráðuneytið býður leik- og grunnskólakennurum 15 e VIÐBÓTARNÁM íslenska, danska, enska, stærðfræði, náttúrufræði Ný námskeið hefjast í febrúar og mars Skráningarfrestur er til 15. febrúar Nánari upplýsingar eru á vef SRR í Kennaraháskóla Íslands http://srr.khi.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.