Fréttablaðið - 02.02.2008, Side 30
[ ]Frostlögur kemur að góðum notum á þessum árstíma og um að gera að athuga hvort ekki sé nóg af honum.
Lausafjármunauppboð sýslu-
mannsins í Reykjavík fer fram
í dag, en dæmi eru um að þar
hafi bíll selst á átta milljónir
króna.
Sóley Guðmundsdóttir, skrifstofu-
stjóri Vöku, segir alls kyns bifreið-
ar rata inn á lausafjármunauppboð
sýslumannsins í Reykjavík, allt frá
bílum sem komnir eru til ára sinna
upp í margra milljóna króna lúxus-
kerrur. Hún minnist þess meira að
segja að hafa einu sinni séð bílgrind
selda, sú var ekki með sæti, vél eða
stýri, en kaupandinn var engu að
síður hæstánægður.
„Þetta er í raun lausafjármuna-
uppboð þar sem margt fleira er í
boði, svo sem vinnuvélar, kerrur,
tölvur og skrifstofuvörur,“ segir
Sóley um uppboðið sem fer fram á
sex til átta vikna fresti á Eldshöfða
6 þar sem Vaka úthlutar aðstöðu.
Opnað er inn á svæðið klukkan tíu
um morguninn og hægt er að skoða
munina til klukkan 13.30. Þá setur
sýslumaður uppboðið sem fer að
sögn Sóleyjar alveg eins fram og í
bíómyndunum: Boðið er upp og
slegið þrisvar í borðið þegar hæsta
verð fæst.
„Bílarnir eiga það margir sam-
eiginlegt að eigendurnir hafa ekki
getað borgað af þeim. Svo mæta
umboðsmenn kröfuhafa til að fylgja
eftir kröfunum,“ segir Sóley og
tekur fram að stundum komi skuld-
hafarnir til að gera sín mál upp. Það
sé mögulegt fram á síðustu stundu.
Aðeins er hægt að staðgreiða
fyrir bílana þótt Sóley muni ekki
eftir nokkrum með skjalatösku
fulla af reiðufé. Enda stundum um
háar fjárupphæðir að ræða. „Já,
hér voru þrír bílar á uppboði í
sumar metnir á tíu milljónir króna
hver,“ segir Sóley og bætir við að
bifreiðarnar kosti oftast frá nokkr-
um hundruðum þúsunda upp í þrjár
milljónir. Mest hafi átta milljónir
fengist fyrir einn bíl, en það hafi
verið trukkur.
Sóley vill þó hvorki kannast við
að mikið fari fyrir dýrum köggum
né að þeim hafi fjölgað, þótt bíla-
floti landsmanna verði sífellt flott-
ari. „Ástæðan er sú að lánadrottn-
arnir vilja vera skráðir eigendur
bílanna þar til lántakar hafa borgað
þá. Þeir eru þá umsjónarmenn bíl-
anna og ef þeir geta ekki staðið í
skilum láta lánadrottnarnir sækja
þá.“
Bílafjöldi er á bilinu 50 og upp í
120 og reiknar Sóley með að úr
nógu verði að velja þegar uppboð-
ið verður opnað í dag. „Ætli það
verði ekki 90 bílar,“ segir hún og
bætir við að menn verði að muna
að munirnir séu seldir í því ástandi
sem þeir eru þegar hamar fellur.
Eins og segir í lögum sé „engin
ábyrgð tekin á ástandi þeirra eða
heimild yfir þeim og að kaupandi
geti ekki krafist riftunar kaupa,
afsláttar eða skaðabóta eftir að
sýslumaður hefur ráðstafað sölu-
verði“.
roald@frettabladid.is
Fyrsta, annað og þriðja!
Sóley Guðmundsdóttir,
skrifstofustjóri Vöku, á
uppboðssvæðinu þar
sem hægt verður að
bjóða í bifreiðar og alls
kyns hluti í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
fjallabilar@fjallabilar.is
Japan/U.S.A.
Öxulliðir í flestar
gerðir jeppa
FRAMÖXLAR Í
JEPPA
Frekari upplýsingar á www.lexi.is
Sýning og kynning á keppendum
verður Föstudagskvöldið 1. Febrúar kl. 21.00
fyrir framan Össur hf., Grjóthálsi 5.
ÍSLANDSMEISTARAMÓTIÐ Í
SNOCROSS
Aðgangseyrir 1.000 kr.
Frítt fyrir 14 ára og yngri.
Fyrsta umferð verður haldin
í Motocrossbrautinni
í Bolöldu Laugardaginn 2. Febrúar kl. 13.00.
(við Litlu Kaffi stofuna)
A u k i n ö k u r é t t i n d i - M e i r a p r ó f
Upplýsingar og innri tun í s íma 567 0300
N æ s t a n á m s k e i ð
h e f s t 9 . j a n ú a r